Hoppa yfir valmynd
29. október 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 31/2013.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 29. október 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 31/2013.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 27. desember 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum 21. desember 2012 fjallað um greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá sem gerð var skv. 4. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi komið í ljós að kærandi væri skráður í nám jafnhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina. Í ljósi þess hafi greiðslum atvinnuleysisbóta til hans verið hætt með vísan til 52. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Jafnframt taldi Vinnumálastofnun að kærandi hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu frá 1. september til 19. nóvember 2012 að fjárhæð 265.161 kr. ásamt 15% álagi að fjárhæð 39.774 kr. eða samtals 304.935 kr. sem honum bæri að endurgreiða skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þessari ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 18. mars 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 1. mars 2012.

 

Við samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar við nemendaskrár viðurkenndra menntastofnana og skóla á háskólastigi sem gerð var skv. 4. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kom í ljós að kærandi var við nám samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur og án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina.

 

Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2012, var kæranda tilkynnt um framangreinda samkeyrslu gagnagrunna og óskað eftir skýringum hans. Jafnframt var honum bent á að slíkt gengi í berhögg við 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að svo gæti farið að hann myndi missa rétt sinn til atvinnuleysisbóta.

 

Ekki bárust skýringar frá kæranda og á fundi stofnunarinnar 27. desember 2012 var hin kærða ákvörðun tekin þar sem kærandi var skráður í 18 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands.

 

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 18. mars 2013, að veturinn 2011‒2012 hafi hann verið í verkefnum fyrir B í gegnum samning við Vinnumálastofnun. Eitt af verkefnum hans hafi verið endurskoðun á vefmálum B með áherslu á vefinn. Í kjölfar verkefnisins hafi komið upp hugmynd um að setja upp fréttablað á vefnum. Kærandi lauk störfum fyrir hreyfinguna í mars 2012 en hugmyndin hafi haldið áfram en kæranda hafi vantað margs konar sérfræðiþekkingu til að halda undirbúningnum áfram. Kærandi hafi í kjölfarið sótt tvö námskeið í Háskóla Íslands til að sækja sér aukna þekkingu. Kærandi kveðst ekki hafa vitað að hann þyrfti að hafa námssamning vegna námskeiðanna. Verkefni kæranda hafi verið mótað á haustdögum 2012 og umsókn hans um eigið frumkvöðlastarf hafi verið send inn í nóvember. Kærandi hafi svo skrifað undir samninginn og tók hann gildi 12. desember 2012.

 

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 7. júní 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Vísar stofnunin í c-lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um skilgreiningu á hugtakinu námi. Vinnumálastofnun vísar einnig til 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en þar er mælt fyrir um nám.

 

 

Vinnumálastofnun telur ljóst af tilvitnuðum ákvæðum að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum við frumvarp það sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé í umfjöllun um 52. gr. frumvarpsins því haldið fram að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Auk þess sé eitt af almennum skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Samkvæmt 5. gr. reglugerðar um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki, nr. 12/2009, sé Vinnumálastofnun heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem sé tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Forsenda þess að slíkur samningur sé gerður sé að viðkomandi einstaklingur óski eftir því í upphafi annar og að því gefnu að hann uppfylli önnur skilyrði.

 

Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrá háskóla og framhaldsskóla landsins kom í ljós að kærandi lagði stund á nám við Háskóla Íslands á haustönn 2012. Það sé því mat stofnunarinnar að meginregla 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi við um tilvik kæranda. Samkvæmt ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar teljist kærandi ekki tryggður samkvæmt lögunum þann tíma er hann hafi verið skráður í nám. Skýringar kæranda sem færðar séu fram í rökstuðningi fyrir kæru breyti ekki þeirri niðurstöðu. Kæranda hafi heldur ekki verið þetta heimilt þótt hann hafi fengið samþykkt umsókn sína um þátttöku í úrræðinu „þróun eigin viðskiptahugmyndar“ fyrir tímabilið 12. desember 2012 til apríl 2013. Þá hafi honum ekki verið heimilt að stunda nám á haustönn 2012 samhliða töku atvinnuleysistrygginga án þess að fyrir lægi námssamningur við Vinnumálastofnun. Einnig sé það viðmiðunarregla stofnunarinnar að atvinnuleysisbótaþegar geti ekki borið fyrir sig vankunnáttu á lögum um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun vísar til 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar er fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laganna beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er kærandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Beri kæranda því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september til 19. nóvember 2012, samtals að fjárhæð 304.935 kr. með 15% álagi.

 

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. júní 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 28. júní 2013. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 12. ágúst 2013, var kæranda tilkynnt um að mál hans myndi tefjast hjá nefndinni sökum mikils málafjölda.

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 

Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar.

 

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

 

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

 

Þá segir í c-lið 3. gr. laga sömu laga:

Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.

 


 

 

Í athugasemdum við 52. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám.

 

Ljóst er að meginregla 1. mgr. 52. gr. á við um kæranda, þ.e. hann var skráður í 18 ECTS-eininga nám á Háskóla Íslands á haustönn 2012. Undanþáguheimildir 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna koma til skoðunar þegar nám er ekki lánshæft samkvæmt reglum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þar sem nám kæranda var 18 ECTS-einingar taldist það lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðsins en það er jafnframt lágmarkseiningarfjöldi til að fá námslán hjá Lánasjóðnum. Undanþáguheimildirnar eiga því ekki við í máli kæranda.

 

Af framansögðu er ljóst að þar sem nám kæranda var lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna átti hann ekki rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta. Af hálfu kæranda er því haldið fram að hann hafi talið að hann mætti stunda námið vegna umsóknar um „eigið frumkvöðlastarf“ en það breytir ekki þeirri niðurstöðu þessa máls og kæranda hefði mátt vera ljóst að honum var óheimilt að stunda nám sitt samhliða töku atvinnuleysisbóta.

 

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og forsendna Vinnumálastofnunar er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfyllir ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Því er staðfest sú ákvörðun að kærandi endurgreiði ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi samtals að fjárhæð 304.935 kr.



 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 27. desember 2012 í máli A um stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga er staðfest. Kærandi skal endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð samtals 304.935 kr. með inniföldu 15% álagi.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum