Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 151/2012.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 20. ágúst 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 151/2012.

 

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 3. september 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 29. september 2012 fjallað um höfnun hans á atvinnuviðtali. Vegna höfnunarinnar var bótaréttur kæranda felldur niður frá og með 3. september 2012 í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi mótteknu 7. september 2012. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur 30. desember 2010.

 

Vinnumálastofnun bárust upplýsingar í júní 2012 um að kærandi hefði hafnað atvinnutilboði frá B. Kæranda var sent bréf, dags. 16. júlí 2012, þar sem óskað var eftir skýringum hans á höfnun á umræddu starfi. Var kæranda veittur frestur í sjö virka daga til að koma að athugasemdum sínum. Skýringar kæranda bárust í tölvubréfi, dags. 23. júlí 2012, þar sem fram kemur meðal annars að hann hafi ákveðið að hafna starfinu þar sem honum hefði verið tjáð að um sumarvinnu væri að ræða og hann yrði ennþá á atvinnuleysisskrá þrátt fyrir að hann tæki starfinu. Hann hafi hafnað umræddri vinnu því hann sé að leita sér að framtíðarstarfi og markmið hans sé að losna af atvinnuleysisskrá.

 

Mál kæranda var tekið fyrir á fundi Vinnumálastofnunar 2. ágúst 2012. Með bréfi, dags. 3. ágúst 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda þá ákvörðun nefndarinnar að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til hans í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það var mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á höfnun atvinnutilboðs gætu ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kærandi sendi Vinnumálastofnun tölvupóst, dags. 14. ágúst 2012, þar sem fram koma sömu

Í kæru, dags. 30. ágúst 2012, koma fram þær skýringar kæranda að eftir að hann hafi móttekið bréf Vinnumálastofnunar, dags. 16. júlí 2012, hafi hann sent athugasemdir sínar á netfangið [email protected] eins og um hafi verið beðið. Kærandi kveðst ekki hafa fengið atvinnuleysisbætur sínar greiddar út 1. ágúst 2012, en þá hafi honum verið tjáð af Vinnumálastofnun að mál hans væri á bið meðan stofnunin myndi funda um mál hans. Nokkrum dögum síðar hafi hann svo fengið bréf frá Vinnumálastofnun þar sem honum hafi verið tilkynnt um hina kærðu ákvörðun. Kærandi kveðst hafa haft samband við Vinnumálastofnun og þá hafi komið í ljós að tölvubréf hans, með athugasemdum um hvers vegna hann hafi hafnað starfinu, hefði ekki komist til skila og honum bent á að hann hefði átt að senda athugasemdirnar á annað netfang stofnunarinnar.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 18. september 2012, segir að mál þetta varði 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar séu tilgreindar ástæður sem geti komið til greina sem gildar skýringar við höfnun á starfi. Í athugasemdum við 57. gr. komi fram að gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu. Enn fremur sé heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði er starf fjarri heimili hans sem gerir kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

 

Vinnumálastofnun greinir frá því að 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi við um þann sem hafnar starfi eða sinnir ekki atvinnuviðtali. Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið nánar á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Sé þar tekið fram að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Þegar atvinnuleitandi sé boðaður í starfsviðtal í þeim tilgangi að fá hann til starfa en hann reynist óreiðubúinn að ganga í þau störf líti Vinnumálastofnun svo á að hann eigi að sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ljóst sé að kærandi hafi hafnað starfi við garðyrkju á C hjá B. Samkvæmt skýringum frá kæranda hafi hann talið að starfið myndi ekki henta sér. Í kæru hafi kærandi tekið fram að Vinnumálastofnun hafi gefið upp rangt netfang í bréfi stofnunarinnar, dags. 16. júlí 2012, og því hefði ekki verið tekið tillit til skýringa hans þegar tekin var ákvörðun í máli hans um að fella bótarétt hans niður í tvo mánuði frá 3. ágúst 2012. Vinnumálastofnun greinir frá því að þetta sé ekki rétt og að skýrt komi fram í bréfi, dags. 3. ágúst 2012, að afstaða hans til málsins hafi legið fyrir þegar ákvörðunin var tekin. Ljóst sé að afstaða og skýringar kæranda lágu einnig fyrir þegar fyrri ákvörðun í máli kæranda var staðfest 29. ágúst 2012 og skýringar hans ekki metnar gildar. Vinnumálastofnun telur að þessi málsástæða sé því haldlaus.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 26. september 2012, gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 10. október 2012. Engar athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfum úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. nóvember 2012 og 12. ágúst 2013, var kærandi látinn vita um tafir á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs fjölda kærumála hjá úrskurðarnefndinni.

 

2.

Niðurstaða

 

Í 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um það þegar starfi eða atvinnuviðtali er hafnað. Í 1. mgr. greinarinnar segir að sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama eigi við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali.

 

Í greinargerð í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur meðal annars fram að gert sé ráð fyrir að þetta eigi við um þá sem hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttökudegi umsóknar um atvinnuleysisbætur. Þá greinir að það þyki eðlilegt að þeir sem eru tryggðir fái fjögurra vikna svigrúm til að leita sér að því starfi er þeir helst kjósa að sinna. Sá tími var liðinn þegar kærandi hafnaði því að fara í umrætt starfsviðtal en kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur 30. desember 2010 líkt og fyrr greinir.

 

Í 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur eftirfarandi fram:

 

Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.

 

Fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur kærandi borið að ástæðurnar fyrir höfnun hans á starfinu sé sú að hann vilji komast í framtíðarstarf en fyrir liggi að umrætt atvinnutilboð hafi verið sumarstarf.

 

Í a-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að eitt af skilyrðum þess að teljast tryggður samkvæmt lögunum sé að vera í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga kemur fram að með virkri atvinnuleit felist meðal annars að hafa frumkvæði að starfsleit og vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara og vera reiðubúin að taka starfi hvar sem er á Íslandi.

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða verður ekki fallist á að skýringar kæranda fyrir nefndinni réttlæti höfnun hans á umræddu atvinnutilboði með vísan til 1. og 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar er því staðfest.

 

 

Úr­skurðar­orð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 3. september 2012 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

for­maður

 

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                                 Helgi Áss Grétarsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum