Hoppa yfir valmynd
16. september 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 156/2013

Úrskurður

 Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 16. september 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 156/2013.

 1. Málsatvik og kæruefni

 Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 17. desember 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 26. nóvember 2013 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysisbóta. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka kæranda hjá B var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 10. október 2013. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 17. desember 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta eigi hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 10. október 2013. Með umsókninni fylgdi vottorð vinnuveitanda kæranda, Vísi, þar sem fram kom að ástæða starfsloka hafi verið eigin uppsögn kæranda.

Vinnumálastofnun óskaði með bréfi, dags. 4. nóvember 2013, eftir því að kærandi færði fram skriflegar skýringar á uppsögn sinni. Skýringar kæranda bárust 14. nóvember 2013. Þar kemur fram að kærandi hafi hætt að vinna hjá B á C. október 2013 þar sem hann hafi flutt til D. Ástæða flutninganna hafi verið að hann vildi vera í stærra bæjarfélagi þar sem hann taldi að væri auðveldara að fá vinnu. Í kærunni kemur einnig fram að kæranda hafi ekki boðist full vinna á C en hafi talið góðar líkur á að fá fulla vinnu á D. Hann hafi verið í virkri atvinnuleit og telji góðar líkur á vinnu. Fram kemur í kærunni að kærandi telji það ekki vera sanngjarnt að hegna honum fyrir það að flytjast milli staða í leit að meiri atvinnu. Það sé alveg ljóst að verkafólk á Íslandi framfleyti sér ekki með hlutavinnu. Menn þurfi að vera í fullri vinnu með aðgengi að yfirvinnu. Þess vegna hafi hann farið frá C til D þar sem hafi verið næg atvinna, ekki síst í fiskvinnslu.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinumarkaðsaðgerða, dags. 20. febrúar 2014, vísar stofnunin til þess að í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar sé vísað til þágildandi reglugerðar nr. 545/1997, um greiðslu atvinnuleysisbóta, þar sem talin séu upp tvenns konar tilvik er heyri til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annað þessara tilvika sé þegar maki hins tryggða hefur hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hefur af þeim sökum þurft að flytjast búferlum. Enn fremur komi fram í greinargerðinni að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim, sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Kærandi hafi sagt starfi sínu lausu. Ágreiningurinn snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni teljist gilda í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir.

Í skýringabréfi kæranda til Vinnumálastofnunar segist kærandi hafa sagt starfi sínu lausu sökum þess að hann hafi flust búferlum frá C til D þar sem hann vildi búa í stærra bæjarfélagi og hafi talið að þar væri auðveldara að fá vinnu. Í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar greini kærandi frá því að honum hafi ekki boðist full vinna á C. Þar sem hann hafi talið góðar líkur vera á því að fá fulla vinnu á D hafi hann flutt þangað. Hann telji að ekki sé sanngjarnt að sér sé hegnt fyrir það að flytjast á milli staða í leit að meiri vinnu.

Samkvæmt vottorði B hafi kærandi verið í 100% starfshlutfalli á tímabilinu 3. október 2011 til 2. október 2013. Verði ekki ráðið af gögnum í máli kæranda að honum hafi ekki boðist full vinna hjá B. Það sé mat Vinnumálastofnunar að ástæða kæranda fyrir því að segja starfi sínu lausu, án þess að hafa annað starf fast í hendi, geti ekki talist gild ástæða í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar fyrir uppsögn á starfi. Kæranda hafi því borið að sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. febrúar 2014, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 13. mars 2014. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009 og 9. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi sagði sjálfur upp störfum sínum hjá B á C október 2013, án þess að vera með annað starf í hendi. Að sögn kæranda var ástæða uppsagnar flutningur hans frá C til D þar sem honum byðist meiri vinna á D en hann hefði ekki haft fulla vinnu á C. Í vottorði vinnuveitanda, dags. 11. október 2013, sem liggur fyrir í málinu, kemur fram að kærandi hafi starfað hjá B í 100% starfi frá 3. október 2011 til 2. október 2013. Engin gögn benda til annars en að kærandi hafi verið í fullri vinnu hjá B.

Með vísan til framanritaðs er það mat úrskurðarnefndarinnar að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. nóvember 2013 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 Brynhildur Georgsdóttir, formaður

 Hulda Rós Rúríksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum