Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 146/2012

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 20. ágúst 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 146/2012.

 

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 14. júní 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 12. júní 2012 fjallað um höfnun hans á vinnumarkaðsúrræðinu „Vinnandi vegi“. Vegna þessarar höfnunar kæranda á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá og með 14. júní 2012 sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 27. júlí 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 31. ágúst 2011.

 Með tölvupósti, dags. 5. mars 2012, var kærandi boðaður á svokallaða Atvinnumessu sem halda átti 8. mars 2012 í Laugardalshöllinni og var það liður í vinnumarkaðsátakinu „Vinnandi vegi“. Kæranda var sendur annar tölvupóstur 15. mars 2012 og honum tilkynnt um næstu skref í ,,Vinnandi vegi“. Kærandi var beðinn um að skrá sig hjá einni af fjórum ráðningarskrifstofum fyrir 1. apríl 2012. Jafnframt var kæranda sent textaskilaboð í farsíma 28. mars 2012 þar sem hann var spurður að því hvort hann væri búinn að skrá sig og þetta ítrekað. Kærandi sinnti ekki boðun Vinnumálastofnunar um að skrá sig hjá einni af fjórum ráðningarskrifstofum sem stofnunin hafði gert samning við.

 Kæranda var sent bréf, dags. 30. maí 2012, þar sem fram kemur að hann hafi ekki orðið við framangreindum tilmælum og leit Vinnumálastofnun því svo á að hann hafi hafnað þátttöku í nefndu vinnumarkaðsúrræði. Kæranda var gefinn kostur á að upplýsa Vinnumálastofnun um ástæður þess innan sjö virka daga. Honum var enn fremur tjáð að hann gæti af þessum ástæðum þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta skv. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun bárust engar skýringar frá kæranda innan sjö virkra daga vegna þessa og var kæranda tilkynnt með bréfi, dags. 14. júní 2012, að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði, frá og með dagsetningu bréfsins. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 Kærandi mótmælti ákvörðuninni í tölvupósti til Vinnumálastofnunar, dags. 29. júní 2012. Fram kemur í tölvupóstinum að kærandi muni skila inn læknisvottorði vegna veikinda. Kærandi skilaði síðar inn læknisvottorði, dags. 6. júlí 2012, þar sem fram kemur að hann hafi verið óvinnufær með öllu vegna sjúkdóms á tímabilinu 6.–13. mars 2012.

 Vinnumálastofnun tók ákvörðun um málið á fundi 20. ágúst 2012. Skýringar kæranda töldust ekki gildar og að framlagt læknisvottorð um tímabundin veikindi í mars væri ekki talið breyta neinu varðandi fyrri ákvörðun í málinu. Vegna þessarar höfnunar kæranda á þátttöku í vinnumarkaðsátakinu „Vinnandi vegi“ var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá og með 14. júní 2012 sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr., laga um atvinnuleysistryggingar.

 Í kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. júlí 2012, greinir kærandi frá því að hann hafi verið hvort tveggja veikur og ekki haft aðgang að tölvu til að lesa tölvubréfin sín.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 4. september 2012, kemur fram að málið lúti að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Samkvæmt g-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Samkvæmt h-lið sömu málsgreinar teljist sá í virkri atvinnuleit sem sé reiðubúinn að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur hans á að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Þá beri atvinnuleitanda að tilkynna Vinnumálastofnun, án ástæðulauss dráttar, um þær breytingar sem kunni að vera á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 Vinnumálastofnun bendir á að kærandi sinnti ekki boði stofnunarinnar um að mæta á Atvinnumessu og skilaði inn læknisvottorði vegna þess. Kærandi hafi verið óvinnufær með öllu 6.–12. mars 2012 og skýri það fjarveru hans á boðaðan fund. Vinnumálastofnun bendir á að almennt sé tekið tillit til þess ef upp komi veikindi hjá atvinnuleitanda sem geti valdið því að viðkomandi geti ekki tekið þátt í vinnumarkaðsaðgerðum. Atvinnuleitandi verði þá að tilkynna stofnuninni fyrirvaralaust frá yfirvofandi fjarvistum sínum og í kjölfarið skila læknisvottorði sem staðfesti veikindi. Í máli kæranda sé þó ekki um að ræða námskeið eða vinnumarkaðsaðgerð þar sem honum hafi verið skylt að mæta á ákveðinn stað á ákveðnum tíma. Vissulega hafi kærandi verð boðaður í Atvinnumessu í Laugardalshöll 8. mars 2012 en þar sem kærandi hafi ekki mætt þangað hafi hann í tvígang verið beðinn um að skrá sig hjá einni af fjórum ráðningarskrifstofum sem Vinnumálastofnun gerði samning við fyrir 1. apríl 2012. Vinnumálastofnun bendir á að kærandi hafi greint frá því í kæru að hann hafi ekki haft aðgang að tölvu og því ekki getað fengið sendan tölvupóst, en kæranda hafi einnig verið sent textaskilaboð í farsíma en hann hafi ekki skráð sig hjá neinni af ráðningarskrifstofunum. Kæranda hafi verið sent bréf, dags. 30. maí 2012, þar sem óskað hafi verið eftir skýringum hans innan sjö daga. Kærandi hafi ekki sinnt því að koma með skýringar innan sjö daga en sent mótmælabréf, dags. 29. júní 2012. Þar hafi einungis komið fram að kærandi hafi verið veikur í mars 2012. Vinnumálastofnun telur að kæranda hafi mátt vera ljóst af textaskilaboðunum að hann væri skyldur til að skrá sig á ráðningarskrifstofu og þá enn frekar þegar honum hafi boðist að koma að skýringum þegar bréf Vinnumálastofnunar hafi verið sent til hans.

 Með því að hafa ekki skráð sig af einni af fjórum ráðningarskrifstofum í vinnumarkaðsátakinu „Vinnandi vegi“ hafi kærandi ekki uppfyllt skyldu sína gagnvart Vinnumálastofnun skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem komi fram í bréfi kæranda til stofnunarinnar og í kæru geti ekki réttlætt það að hann hafi ekki skráð sig hjá neinni af ráðningarskrifstofunum.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 14. september 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 28. september 2012. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda. Með bréfi, dags. 13. nóvember 2012, tilkynnti úrskurðarnefndin að mál hans myndi tefjast vegna gríðarlegs málafjölda hjá nefndinni.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 21. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.

 

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar og sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Í III. kafla laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, er fjallað um vinnumarkaðsaðgerðir. Í 13. gr. sömu laga kemur meðal annars fram að atvinnuleitandi skuli gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skuli atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. laganna og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem standi honum til boða.

 

Samkvæmt 1. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir er með vinnumumarkaðsaðgerðum meðal annars átt við vinnumiðlun. Í 10. gr. laganna er vinnumiðlun nánar lýst og felst hún meðal annars í því að Vinnumálastofnun haldi skrá yfir laus störf og aðstoði atvinnuleitendur við atvinnuleit. Vinnumálastofnun er heimilt að gera þjónustusamninga um þátttöku atvinnuleitenda í einstökum vinnumarkaðsúrræðum sem aðrir þjónustuaðilar annast framkvæmd á. Samkvæmt þessu fellur sú krafa Vinnumálastofnunar að atvinnuleitendur skrái sig hjá tilteknum ráðningarstofum undir vinnumarkaðsaðgerðir í skilningi laganna.

 

Bótaþegar þurfa að uppfylla margvíslegar skyldur þegar þeir koma inn í kerfið og þann tíma sem þeir þiggja bætur. Þessum skyldum er lýst í þeim lögum og reglum er gilda um atvinnuleysistryggingar og er bótaþegum leiðbeint sérstaklega um þessar skyldur í kynningarefni og á kynningarfundum. Má sem dæmi um skyldur nefna kröfuna um að vera staddur hér á landi og skylduna til að tilkynna um breytingar á högum sínum.

 

Meðal þeirra skyldna sem hvíla á bótaþegum er að bregðast við boði um þátttöku í sérstökum vinnumarkaðsaðgerðum á vegum Vinnumálastofnunar. Slíkar aðgerðir geta verið af margvíslegum toga, svo sem boð um að mæta í viðtal og þátttaka í námskeiðum. Þegar bótaþegar hafa verið boðaðir sérstaklega til þátttöku í slíkum aðgerðum hvílir á þeim sú skylda að bregðast við boðinu, en geri þeir það ekki getur það leitt til viðurlaga í formi niðurfellingar bóta. Í ljósi þess að aðgerðir þessar geta verið af margvíslegum toga er mikilvægt að bótaþegum sé gert ljóst að um vinnumarkaðsúrræði sé að ræða og að höfnun á þátttöku geti leitt til missis bóta. Slíkt er að auki einfalt, enda er bótaþegum ávallt tilkynnt með formlegum hætti um boð um þátttöku í slíkum aðgerðum. Í þeim tilvikum er bótaþegar eru beðnir að skrá sig hjá ráðningarstofum mætti veita slíkar leiðbeiningar í boðunarbréfi um skráninguna. Í þessu sambandi má benda á að þegar atvinnuleitendur eru boðaðir í starfsviðtöl er þeim sérstaklega leiðbeint um að það geti varðað missi bóta bregðist þeir slíkri boðun eða hafni starfi án ástæðu.

 

Ekki verður séð að kæranda hafi verið leiðbeint um að aðgerðaleysi hans við skráningu á ráðningarstofu gæti varðað hann missi bóta. Úrskurðarnefndin telur að með því hafi leiðbeiningarskyldu skv. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, ekki verið gætt nægilega og því verði að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 12. júní 2012 um niðurfellingu bótaréttar Aí tvo mánuði er felld úr gildi. Kærandi á rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði frá og með 14. júní 2012.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

for­maður

 

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                                 Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum