Hoppa yfir valmynd
24. júlí 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 14/2014

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 24. júlí 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 14/2014.

 1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að í bréfi, dags. 21. maí 2013, kom fram að við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá sem gerð var skv. 4. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hefði komið í ljós að kærandi, A, væri skráður í nám jafnhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina. Í ljósi þess hefði greiðslum atvinnuleysisbóta verið hætt til kæranda með vísan til 52. gr. laganna. Kæranda var enn fremur gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2013 samtals að fjárhæð 204.509 kr. með 15% álagi skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 3. febrúar 2014. Vinnumálastofnun telur að vísa beri kærunni frá þar sem þriggja mánaða kærufrestur hafi verið liðinn.

Kærandi sendi úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða bréf, dags. 3. febrúar 2014, þar sem hann kærði ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 21. maí 2013. Í kærunni kemur fram að rétt sé að kærandi hafi verið skráður í nám en hann hafi verið í fjarnámi í Bí lok árs 2012 í bóklegu einkaflugmannsnámi. Þannig var náminu hagað að hann mætti einhverjar helgar í B og að því loknu mætti hann taka prófin einhvern tímann á næstu 18 mánuðum. Kærandi sé samt ekki í einu einasta námi en hafi eingöngu leyfi til að mæta í þessi próf sem haldin séu á tveggja til þriggja mánaða fresti. Telji kærandi hálfkjánalegt að þurfa að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur þegar hann hafi í raun ekki verið í námi.

Samkvæmt bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 21. maí 2013, ákvað stofnunin á grundvelli 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda, þar sem í ljós hafi komið að hann hefði verið skráður í nám jafnhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina. Hann var enn fremur talinn hafa fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2013 að fjárhæð 204.509 kr. með 15% álagi sem honum var tjáð að yrði innheimt skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í bréfi þessu var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og kærufrest.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. mars 2014, sent afrit af bréfi Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum til 8. apríl 2014. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 2. Niðurstaða

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæra kæranda, dags. 3. febrúar 2014, barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 7. febrúar 2014. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hætta greiðslum atvinnuleysisbóta til kæranda og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 204.509 kr. koma fram í bréfi stofnunarinnar, dags. 21. maí 2013, rúmum átta mánuðum áður en kæra barst úrskurðarnefndinni.

Með vísan til framanritaðs barst kæran að liðnum kærufresti.

Ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 Úrskurðarorð

Kæru A til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða er vísað frá.

 Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum