Hoppa yfir valmynd
17. september 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 174/2012.

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 17. september 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 174/2012.

 

1.
Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 9. október 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum 5. október 2012 ákveðið í samræmi við 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að fella niður atvinnuleysisbætur til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna um dvöl sína erlendis. Mál kæranda var tekið til meðferðar á ný á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, þann 29. október 2012 og var fyrri ákvörðun í máli kæranda staðfest. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 6. nóvember 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 27. ágúst 2012. Þann 13. september 2012 hafði kærandi samband við Vinnumálastofnun og kom því á framfæri að hann hefði þurft að fara skyndilega til Noregs vegna fjölskylduaðstæðna en gleymt að tilkynna utanlandsferðina fyrir fram til Vinnumálastofnunar. Þann 19. september 2012 sendi kærandi skýringarbréf til stofnunarinnar vegna þessa. Í kjölfarið var kæranda sent bréf 28. september 2012 frá greiðslustofu Vinnumálastofnunar þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hans erlendis og farseðlum. Þann 1. október 2012 barst Vinnumálastofnun tölvupóstur frá kæranda þar sem meðfylgjandi voru farseðlar sem staðfestu brottfarar- og heimkomudag, 3. september til 16. september 2012. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi Vinnumálastofnunar 5. október 2012 og var ákveðið í samræmi við 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að fella niður greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi 11. október 2012 og var rökstuðningur sendur kæranda með bréfi 18. október 2012. Mál kæranda var tekið til meðferðar á ný á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga og var fyrri ákvörðun í máli kæranda staðfest. Kæranda var tilkynnt um ákvörðunina með bréfi, dags. 29. október 2012. Kærandi kærði ákvörðunina til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 6. nóvember 2012.

 

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða greinir kærandi frá því að hann hafi farið til Noregs með nokkurra klukkustunda fyrirvara 3. september 2012 vegna þess að dóttir hans sem þar býr hafi þurft að fara í aðgerð. Hann hafi ekki áttað sig á því að láta Vinnumálastofnun vita sökum þess hversu stuttur fyrirvari var á ferðinni. Kærandi tiltekur að hann hafi tilkynnt um ferðina um leið og hann áttaði sig og í framhaldi af tilkynningu sinni hafi hann fylgt fyrirmælum starfsmanna Vinnumálastofnunar í einu og öllu. Kærandi telur að taka eigi tilliti til þess hve fyrirvaralaus ferð hans var og hversu alvarlegar ástæður lágu henni að baki og því ætti að fella ákvörðun Vinnumálastofnunar úr gildi.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 21. desember 2012, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið staddur erlendis á sama tíma og hann var skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi hann verið staddur erlendis tímabilið 3.–16. september 2012.

Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram um þessa ferð sína til Noregs, eins og honum bar skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun tekur fram að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hérlendis og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum á heimasíðu stofnunarinnar og lög um atvinnuleysistryggingar séu þar einnig aðgengileg. Þá vekur stofnunin athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni er tilkynnt fyrirfram um slíkar ferðir sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann er erlendis frá stofnuninni nema fyrir liggi E-303 vottorð.

Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi uppfyllti ekki skilyrði atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 3.–16. september 2012.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. janúar 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 16. janúar 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða til kæranda, dags. 12. ágúst 2013, var honum tilkynnt um töf á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs málafjölda hjá úrskurðarnefndinni.

 

2.
Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009 og 3. gr. laga nr. 153/2010, en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi staddur í Noregi á tímabilinu 3.–16. september 2012 og kom ferðin upp skyndilega þar sem dóttir hans, sem þar býr, þurfti að fara í aðgerð. Lagði kærandi meðal annars fram afrit af skýringum frá lækni og flugfarseðlum. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um ferð sína fyrr en 13. september 2012 og er því ljóst að hann tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram um að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili.

Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum og á heimasíðu stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun verður hún staðfest.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 29. október 2012 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hans í tvo mánuði er staðfest.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum