Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 66/2013

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 7. janúar 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 66/2013.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 27. maí 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum 24. maí 2013 fjallað um rétt hennar til atvinnuleysisbóta. Tekin hafi verið sú ákvörðun að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar. Samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis á tímabilinu 10. mars til 2. apríl 2013 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili, sbr. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hún hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að kærandi eigi ekki tilkall til atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefur, frá því hún þáði síðast atvinnuleysisbætur, starfað í a.m.k. 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði, sbr. 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá var kærandi krafin um ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 10. mars til 2. apríl 2013 skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 19. júní 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 6. júní 2012.

 


 

Vinnumálastofnun bárust upplýsingar um að kærandi hafi farið erlendis í mars 2013 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Með bréfi, dags. 3. mars 2013, var kæranda boðið að skila inn skýringum á ótilkynntri dvöl erlendis innan sjö daga. Kærandi skilaði inn skýringum í tölvupósti frá 5. mars 2013 ásamt afriti af flugfarseðlum. Samkvæmt þeim var kærandi erlendis á tímabilinu 10. mars til 2. apríl 2013. Kærandi hafði ekki tilkynnt um ferð sína til Vinnumálastofnunar áður en hún fór. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar 24. maí 2013 og var hin kærða ákvörðun tekin. Kæranda var tilkynnt um hina kærðu ákvörðun í bréfi, dags. 27. maí 2013.

 

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 19. júní 2013, að um leið og henni hafi orðið ljós þau mistök sín að tilkynna ekki Vinnumálastofnun um för sína erlendis hafi hún gefið stofnuninni þegar í stað allar upplýsingar um ferðir sínar sem og afrit af flugmiðum. Kærandi bendir sérstaklega á að hún hafi ekki verið í vinnu þann tíma sem hún dvaldi í Svíþjóð en þá hafi einungis verið tveir mánuðir eftir af rétti hennar til atvinnuleysisbóta. Með ákvörðuninni hafi stofnunin svipt hana næstum þriggja mánaða bótarétti fyrir mistök hennar. Ef hún hefði tilkynnt um fjarveru sína hefði réttur hennar færst aftur um einn mánuð. Því telji hún að hún hafi ekki hlunnfarið Vinnumálastofnun á neitt hátt. Rétti hennar til atvinnuleysisbóta hefði lokið einum mánuði fyrr vegna þess sem gerðist. Kærandi telur jafnframt að ósamræmi sé á milli alvarleika brots hennar og ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 7. ágúst 2013, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysisbóta þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

                         

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Fyrir liggi í máli þessu að kærandi hafi verið stödd í Svíþjóð á tímabilinu 10. mars til 2. apríl 2013. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína, líkt og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun greinir frá því að í skýringarbréfi til stofnunarinnar, dags. 5. mars 2013, segi kærandi að hún hafi verið í Svíþjóð í mars og biðst afsökunar á því að hafa ekki látið vita um för sína. Stofnunin bendir á að á starfsleitarfundum hjá stofnuninni sé vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysisbóta. Þessar upplýsingar sé einnig að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Þá vekur stofnunin athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni er tilkynnt um slíkar ferðir fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að, nema fyrir liggi U-2 vottorð hjá stofnuninni, fái hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dvelst erlendis. Tilkynning til Vinnumálastofnunar eftir utanlandsför verði ekki jafnað við tilkynningar fyrir brottför.

 

Vinnumálastofnun bendir á að með 14. gr. laga nr. 142/2012 hafi 4. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verið breytt. Af skýru orðalagi ákvæðisins sé ljóst að þegar aðili sem hefur þegið atvinnuleysisbætur í 30 mánuði eða lengur og atvik eigi sér stað sem leiðir til þess að hann skuli sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. þá skuli hann ekki eiga rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna. Í 31. gr. sé kveðið á um að til að nýtt bótatímabil geti myndast þurfi atvinnuleitandi að hafa starfað samfellt í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur að nýju.

 

Vinnumálastofnun bendir á að kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur í 33 mánuði þegar hún fór erlendis án þess að tilkynna það til Vinnumálastofnunar og því hafi ótilkynnt dvöl hennar erlendis fallið undir ákvæði 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun bendir á að vanþekking kæranda á þeim lögum og reglum sem gildi um greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar geti ekki leitt til þess að Vinnumálastofnun geti farið á svig við ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar í máli kæranda.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. ágúst 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. sama mánaðar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. október 2013, var kæranda tilkynnt um að mál hennar myndi tefjast hjá nefndinni sökum mikils málafjölda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi.

 

Í 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kom inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 14. gr. laga nr. 142/2012 og tók gildi 1. janúar 2013 segir:

 

Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 30 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. mgr. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.

 

Í 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

 

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi stödd erlendis á tímabilinu frá 10. mars til 2. apríl 2013, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili en kærandi hafði þá þegið greiðslur atvinnuleysisbóta í 33 mánuði.

 

Af hálfu kæranda kemur meðal annars fram að hún hafi fyrir mistök ekki látið vita og að hún telji ákvörðun Vinnumálastofnunar ekki í samræmi við alvarleika brots hennar.

 


 

 

Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sína um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

 

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr., sbr. 4. mgr., 59. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr., sbr. 4. mgr., 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fortakslaust en í því felst að hvorki Vinnumálastofnun né úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða getur tekið ákvörðun um vægari viðurlög í máli kæranda en ákvæðið felur í sér.

 

Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún þáði á meðan hún var stödd erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, að fjárhæð samtals 105.005 kr.

 

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 


 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 24. maí 2013 í máli A um að hún skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefur starfað a.m.k. 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 10. mars til 2. apríl 2013, að fjárhæð samtals 105.005 kr. er staðfest.

 

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum