Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 12/2014

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 11. nóvember 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 12/2014.

1.      Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 4. desember 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem fram komi í fyrirliggjandi gögnum að hann hafi þegið atvinnuleysisbætur án þess að eiga rétt til þeirra. Hann hafi haft tekjur í ágúst 2013 án þess að tilkynna um þær til Vinnumálastofnunar. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur í ágúst 2013 samtals með 15% álagi 3.922 kr. sem verði innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 5. febrúar 2014. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. júní 2013.

Við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra komu fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur á kæranda í júlí 2013 vegna vinnu hjá B. Óskað var skriflegra skýringa kæranda og bárust tvö skýringabréf frá honum 18. október 2013. Í öðru þeirra greindi hann frá því að honum hefðu ekki borist neinar tekjur frá B og að hann hafi gefið upp allar tekjur og þar af leiðandi væri ekkert óupplýst af hans hálfu. Í hinu skýringabréfinu greindi kærandi frá því að hann hafi enga greiðslu fengið frá B og fylgdi bréfinu yfirlit yfir innborganir á bankareikning hans.

Við framangreinda samkeyrslu gagnagrunna kom fram að kærandi hafði haft í tekjur frá B 70.531 kr. í júlí 2013.

Í kæru kæranda kemur fram að engar tekjur hafi borist honum og finnist honum kjánalegt að fyrirtæki geti skráð tekjur til skatts þegar ekki sé um neinar tekjur að ræða. Kærandi bendir máli sínu til stuðnings á eina bankareikninginn sem hann eigi.

Í greinargerð til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 24. mars 2014, greinir Vinnumálastofnun greinir frá því að mál þetta varði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi einnig verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bendir á að annar málsliður 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði til lengri eða skemmri tíma samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laganna.

Vinnumálastofnun vísar til þess að í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfar á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur frá B í júlí 2013. Kærandi hafi ekki tilkynnt til stofnunarinnar um vinnu sína eða tekjur. Í skýringabréfum sínum til stofnunarinnar hafi kærandi greint frá því að honum hafi ekki borist neinar greiðslur frá B. Þá greini kærandi frá því í rökstuðningi sínum fyrir kæru að honum finnist „kjánalegt að fyrirtæki geti skráð tekjur til skatts þegar engar tekjur er um að ræða“.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra hafi kærandi fengið greidd laun frá fyrirtækinu B fyrir júlí 2013 samtals að fjárhæð 70.531 kr. Þá hafi við gerð umsagnarinnar verið haft samband við fyrirtækið B til að afla upplýsinga um störf kæranda fyrir fyrirtækið. Þær upplýsingar hafi fengist að kærandi hafi starfað hjá fyrirtækinu í júlí 2013. Með tölvupósti, dags. 18. mars 2014, hafi það verið staðfest af hálfu B að kærandi hafi á tímabilinu 26. júní til 25. júlí 2013 unnið hjá fyrirtækinu í 43,67 vinnustundir.

Kæranda beri einnig að endurgreiða Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar, samtals að fjárhæð 3.922 kr. með 15% álagi, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. mars 2014, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum til 8. apríl 2014. Tölvupóstur barst frá kæranda 7. apríl 2014. Þar kemur fram að vinafólk hans hafi átt fyrirtækið og hafi hann verið að gera þeim greiða og aldrei hafi verið samið um nein laun og vegna þess að hann hafi neitað að halda áfram hafi þau tilkynnt um ósamin laun.

2.      Niðurstaða

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæðið er svohljóðandi, sbr. 23. gr. laga nr. 134/2009 og 4. gr. laga nr. 103/2011:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Í meðförum úrskurðarnefndarinnar hefur ákvæði þetta verið túlkað með þeim hætti að fyrsti málsliður þess eigi við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku. Fyrri málsliðurinn á við í máli þessu.

Við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra komu fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur kæranda í júlí 2013 vegna vinnu hans hjá fyrirtækinu B að fjárhæð 70.531 kr.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hann starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða um tekjur. Þá er ákvæði 60. gr. fortakslaust en í því felst að ekki er heimild til að beita vægari úrræðum en ákvæðið kveður á um. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

Kærandi endurgreiði Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hann uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar, að fjárhæð 3.410 kr. auk 15% álags eða samtals 3.922 kr.

 

Úrskurðarorð


Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 4. desember 2013 í máli A þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest. Kærandi endurgreiði enn fremur 3.922 kr. með 15% álagi inniföldu.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum