Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 92/2013

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 27. febrúar 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 92/2013.

 

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 4. september 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 2. september 2013 fjallað um höfnun hans á atvinnutilboði hjá B. Vegna höfnunarinnar var tekin sú ákvörðun að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, mótteknu 10. september 2013. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun sé rétt.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 26. júní 2013.

Ferilskrá kæranda var send til fyrirtækisins B fyrir milligöngu vinnumiðlara Vinnumálastofnunar. Kærandi skrifaði undir boðunarblað 29. júlí 2013 þar sem hann staðfesti að honum bæri að hafa samband við B fyrir 31. júlí 2013. Á boðunarblaðið skrifaði kærandi jafnframt „er búinn að falast eftir vinnu hjá C, hef von um að fá vinnu þar þegar vinna hefst eftir sumarleyfi“. Vinnumálastofnun barst staðfesting, 29. júlí 2013, á því að kærandi ætti að mæta í atvinnuviðtal hjá B kl. 12.30 30. júlí 2013. Seinni part 30. júlí 2013 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar frá B þess efnis að kærandi hefði ekki mætt í boðað viðtal og var mál hans því sent áfram til Greiðslustofu Vinnumálastofnunar.

Vinnumálastofnun óskaði með bréfi, dags. 9. ágúst 2013, eftir skriflegum skýringum kæranda á höfnun hans á atvinnuviðtali. Skýringarbréf kæranda barst stofnuninni 16. ágúst 2013 þar sem fram kemur að kærandi hafi verið búinn að falast eftir vinnu hjá C og hefði hann von um að fá þá vinnu þegar vinna hæfist eftir sumarfrí.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 3. október 2013, segir að mál þetta varði 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Bent er á að í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram í athugasemdum við 57. gr. laganna að mikilvægt hafi þótt að sömu áhrif fylgdu því að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar og ákvörðun um að taka ekki starfi sem byðist. Atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og því megi leggja þá ákvörðun að jöfnu við það að hafna starfi. Einnig séu þar tilgreindar ástæður sem geti komið til greina sem gildar skýringa við höfnun á starfi. Vinnumálastofnun sé heimilt samkvæmt lögunum að líta til aldurs, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu. Enn fremur sé heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum. Sé fjallað um að eðlilegt þyki að þeir sem tryggðir séu samkvæmt frumvarpinu fái fjögurra vikna svigrúm til að leita sér að því starfi sem þeir helst kjósi sér. Hafi sá tími verið liðinn er kærandi hafi hafnað umræddu atvinnuviðtali.

Af gögnum þessa máls sé ljóst að kærandi hafi skrifað undir boðunarblað um að hafa samband við B fyrir 31. júlí 2013 vegna boðs um atvinnuviðtal hjá fyrirtækinu. Jafnframt liggi fyrir að kærandi hafi verið boðaður í atvinnuviðtal 30. júlí kl. 12.30 sem hann hafi ekki mætt í. Skýringar kæranda á fjarvist sinni í atvinnuviðtalið hafi verið þær að hann væri búinn að falast eftir vinnu hjá C eftir sumarleyfi. Af samskiptasögu Vinnumálastofnunar sé ljóst að kærandi hafi hafið störf hjá C 24. september 2013. Af gögnum málsins og skýringum kæranda sé ljóst að þegar kærandi hafi verið boðaður í atvinnuviðtal hjá B hafi hann ekki tryggt sér starf hjá C heldur hafi hann aðeins verið búinn að falast eftir starfi þar en væri ekki kominn með starfið.

Að mati Vinnumálastofnunar verði að telja að í umrætt sinn hafi kærandi hafnað því að fara í atvinnuviðtal í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar án gildra ástæðna.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 10. október 2013, gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 24. október 2013. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2. Niðurstaða

Í 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um það þegar starfi eða atvinnuviðtali er hafnað. Í 1. mgr. greinarinnar segir að sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama eigi við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.

Í athugasemdum við 57. gr. laganna í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að mikilvægt hafi þótt að sömu áhrif fylgdu því að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hefði sömu áhrif og ákvörðun um að taka ekki starfi sem byðist. Atvinnuviðtal sé meginforsenda þess að atvinnuleitanda verði boðið starf og því megi leggja þá ákvörðun að jöfnu við það að hafna starfi.

Kærandi skrifaði undir boðunarblað um að hafa samband við Bfyrir 31. júlí 2013 vegna boðs um atvinnuviðtal og hann var boðaður í atvinnuviðtal 30. júlí 2013. Hann mætti ekki í viðtalið. Skýringar kæranda á því voru þær að hann væri búinn að falast eftir vinnu hjá C. Kærandi hóf þar störf 24. september 2013. Fyrir liggur að þegar kærandi var boðaður í atvinnuviðtal hjá Íslandspósti hafði hann ekki tryggt sér starfið hjá C. Þar sem kærandi hafði áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar sætir hann ítrekunaráhrifum, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og er réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í þrjá mánuði.

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hafnaði kærandi atvinnuviðtali í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest skv. 1. mgr. 57. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Úr­skurðar­orð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 2. september 2013 í máli A þess efnis að fella niður bótarétt hans frá og með 4. september 2013 í þrjá mánuði er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, for­maður
Hulda Rós Rúriksdóttir
Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum