Hoppa yfir valmynd
29. október 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 35/2013.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 29. október 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 35/2013.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 12. febrúar 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum sama dag fjallað um greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá sem gerð var skv. 4. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi komið í ljós að kærandi væri skráð í nám jafnhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina. Í ljósi þess hafi greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar verið hætt með vísan til 52. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Jafnframt taldi Vinnumálastofnun að kærandi hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu frá 1. september til 21. nóvember 2012 að fjárhæð 274.558 kr. ásamt 15% álagi eða samtals 315.742 kr. sem henni bæri að endurgreiða skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þessari ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 2. apríl 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð. Vinnumálastofnun telur að staðefsta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun 1. mars 2012.

 

Við samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar við nemendaskrár viðurkenndra menntastofnana og skóla á háskólastigi sem gerð var skv. 4. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kom í ljós að kærandi var við nám samhliða því að fá greiddar atvinnuleysistryggingar og án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 16. janúar 2013, var kæranda tilkynnt um framangreinda samkeyrslu gagnagrunna og óskað eftir skýringum hennar. Jafnframt var henni bent á að slíkt gengi í berhögg við 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að svo gæti farið að hún myndi missa rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Ekki bárust skýringar frá kæranda og á fundi stofnunarinnar 12. febrúar 2013 var hin kærða ákvörðun tekin þar sem kærandi var skráð í 30 ECTS-eininga nám við Háskólann á Akureyri.

 

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 2. apríl 2013, að hún hafi valið það að fara í fjarnám þar sem hún hafi alltaf ætlað sér að fara að vinna. Hún hafi sótt um tvö störf, annað í október og hitt í nóvember en í lok nóvember hafi hún athugað hvort hún gæti fengið námslán og það hafi ekki gengið í gegn fyrr en um miðjan desember. Því hafi kærandi ekki skráð sig hjá Vinnumálastofnun 20.‒25. desember 2012 en þá hafi hún sjálf verið búin að taka þá ákvörðun að fara ekki að vinna.

 

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 7. júní 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Vísar stofnunin í c-lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um skilgreiningu á hugtakinu námi. Vinnumálastofnun vísar einnig til 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en þar er mælt fyrir um nám. Vinnumálastofnun telur ljóst af tilvitnuðum ákvæðum að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum við frumvarp það sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé í umfjöllun um 52. gr. frumvarpsins því haldið fram að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Auk þessa sé eitt af almennum skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Í 5. gr. reglugerðar nr. um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki, 12/2009, sé Vinnumálastofnun heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem sé tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Forsenda þess að slíkur samningur sé gerður sé að viðkomandi einstaklingur óski eftir því í upphafi annar og að því gefnu að hann uppfylli önnur skilyrði.

 

Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá háskóla og framhaldsskóla landsins kom í ljós að kærandi lagði stund á nám við Háskólann á Akureyri á haustönn 2012. Samkvæmt gögnum frá háskólanum stundaði kærandi 30 ECTS-eininga nám við skólann en slíkt sé lánshæft samkvæmt upplýsingum frá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Þar sem háskólanám kæranda hafi numið 30 ECTS-einingum teljist það vera það umfangsmikið að ekki séu skilyrði fyrir gerð námssamnings.

 

Það sé því mat stofnunarinnar að meginregla 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi við um tilvik kæranda. Vinnumálastofnun bendir á að kærandi greini frá því í kæru að hún hafi stundað nám við Háskólann á Akureyri og hún hafi verið í virkri atvinnuleit samhliða því. Þar sem nám kæranda hafi verið lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og um hafi verið að ræða 30 ECTS-einingar sé ljóst að undanþáguákvæði 2. eða 3. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi ekki við um nám hennar. Samkvæmt ákvæði 1. mgr. 52. gr. teljist kærandi ekki tryggð samkvæmt lögunum á sama tíma og hún sé skráð í nám.

 

Vinnumálastofnun vísar til 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar er fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laganna beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er kærandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Beri kæranda því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september til 21. nóvember 2012, samtals að fjárhæð 315.742 kr. með 15% álagi.

 

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. júní 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 28. júní 2013. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 12. ágúst 2013, var kæranda tilkynnt um að mál hennar myndi tefjast hjá nefndinni sökum mikils málafjölda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 

Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar.

 

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

 

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

 

Þá segir í c-lið 3. gr. laga sömu laga:

Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.

 


 

Í athugasemdum við 52. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Ljóst er að meginregla 1. mgr. 52. gr. á við um kæranda, þ.e. hún var skráð í 30 ECTS-eininga nám við Háskólann á Akureyri á haustönn 2012. Undanþáguheimildir 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna koma til skoðunar þegar nám er ekki lánshæft samkvæmt reglum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þar sem nám kæranda var 30 ECTS-einingar taldist það lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðsins. Undanþáguheimildirnar eiga því ekki við í máli kæranda.

 

Af framansögðu er ljóst að þar sem nám kæranda var lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna átti hún ekki rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta. Af hálfu kæranda er því haldið fram að hún hafi talið að sér væri heimilt að stunda fjarnám og hún hafi ekki komist að því að nám hennar væri lánshæft fyrr en í desember 2012 breytir ekki þeirri niðurstöðu þessa máls og kæranda hefði mátt vera ljóst að henni var óheimilt að stunda nám sitt samhliða töku atvinnuleysisbóta.

 

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og forsendna Vinnumálastofnunar er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber kæranda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Því er staðfest sú ákvörðun að kærandi endurgreiði ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi samtals að fjárhæð 315.742 kr.



 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 12. febrúar 2013 í máli A um stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga er staðfest. Kærandi skal endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 274.558 kr. auk 15% álags eða samtals 315.742 kr.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum