Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 7/2015

Úrskurður


Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 9. apríl 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 7/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau, eins og fram kemur í innheimtubréfi Vinnumálastofnunar til kæranda, A, dags. 17. október 2013, að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 20. desember 2010 til 19. ágúst 2011 en hann hafi á þeim tíma ekki uppfyllt almenn skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 þar sem hann hafi fengið skráninguna: ofgr. v/tekna. Höfuðstóll skuldarinnar væri 221.453 kr. ásamt 15% álagi 33.218 kr. eða samtals 254.671 kr. Þess var farið á leit að kærandi greiddi skuldina innan 90 daga frá dagsetningu bréfsins.

Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 15. janúar 2015. Vinnumálastofnun telur að úrskurðarnefndinni beri ekki að taka stjórnsýslukæru þessa til efnismeðferðar heldur beri að vísa henni frá þar sem þriggja mánaða kærufrestur hafi verið liðinn þegar kæran barst.

Í kæru kæranda kemur fram að Vinnumálastofnun hafi tekið þá ákvörðun að senda mál hans í innheimtu vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta til sýslumannsins á Blönduósi. Kærandi hafi lent í sambærilegu atviki áður þar sem hann hafi verið krafinn um að greiða atvinnuleysisbætur en þá hafi það verið fellt niður. Hann sé einnig þeirrar skoðunar  núna að um sé að ræða mistök Vinnumálastofnunar vegna þess að hann hafi á sínum tíma komið með öll nauðsynleg gögn til þess að undirstrika bótarétt sinn en eitthvað hafi misfarist hjá stofnuninni. Þess vegna vilji hann að mál þetta verði lagt niður eða að Vinnumálastofnun taki að minnsta kosti einhverja ábyrgð á þessu máli þar sem þetta hafi komið fyrir áður. Um sé að ræða klúður sem bitni illa á honum sem atvinnuleitanda.

Hin kærða ákvörðun kemur fram í innheimtubréfi Vinnumálastofnunar, dags. 17. október 2013, eins og rakið hefur verið. Í bréfi þessu var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og kærufrest. Kæra kæranda er dagsett 15. janúar 2015 og barst samdægurs.  

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 26. febrúar 2015, sent afrit af bréfi Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum til 12. mars 2015. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2. Niðurstaða

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæra kæranda, dags. 15. janúar 2015, barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann sama dag. Innheimtubréf Vinnumálastofnunar er dagsett 17. október 2013 eða einu ári og tæpum þremur mánuðum síðar.  

Með vísan til framanritaðs barst kæran að liðnum kærufresti.

Ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

Úrskurðarorð

Kæru A til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða er vísað frá.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum