Hoppa yfir valmynd
27. maí 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 127/2013

Úrskurður

  Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 27. maí 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 127/2013.

 1.      Málsatvik og kæruefni

 Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 29. október 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 29. október 2013 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Umsóknin hafi verið samþykkt en með vísan til starfsloka hjá Hafnarfjarðarbæ sé réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknarinnar. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 1. nóvember 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun sé rétt.

 Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 11. september 2013. Í vottorði vinnuveitanda, útgefnu af Hafnarfjarðarbæ, dags. 11. september 2013, kemur fram að kærandi hafi starfað á leikskóla til 3. júlí. Í vottorðinu er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Í skýringabréfi kæranda til Vinnumálastofnunar, dags. 19. september 2013, kemur fram að kærandi hafi ráðið sig til starfa hjá leikskóla tímabundið frá september 2012 til 15. júlí 2013, eða fram að sumarlokum leikskólans þar sem hann hafi ætlað sér að fara í framhaldsnám haustið 2013. Í bréfi Vinnumálastofnunar til kæranda, dags. 7. október 2013, var kæranda bent á að ef ástæða starfsloka væri eigin uppsögn eða rekja mætti uppsögn til eigin sakar starfsmanns gæti atvinnuleitandi þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta skv. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda var veittur frestur til að koma að frekari athugasemdum áður en ákvörðun væri tekin í málinu. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda og var hin kærða ákvörðun tekin á fundi Vinnumálastofnunar 29. október 2013 eins og fram hefur komið.

 Í kæru kæranda, dags. 1. nóvember 2013, kemur fram að hann hafi ráðið sig til starfa hjá Hafnarfjarðarbæ tímabundið þar sem hann hafi ætlað sér í háskólanám haustið 2013. Hann hafi hætt að starfa hjá Hafnarfjarðarbæ 15. júlí 2013 og hafi flust tímabundið til B, 15. júlí til 29. ágúst 2013. Þar hafi hann tekið að sér tímabundna liðveislu drengs í 40% starfi frá 8. ágúst til 29. ágúst 2013. Hann hafi ítrekað sent inn atvinnuumsóknir út um allt, en ekkert orðið ágengt ennþá, en haldi þó ótrauður áfram að leita. Kærandi kveðst vona að mál hans verði tekið fyrir að nýju og að komið verði fram við hann af réttlæti með því að stytta umræddan biðtíma. Hann geri allt sem hann geti til þess að komast út á vinnumarkaðinn, til þess að geta hafið skólagöngu aftur haustið 2014.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. janúar 2014, er bent á að samkvæmt framlögðu vinnuveitendavottorði hafi kærandi sagt starfi sínu hjá Hafnarfjarðarbæ lausu. Vísað er til 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og bent á að í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í áðurnefndu frumvarpi segi meðal annars að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt beri að líta til þess að orðalagið „gildar ástæður“ beri að túlka þröngt í þessu samhengi og þar af leiðandi falli færri tilvik en ella þar undir. Af framangreindu sé ljóst að ef ekki liggi fyrir veigamiklar ástæður fyrir því að starfi sé sagt lausu beri umsækjanda um atvinnuleysisbætur að sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun greinir frá því að kærandi hafi fært fram þær skýringar til stofnunarinnar fyrir uppsögn sinni að hann hafi ráðið sig tímabundið til starfa hjá Hafnarfirði og að hann hafi ætlað sér að hefja nám að starfinu loknu. Aðstæður hafi breyst og hann hafi ákveðið að fresta námi sínu um eitt ár. Af framlögðu vinnuveitandavottorði frá Hafnarfirði megi ráða að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu og því hafi ekki verið um það að ræða að tímabundið ráðningarsamband hafi liðið undir lok. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda ekki talist til gildra ástæðna fyrir uppsögn hans á starfi. Kæranda hafi mátt vera ljóst að með því að segja starfi sínu lausu gæti verið erfiðleikum bundið að fá annað starf ef það væri ætlun hans að hefja nám á haustönn 2013.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. janúar 2014, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og var honum gefin kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 11. febrúar 2014. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

 2.      Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009 og 9. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi kveðst hafa ráðið sig tímabundið hjá Hafnarfjarðarbæ þar sem hann hafi ætlað sér í háskólanám haustið 2013. Hann kveðst hafa fallið frá áformum sínum um háskólanám á þessum tíma í ágúst 2013 heldur mundi hann fresta því. Í vinnuveitendavottorði Hafnarfjarðarbæjar kemur fram að kærandi sagði starfi sínu lausu þannig að ekki verður ráðið af því vottorði að um tímabundna ráðningu hafi verið að ræða. Með vísan til framanritaðs og röksemda sem færðar hafa verið fram fyrir hinni kærðu ákvörðun af hálfu Vinnumálastofnunar, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

  Úrskurðarorð

 Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 29. október 2013 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúríksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum