Hoppa yfir valmynd
3. desember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 39/2013

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 3. desember 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 39/2013.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 4. febrúar 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 31. janúar 2013, fjallað um rétt hennar hjá stofnuninni. Tekin hefði verið sú ákvörðun að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda frá og með 31. janúar 2013 í þrjá mánuði, sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 59. gr. og 61. gr., sbr. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem kærandi lét hjá líða að tilkynna um tekjur frá B. Kærandi vildi ekki una ákvörðuninni og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, dags. 8. apríl 2013. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 20. febrúar 2012.

 

Við samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra komu fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur kæranda vegna vinnu hjá B og var kæranda tilkynnt um það með bréfi, dags. 7. janúar 2013. Í bréfinu var óskað eftir skriflegum skýringum á hinum ótilkynntu tekjum. Kærandi hafði samband við Vinnumálastofnun 15. janúar 2013 vegna málsins og tók hún fram að hún hefði skilað inn tilkynningu um tekjur í gegnum heimasíðu stofnunarinnar. Engin slík tilkynning hafði þó borist Vinnumálastofnun áður en bréf stofnunarinnar, dags. 7. janúar 2013, var sent út heldur barst tilkynning frá kæranda síðar eða 16. janúar 2013. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar 31. janúar 2013 og var kæranda tilkynnt um hina kærðu ákvörðun með bréfi, dags. 4. febrúar 2013.

 

Kærandi sendi tölvupóst 1. febrúar 2013, þar sem fram kemur að hún hafi talið sig hafa tilkynnt um tekjurnar í gegnum „Mínar síður“ á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Þegar hún hafi fengið bréf Vinnumálastofnunar í janúar um að hún hefði ekki tilkynnt tekjurnar hafi hún athugað í kjölfarið hvað væri inni á „Mínum síðum“ og allt sem  hún hafi sett þar inn hafi verið þar ennþá. Kveðst hún hafa hringt 16. janúar 2013 og starfsmaðurinn hefði sagt við hana að þetta sæist þarna inni en það væri eins og þetta hefði ekki skilað sér inn. Jafnframt hafi starfsmaðurinn sagt henni að ýta á takkann senda inn. Starfsmaðurinn hefði fullyrt að þetta hefði ekki afleiðingar.

 

Mál kæranda var tekið fyrir að nýju og með bréfi, dags. 15. febrúar 2013, var kæranda tilkynnt að beiðni hennar um endurupptöku á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hefði verið hafnað þar sem ekki væri séð að ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 31. janúar 2013, hefði verið byggð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum.

 

Kærandi greinir frá því í kæru að hún hafi fengið tilfallandi vinnu í október 2012 á B í Hafnarfirði en faðir hennar vinni þar og hann hafi beðið hana að koma þar í vinnu sökum manneklu. Vinnan hafi staðið yfir í rúma tvo mánuði. Kærandi taldi að hún hefði tilkynnt um tekjurnar samviskusamlega en skildi ekki af hverju atvinnuleysisbæturnar lækkuðu ekki í samræmi við það. Kærandi kveðst hafa hringt til Vinnumálastofnunar eftir að hún hafi fengið bréf stofnunarinnar í janúar 2013 og starfsmaðurinn sem hún talaði við hafi sagt við hana að þetta væri sökum þess að hún hefði ekki tilkynnt um tekjurnar en þegar starfsmaðurinn fletti kæranda upp hafi sést að þetta væri skráð á „Mínum síðum“ og búið að vera þar lengi. Annað hvort hefði komið villa í kerfið eða hún hefði ekki ýtt á takka til að staðfesta.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 11. júní 2013, vísar stofnunin til þess að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Ákvörðun um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun bendir á að á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysisbóta hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin fái réttar upplýsingar um hagi viðkomandi, sér í lagi þær upplýsingar sem geta ákvarðað rétt aðila til atvinnuleysisbóta og í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Vinnumálastofnun vísar til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans, eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, svo sem um tilfallandi vinnu, hversu lengi vinnan standi yfir og tekjur fyrir umrædda vinnu.

 

Vinnumálastofnun bendir á að einnig sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar komi fram að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 segi meðal annars að „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna“.

 

Vinnumálastofnun telur að af ákvæðunum sé ljóst að hinum tryggða beri að tilkynna fyrirfram um tilfallandi vinnu til stofnunarinnar. Vinnumálastofnun vísar til 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt sé fyrir um hvernig þessi tilkynning á tilfallandi vinnu skuli fara fram. Þar segi að tilkynna skuli til Vinnumálastofnunar um hina tilfallandi vinnu með að minnsta kosti eins dags fyrirvara. Heimilt sé þó að tilkynna um vinnuna samdægurs enda sé um tilvik að ræða sem sé þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki hafi verið unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skuli koma fram upplýsingar um hver vinnan sé, hvar hún fer fram og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu sé ætlað að vara. Af framangreindum lagaákvæðum megi ráða að ekki sé heimilt að tilkynna um tilfallandi vinnu eftir á enda sé ákvæðið ekki hugsað til þess að koma til móts við hlutastarf hins tryggða. Sé kærandi í föstu hlutastarfi beri honum að tilkynna það starf til stofnunarinnar. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar sé að finna greinargóðar leiðbeiningar um tilkynningu um vinnu og að auki sé farið ítarlega yfir þær reglur á svokölluðum kynningarfundum stofnunarinnar.

 

Í kjölfar samkeyrslu Vinnumálastofnunar við gagnagrunn ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur hjá kæranda vegna októbermánaðar 2012. Í framhaldinu hafi kærandi skilað tilkynningu um tekjur vegna tilfallandi vinnu hjá B í október 2012. Kærandi fullyrðir að hún hafi skilað inn tilkynningu um tekjur áður en samkeyrsla gagnagrunns Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra fór fram í janúar 2013. Engin slík tilkynning hafi þó borist fyrr en 16. janúar s.á. Vinnumálastofnun greinir frá því að kærandi telji sig hafa verið búna að fylla tilkynninguna rétt út í gegnum „Mínar síður“. Stofnunin bendir á að ljóst sé af samskiptasögu kæranda við stofnunina að hún skilaði inn tilkynningum um tekjur vegna starfs í júlí 2011 og bendir á færslu 16. ágúst 2011. Af þessu sé ljóst að kærandi hafði áður skilað inn tilkynningu um tekjur og hafi gert það þá á réttan hátt.

 

Ljóst sé af gögnum málsins og þeim bréfum sem kærandi hafi skilað inn að hún starfaði hjá B á árinu 2012 og þáði tekjur þaðan án þess að tilkynna það til Vinnumálastofnunar. Tilkynning sem berist eftir að samkeyrsla við ríkisskattstjóra hafi átt sér stað geti ekki talist tilkynning um tilfallandi vinnu í samræmi við 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar enda tekið fram í þeirri grein að tilkynna skuli um tilfallandi vinnu með að minnsta kosti eins dags fyrirvara eða samdægurs í vissum tilfellum.

 

Vinnumálastofnun bendir einnig á að í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi að sá sem starfi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fái greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Feli ákvæðið í sér þau viðurlög að atvinnuleitandi eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Ljóst sé að atvik í máli kæranda falli undir verknaðarlýsingu 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem biðtímaákvörðun hafi þegar verið tilkynnt kæranda og þar sem 60. gr. laganna feli í sér mun þyngri viðurlög fyrir kæranda telji Vinnumálastofnun að ekki standi efni til að breyta ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 14. júní 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 1. júlí 2013. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

Með bréfi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 12. ágúst 2013, var kæranda tilkynnt um að mál hennar myndi tefjast sökum mikils málafjölda hjá nefndinni.

 

2.

Niðurstaða

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur síðast 1. mars 2011. Með bréfi, dags. 7. janúar 2012, var kæranda gerð grein fyrir því að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur á kæranda vegna vinnu hjá B. Óskað var skriflegra upplýsinga um ótilkynntar tekjur. Stofnuninni bárust

skýringar frá kæranda en sú ákvörðun var tekin að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda um þriggja mánaða skeið, sbr. 1. mgr. 59. gr., og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur kærandi borið því við að hún hafi talið að hún hefði tilkynnt um starf sitt hjá B undir „Mínum síðum“ á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

 

Ekki er í gögnum málsins, þ.m.t. samskiptasögu kæranda við Vinnumálastofnun, upplýsingar þess efnis að kærandi hafi greint frá starfi sínu á B áður en hún hóf þar störf. Þegar atvinnuleitandi sinnir tilfallandi vinnu, samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysisbóta, ber honum að upplýsa um slíkt fyrir fram, sbr. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Brjóti atvinnuleitandi gegn þessu ákvæði kann hann að sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. til dæmis úrskurð úrskurðarnefndarinnar frá 7. desember 2010 í máli nr. 80/2010. Sinni atvinnuleitandi hlutastarfi, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur, kann hann einnig að sæta viðurlögum skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi þess að kærandi var í starfi, eftir að hún hóf töku atvinnuleysisbóta, og án þess að hún upplýsti fyrir fram um starfið, verður að leggja til grundvallar að 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi fremur við í máli hennar en 59. gr. laganna. Leggja verður til grundvallar að hin kærða ákvörðun hafi verið reist á röngum lagagrundvelli, þ.e. beita átti fremur 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í málinu en 59. gr. laganna. Þar sem viðurlög skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru afar íþyngjandi í garð atvinnuleitenda verður að veita þeim kost á að leita endurskoðunar á ákvörðun sem reist er á ákvæðinu. Af þessari ástæðu getur úrskurðarnefndin ekki afgreitt málið á þeim lagagrundvelli. Því verður hin kærða ákvörðun ómerkt og Vinnumálastofnun falið að taka málið til löglegrar meðferðar.

 

 

Úrskurðarorð

 

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 31. janúar 2013 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hennar í þrjá mánuði er ómerkt og málinu vísað aftur til Vinnumálastofnunar til löglegrar meðferðar.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum