Hoppa yfir valmynd
1. október 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 12/2013.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 1. október 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 12/2013.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 10. desember 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar sem hann hafi verið við vinnu hjá Bi ehf.
8. október 2012 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Jafnframt var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 8. október til 19. nóvember 2012 samtals að fjárhæð 265.658 kr. en í þeirri fjárhæð er 15% álag, sem yrði innheimt skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 17. janúar 2013. Hann krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun hafi verið rétt.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. ágúst 2012.

 

Kæranda var sent erindi, dags. 21. nóvember 2012, þar sem honum var tilkynnt að samkvæmt gögnum frá aðilum vinnumarkaðarins frá 8. október 2012, hefði hann verið við störf hjá B ehf., samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að tilkynna það til stofnunarinnar. Óskað hafi verið eftir skýringum á þessu hjá kæranda. Þar sem ekki bárust skýringar frá kæranda var honum tilkynnt um hina kærðu ákvörðun með bréfi, dags. 10. desember 2012.

 

 

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru að eigandi bifreiðaverkstæðisins hafi ráðið sig til reynslu á verkstæði sitt. Eigandinn hafi hringt í Vinnumálastofnun Suðurnesja og látið vita að hann hefði verið ráðinn til reynslu. Þá myndi hann láta vita um fyrstu launagreiðsluna. Lítið hafi verið um vinnu á verkstæðinu þannig að eigandi verkstæðisins hafi lofað honum að vinna við sinn eigin bíl. Í millitíðinni hafi hann haldið áfram að ræða við Vinnumálastofnun og sannfæra kæranda að um að allt væri í góðu lagi. Kærandi ítrekar að búið hafi verið að láta Vinnumálastofnun vita af þessari reynslutilraun. Hann hafi ekki fengið greidd nein laun frá fyrirtækinu.

 

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 28. maí 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Vinnumálastofnun greinir frá því að mál þetta varði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kærandi hafi verið í starfi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysistryggingar, án þess að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit væri hætt skv. 10. gr. eða 35. gr. a laganna. Jafnframt er vísað til laga nr. 134/2009 um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, en með þeim lögum hafi verið gerðar veigamiklar breytingar á 60. gr. laganna.

 

Vinnumálastofnun bendir á að verknaðarlýsing ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar geri grein fyrir því hvaða atvik geta leitt til þess að viðurlögum á grundvelli ákvæðisins er beitt. Segi í athugasemdum með 23. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 134/2009, að Vinnumálastofnun skuli beita viðurlögunum ef atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna stofnuninni að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða 35. gr. a laganna.

 

Vinnumálastofnun vísar til þess að í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfar á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun greinir frá því að fyrir liggi að kærandi var við störf hjá B ehf. dagana 24. september 2012, kl. 13:43, og 8. október 2012, kl. 14:43, þegar aðilar vinnumarkaðarins hittu hann fyrir á vinnustað. Vinnumálastofnun hafi verið tilkynnt 27. september 2012 að kærandi væri í prufu hjá verkstæðinu og látið yrði vita ef hann færi á launaskrá.

 

Það sé mat Vinnumálastofnunar að tilkynning sem berst stofnuninni eftir að aðili hafi verið staðinn að því að sinna ótilkynntri vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur geti ekki leyst viðkomandi aðila undan þeim viðurlögum sem hann skal sæta samkvæmt skýru orðalagi laga um atvinnuleysistryggingar. Þá geti kærandi ekki borið fyrir sig vankunnáttu á lögum þar sem allar upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Einnig séu reglur kynntar á kynningarfundi Vinnumálastofnunar sem skyldumæting sé á.

 

Tilgangur laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum, nr. 42/2010, sé meðal annars að vinna gegn svarti atvinnustarfsemi og misnotkun á atvinnuleysisbótum. Jafnframt sé það tilgangur með 35. gr. a og 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að sporna við svartri atvinnustarfsemi og misnotkun á atvinnuleysisbótum.

 

Vinnumálastofnun bendir á að í skýringum kæranda til stofnunarinnar komi fram að sökum verkefnaskorts hjá B ehf. hafi hann fengið að gera við bifreið sína á verkstæðinu. Þá hafi eigandi verkstæðisins gert grein fyrir því að kærandi hafi verið tekinn í starfsreynslu í október en þar sem engin verkefni hafi verið hafi hann fengið að gera við bifreið sína á verkstæðinu.

 

Vinnumálastofnun kveðst ekki fallast á þessar skýringar kæranda. Bent er á að samkvæmt gögnum frá aðilum vinnumarkaðarins hafi kærandi verið við störf dagana 24. september og 8. október 2012. Það sé að mati stofnunarinnar ólíklegt að kærandi hafi báða þessa daga verið einungis að vinna við sína eigin bifreið. Þá verði einnig að líta til þess samkvæmt tilkynningu frá eiganda verkstæðisins 27. september 2012 hafi kærandi verið í starfsreynslu í október. Vinnumálastofnun hafi þó ekki borist tilkynning um þá vinnu frá kæranda fyrr en eftir að eftirlitsheimsókn aðila vinnumarkaðarins fór fram.

 

Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda teljist ekki gildar. Líkt og áður hafi verið tekið fram sé tilgangur eftirlitsferða aðila vinnumarkaðarins og tilkynningarskyldunnar í 35. gr. a að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi og misnotkun á atvinnuleysistryggingakerfinu. Í samræmi við þetta sé það mat Vinnumálastofnunar að í tilfelli kæranda hefði ólíklega komið til tilkynningar vegna vinnu hans hjá B ehf. ef ekki hefði verið fyrir aðila vinnumarkaðarins. Kærandi hafi ekki tilkynnt fyrirfram um breytingar á högum sínum til stofnunarinnar en rík skylda hvíli á þeim sem njóti greiðslna atvinnuleysistrygginga að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar sem geti ákvarðað bótarétt viðkomandi. Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur, sbr. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 30. maí, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 13. júní 2013. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda.

 

Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 12. ágúst 2013, var kæranda tilkynnt að vegna gríðarlegs málafjölda myndi mál hans tefjast hjá nefndinni.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæðið er svohljóðandi:

 

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

 

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Framangreindu ákvæði var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009 sem tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur ákvæðisins sagður vera að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

 

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi að störfum hjá B ehf. er aðilar vinnumarkaðarins hittu hann fyrir þar 24. september 2012. Í samskiptaskrá Vinnumálastofnunar við kæranda er skráð síðar eða 27. september 2012 að kærandi sé í prufu á verkstæðinu og myndi láta vita ef hann færi á launaskrá. Eftir þetta hittu aðilar vinnumarkaðarins kæranda einnig fyrir á verkstæðinu 8. október 2012.

 

Í bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 21. nóvember 2012, er eingöngu óskað eftir skýringum kæranda á störfum hans á verkstæðinu 8. október 2012 og í hinni kærðu ákvörðun, dags. 10. desember 2012, er einnig eingöngu byggt á að kærandi hafi verið við störf á verkstæðinu 8. október 2012. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar er á hinn bóginn byggt á því að kærandi hafi verið við störf á verkstæðinu hvort tveggja 24. september og 8. október 2012. Ljóst er að kæranda var ekki veittur andmælaréttur, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, vegna heimsóknar aðila vinnumarkaðarins á B ehf. 24. september 2012. Þá byggir Vinnumálastofnun heldur ekki á þeirri heimsókn í hinni kærðu ákvörðun frá 10. desember 2012 heldur eingöngu heimsókninni 8. október 2012. Af þeim sökum getur heimsókn aðila vinnumarkaðarins 24. september 2012 á B ehf. ekki komið til greina við mat á því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða. Ber því að leggja á það mat hvaða áhrif það hefur að kærandi var við störf þann 8. október 2012 án þess að hafa tilkynnt um þá vinnu til Vinnumálastofnunar.

 

Ákvæði 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar er svohljóðandi:

 

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vara.“

 

Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu. Þá er þeim sem telst tryggður skv. 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar gert að tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar þegar hann hættir virkri atvinnuleit.

 

Líkt og fyrr greinir er óumdeilt að kærandi tilkynnti að hann væri við störf á bifreiðaverkstæðinu 27. september 2012 en myndi láta vita ef hann færi á launaskrá. Rúmum tíu dögum síðar, þ.e.
8. október 2012, komu aðilar vinnumarkaðarins í heimsókn á bifreiðaverkstæðið og var þá kærandi við störf.

 

Ljóst er af framangreindum ákvæðum 3. mgr. 9. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að tilkynningar og upplýsinga skylda atvinnuleitenda er mjög ströng. Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða getur það eitt að kærandi tilkynni að hann væri við ólaunuð störf í tilteknu fyrirtæki ekki talist fullnægjandi til að uppfylla tilkynningarskyldu
skv. 35. gr. a enda er þar kveðið á um að í tilkynningu skuli meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan sé, um vinnustöðuna og lengd þess tíma sem hin tilfallandi vinnu er ætlað að vera.

 

Með vísan til þessa verður að telja að kærandi hafi ekki tilkynnt um tilfallandi vinnu sína með fullnægjandi hætti í skilningi 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar en telja verður tilfallandi vinnu þá atvinnustarfsemi sem fellur til með óreglubundnum hætti og standi að jafnaði stutt yfir hverju sinni

 

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda, sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hann starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða að atvinnuleit hafi verið hætt. Þá er ákvæði 60. gr. fortakslaust en í því felst að ekki er heimild til að beita vægari úrræðum en ákvæðið kveður á um. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Kæranda ber einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið frá 8. október til 19. nóvember 2012, alls 265.658 kr. en í þeirri fjárhæð er 15% álag, skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

 

 


 

 

Úrskurðarorð

 

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 10. desember 2012 í máli A þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

 

Kærandi skal endurgreiða Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 265.658 kr.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum