Hoppa yfir valmynd
10. desember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 86/2013.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 10. desember 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 86/2013.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 9. júlí 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hún hafi verið staðin að því að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 1. september 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. október 2012.

 

Vinnumálastofnun sendi kæranda erindi, dags. 4. júní 2013, þar sem henni var tilkynnt um að samkvæmt gögnum frá aðilum vinnumarkaðarins hafi hún verið við störf hjá fyrirtækinu B  27. maí 2013 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og tilkynna það ekki til Vinnumálastofnunar. Í bréfinu var kæranda veittur frestur til 11. júní 2013 til að koma að skýringum.

 

Vinnumálastofnun bárust skýringar frá kæranda í tölvupósti 5. júní 2013, þar sem fram kemur að hún hefði 19. mars 2013 skráð inn á „mínar síður“ tilkynningu um tekjur vegna 20% hlutastarfs hjá C, en rekstraraðili þess sé B. Kærandi hafi talið sig með þessu uppfylla skyldu sína samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Síðar sama dag barst annar tölvupóstur frá kæranda þar sem hún tók fram að eftir að hafa sent fyrri tölvupóstinn hafi hún athugað „mínar síður“ aftur og séð að hún hafi ekki farið neðst á síðuna og ýtt á merkinguna um að senda tilkynninguna. Kærandi taki einnig fram í tölvupóstinum að hún hefði tekið fram þegar hún sótti námskeið á vegum VR að hún væri í hlutastarfi.

 

Kæranda var tilkynnt um hina kærðu ákvörðun með bréfi, dags. 9. júlí 2013. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi fyrir ákvörðuninni með tölvupósti 16. júlí 2013 og var kæranda sendur rökstuðningur Vinnumálastofnunar í bréfi, dags. 26. júlí 2013.

 

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 1. september 2013, að hún hafi verið í 20% hlutastarfi samhliða atvinnuleysisbótum en fyrir klaufaskap hafi hún ekki komið tilkynningu um hlutastarfið til skila til Vinnumálastofnunar. Kærandi greinir frá því að á fundi hjá VR hafi verið farið yfir að tilkynna þyrfti um allar tekjur á meðan atvinnuleit stæði yfir. Kærandi hafi talið sig vera búna að skrá þær inn en hafi verið of upptekin við að lesa yfir upplýsingarnar að henni hafi sést yfir að ýta á hnapp merktan því að senda tilkynninguna. Rætt hafi verið um samkeyrslu við skattinn og því hafi kærandi vitað að þær tekjur sem hún myndi afla kæmu í ljós hjá Vinnumálastofnun. Kærandi kveðst því ekkert hafa verið að fela það að hún hafi verið við störf hjá C og þegar aðilar vinnumarkaðarins hafi komið hafi hún reyndar verið búin að ljúka störfum þann daginn og verið að fá sér að borða. Kærandi greinir jafnframt frá því að þau laun sem hún hafi fengið fyrir störf sín hafi verið undir frítekjumörkum atvinnuleysisbóta. Þá hafi hún farið á námskeið hjá Mími símenntun í gegnum VR og þar hafi hún tekið fram að hún væri í hlutastarfi til þess að námskeiðið myndi ekki rekast á við vinnutímann hjá henni.

 

Í greinargerð til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 18. september 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Vinnumálastofnun greinir frá því að mál þetta varði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kærandi hafi verið í starfi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún fékk greiddar atvinnuleysistryggingar, án þess að tilkynna til  stofnunarinnar að atvinnuleit væri hætt samkvæmt 10. gr. eða 35. gr. a. laganna.

Vinnumálastofnun bendir á að 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar taki á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Vinnumálastofnun vísar til þess að í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfar á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun bendir á að samkvæmt gögnum málsins, sbr. meðal annars upplýsingar frá kæranda sjálfum, hafi hún verið í 20% hlutastarfi hjá C og rekstraraðili þess sé B, samhliða atvinnuleysisbótum. Stofnuninni hafi aldrei borist tilkynning um að kærandi hefði hafið störf hjá fyrirtækinu áður en aðilar vinnumarkaðarins fóru í eftirlitsferð á vinnustað kæranda. Jafnframt hafi stofnuninni ekki borist tilkynning um tekjur vegna starfa hennar fyrir fyrirtækið fyrr en eftir að stofnunin hafði sent henni bréf og óskað eftir upplýsingum um vinnu hennar fyrir B.

Þá bendir Vinnumálastofnun á að kærandi greini frá því í skýringarbréfi sínu að hún hafi verið búin að skrá inn tilkynningu um tekjur í gegnum „mínar síður“ en hún hafi ekki sent tilkynninguna með fullnægjandi hætti. Kærandi hafi áður sent inn tilkynningu vegna tekna í gegnum stofnunina 11. febrúar 2013 og því sé ljóst að kærandi hafði þekkingu á því fyrirkomulagi sem var á tilkynningum um tekjur hjá Vinnumálastofnun. Vinnumálastofnun bendir á að úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hafi ennfremur komist að þeirri niðurstöðu í máli nr. 93/2012 að mistök atvinnuleitanda við að senda inn tilkynningu um tekjur sé á ábyrgð atvinnuleitanda en ekki Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun fallist því ekki á skýringar kæranda um að hún hafi verið búin að tilkynna um vinnu sína hjá B.

Vinnumálastofnun bendir á að kærandi haldi því ennfremur fram að hún hafi látið vita þegar hún sótti námskeið á vegum Mímis í gegnum VR um vinnutíma sinn svo námskeiðstími hennar myndi ekki skarast við vinnutíma hennar. Vinnumálastofnun greinir frá því að hún hafi ekki fundið neitt í gögnum sínum eða hjá VR sem sýni fram á að kærandi hafi rætt við þjónustufulltrúa VR eða Vinnumálastofnunar. Hugsanlega gæti kærandi hafa rætt þetta við leiðbeinanda á námskeiði Mímis en ekki sé hægt að jafna því við tilkynningu um vinnu til Vinnumálastofnunar, eða eftir atvikum til VR, þar sem ábyrgð námskeiðshaldara snúist einungis að því staka námskeiði og skili þeir almennt ekki inn upplýsingum til Vinnumálastofnunar eða VR um annað en mætingu atvinnuleitanda á námskeið.

Jafnframt hafi kærandi borið fyrir sig að þær tekjur sem hún hafi haft fyrir mars, apríl og maí hafi alltaf verið undir frítekjumarki 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistrygginga og því hefðu tekjur hennar aldrei komið til skerðingar á bótum. Vinnumálastofnun bendir á í því samhengi að reglur 36. gr. laganna um skerðingu vegna tekna hafi engin áhrif á þær reglur sem gildi um tilkynningu um vinnu, sbr. meðal annars úrskurð úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í máli nr. 159/2012.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur sbr. 10. gr. og 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. október 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum til 16. október 2013. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess, er síðar varð að lögum nr. 134/2009, kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.

Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi fyrsta málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:

   

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að fyrsti málsliður ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.

Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í fyrsta málslið ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir m.a. á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.

 

Hvort sem háttsemi fellur undir fyrsta eða annan málslið 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.

Samkvæmt gögnum málsins, sbr. meðal annars upplýsingum frá kæranda sjálfri, starfaði hún hjá C sem rekinn er af B. Af hálfu kæranda er því haldið fram að hún hafi greint frá hlutastarfi sínu á námskeiði hjá Mími. Ekkert í gögnum málsins styður þá fullyrðingu kæranda og ekki er unnt að jafna tilkynningu til leiðbeinanda á námskeiði við tilkynningu til Vinnumálastofnunar í skilningi 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Af hálfu kæranda er jafnframt haldið fram að henni hafi yfirsést að ýta á hnappinn senda tilkynningu og því hafi tilkynning hennar um hlutastarfið ekki farið til Vinnumálastofnunar. Tilkynning um hlutastarf kæranda barst ekki til Vinnumálastofnunar og er það mat úrskurðarnefndar að það sé á ábyrgð kæranda að koma upplýsingum um vinnu sína til Vinnumálastofnunar.

Í 36. gr. laga um atvinnuleysisbætur er fjallað um frádrátt vegna tekna bótaþega, meðal annars vegna tilfallandi vinnu. Í 4. mgr. ákvæðisins segir að frítekjumark tekna sé 59.047 kr. á mánuði, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1219/2008 um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysisbóta. Þessi ákvæði hafa engin áhrif á þær reglur er gilda um tilfallandi vinnu. Ekki er því unnt að túlka reglur um frítekjumark á þann veg að ekki þurfi að tilkynna um tilfallandi vinnu nema laun fyrir hana fari upp fyrir áðurnefnt frítekjumark.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda, sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hún starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða að atvinnuleit hafi verið hætt. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

 

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 9. júlí 2013 í máli A þess efnis að hún skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum