Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 67/2013.

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 7. janúar 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 67/2013.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 21. maí 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum 15. maí 2013 fjallað um greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá sem gerð var skv. 4. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi komið í ljós að kærandi væri skráð í nám jafnhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina. Í ljósi þess hafi greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar verið hætt með vísan til 52. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Jafnframt taldi Vinnumálastofnun að kærandi hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu frá 1. janúar til 30. apríl 2013 samtals að fjárhæð 714.132 kr. að meðtöldu 15% álagi sem henni bæri að endurgreiða skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þessari ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 30. júní 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 1. nóvember 2011.

 

Við samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar við nemendaskrár viðurkenndra menntastofnana og skóla á háskólastigi sem gerð var skv. 4. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kom í ljós að kærandi var við nám samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur og án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina.

 


 

 

Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 19. apríl 2013, var kæranda tilkynnt um framangreinda samkeyrslu gagnagrunna og óskað eftir skýringum hennar. Jafnframt var henni bent á að slíkt gengi í berhögg við 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að svo gæti farið að hún myndi missa rétt sinn til atvinnuleysisbóta.

 

Með bréfi, dags. 28. apríl 2013, bárust skýringar frá kæranda ásamt staðfestingu á einingafjölda frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Þar kemur meðal annars fram ástæða þess af hverju kærandi skráði sig í námið og að ekki væri um fullt nám að ræða. Kærandi hafi átt fjögur fög eftir af námi sínu eða ellefu einingar. Sex einingar hafi hún klárað fyrir páska en fimm eftir páska. Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 30. júní 2013, að námið hafi verið sex einingar fyrir páska og fimm einingar eftir páska. Fullt nám séu 20 einingar. Námshlutfall fyrir páska hafi verið 30% en 25% eftir páska. Kærandi kveðst hafa verið í fullri atvinnuleit þrátt fyrir að hafa tekið þessi fög og hún hefði auðveldlega getað ráðið sig í starf með náminu þar sem hún hafi alltaf getað hætt því, til dæmis um páskana.

 

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 7. ágúst 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Vísar stofnunin í c-lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um skilgreiningu á hugtakinu námi. Vinnumálastofnun vísar einnig til 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en þar er mælt fyrir um nám.

 

 

Vinnumálastofnun telur ljóst af tilvitnuðum ákvæðum að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum við frumvarp það sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé í umfjöllun um 52. gr. frumvarpsins því haldið fram að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Auk þess sé eitt af almennum skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

 

Samkvæmt 5. gr. reglugerðar um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki, nr. 12/2009, sé Vinnumálastofnun heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem sé tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Forsenda þess að slíkur samningur sé gerður sé að viðkomandi einstaklingur óski eftir því í upphafi annar og að því gefnu að hann uppfylli önnur skilyrði.

 

Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá háskóla og framhaldsskóla landsins kom í ljós að kærandi lagði stund á nám við Fjölbrautaskólann við Ármúla á vorönn 2013. Samkvæmt gögnum frá skólanum stundaði kærandi ellefu eininga nám við skólann. Í skýringarbréfi sínu taki kærandi fram að hún sé að taka áfanga sem hana vanti til að geta klárað nám í nuddi. Ekki sé um að ræða fullt nám heldur ellefu einingar, sex einingar fyrir páska og fimm einingar eftir páska. Kærandi hafi tekið fram að með því að ljúka náminu myndi hún auka líkur á því að fá vinnu.

 

Vinnumálastofnun bendir á að kærandi hafi aldrei upplýst Vinnumálastofnun um að hún hefði hafið nám við Fjölbrautaskólann og hafi aldrei sóst eftir því að gera námssamning við stofnunina vegna náms síns. Það hafi ekki verið fyrr en við samkeyrslu gagnagrunns Vinnumálastofnunar við nemendaskrá Fjölbrautaskólann við Ármúla sem í ljós kom að kærandi hafi stundað nám við skólann frá upphafi vorannar 2013. Það sé því mat stofnunarinnar að meginregla sú er fram kemur í 1. mgr. 52. gr. eigi við um tilvik kæranda. Í kæru sinni taki kærandi fram að hún telji að ekki sé ástæða fyrir því að hún eigi að greiða fullar bætur til baka. Vinnumálastofnun vísar til 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar er fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laganna og í samræmi við fyrri úrskurði úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, svo sem í málum nr. 101/2012 og 123/2012, beri atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er kærandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Beri kæranda því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. janúar til 30. apríl 2013, samtals að fjárhæð 714.132 kr. með 15% álagi.

 

 


 

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. ágúst 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. ágúst 2013. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. október 2013, var kæranda tilkynnt um að mál hennar myndi tefjast hjá nefndinni sökum mikils málafjölda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 

Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar.

 

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

 

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

 


 

 

Þá segir í c-lið 3. gr. sömu laga:

 

Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.

 

Í athugasemdum við 52. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám.

 

Ljóst er að meginregla 1. mgr. 52. gr. á við um kæranda, þ.e. hún var skráð í ellefu eininga nám við Fjölbrautaskólann við Ármúla á vorönn 2013. Undanþáguheimildir 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna koma eingöngu til skoðunar þegar nám er á háskólastigi og eiga þær því ekki við í máli kæranda.

 

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og forsendna Vinnumálastofnunar er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfyllir ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Því er staðfest sú ákvörðun að kærandi endurgreiði ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi samtals að fjárhæð 714.132 kr.



 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. maí 2013 í máli A um stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga er staðfest. Kærandi skal endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð samtals 714.132 kr. með inniföldu 15% álagi.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum