Hoppa yfir valmynd
14. maí 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 90/2012.

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 14. maí 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 90/2012.

 

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 11. maí 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar sem kærandi hafi verið að vinna sem leigubílstjóri samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Það var niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kærandi hafði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 491.004 kr., en í þeirri fjárhæð er 15% álag, sem verður innheimt skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þessari ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 24. maí 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um greiðslur atvinnuleysisbóta 2. júní 2010 og fékk greiddar atvinnuleysisbætur í samræmi við rétt sinn.

 

Kæranda var sent erindi 16. apríl 2012 þar sem honum var tilkynnt að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og Vegagerðarinnar hafi komið upp að kærandi hefði starfað við akstur leigubifreiða á árinu 2011 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að tilkynna það til stofnunarinnar. Óskað var eftir skýringum hjá kæranda. Þann 19. apríl 2012 barst Vinnumálastofnun tölvupóstur frá kæranda þar sem fram kom að vinur hans hafi beðið hann um að fara nokkrar ferðir í leigubíl til Keflavíkur að ná í franska ferðamenn. Fyrir þetta hafi hann fengið greitt 30.000 kr. í júlí, 40.000 kr. í ágúst og 20.000 kr. í september.

 

Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar leysti kærandi af við leigubifreiðarakstur í 68 daga á tímabilinu 25. júní til 4. september 2011.

 

Með bréfi, dags. 11. maí 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans skyldu stöðvaðar þar sem hann hafi verið við vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Fram kom að það væri niðurstaða stofnunarinnar að kærandi skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefði starfað a.m.k. í tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði, sbr. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Einnig var kæranda gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 491.004 kr. með 15% álagi skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Af hálfu kæranda kemur fram að hann hafi ekki farið fram yfir hámark frítekjumarks atvinnuleysisbóta.

 

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 15. júní 2012, vísar Vinnumálastofnun til 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og bendir á að í athugasemdum með 23. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 134/2009 segir að meðal annars komi til greina að beita viðurlögum á grundvelli ákvæðisins þegar atvinnuleitandi gefur stofnuninni „vísvitandi rangar upplýsingar“ sem leiði til þess að atvinnuleitandi teljist ranglega tryggður að fullu eða hluta. Þá sé gert ráð fyrir því að Vinnumálastofnun skuli beita viðurlögunum ef atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna stofnuninni að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða 35. gr. a laganna.

 

Vinnumálastofnun greinir frá því að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 2. júní 2010. Síðan umsókn hans hafi verið samþykkt hafi hann fengið einhverjar tilfallandi tekjur og tilkynnt þær til stofnunarinnar. Hafi kærandi meðal annars tekið fram 28. maí 2011 að hann væri að senda inn upplýsingar um tilfallandi tekjur til að vera öruggur. Kærandi hafi þá einnig tekið fram að hann væri stundum kallaður út sem dyravörður en það væri ekki fast. Vinnumálastofnun telur að af þessu sé ljóst að kærandi hafi vitað um skyldu sína til þess að tilkynna tilfallandi tekjur til stofnunarinnar, enda hafi hann fram að þeim tíma er hann leysti af við leigubílaakstur staðið skil á slíkum tilkynningum.

 

Vinnumálastofnun greinir frá því að ekki hafi borist tilkynning um tilfallandi vinnu kæranda við leigubifreiðaakstur á þeim tíma sem hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá stofnuninni. Hafi stofnuninni fyrst orðið kunnugt um störf kæranda við reglubundið eftirlit og samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar og Vegagerðarinnar í apríl 2012. Í kæru segi kærandi að hann hafi ekki farið yfir hámarkið en þá sé hann væntanlega að vísa til frítekjumarks 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af skýru orðalagi 35. gr. a og 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hvíli sú skylda á kæranda að upplýsa Vinnumálastofnun um allar tilfallandi tekjur, hversu litlar sem þær séu. Það að tekjurnar hafi ekki náð frítekjumarki 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breyti engu um þá skyldu kæranda.

 

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi starfaði við akstur leigubifreiðar á meðan hann þáði greiðslu atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynning frá kæranda vegna vinnu hans. Það ætti öllum að vera ljóst að atvinnuleitandi sem þiggi greiðslu atvinnuleysisbóta beri skylda til að tilkynna um vinnu til Vinnumálastofnunar um leið og hann hefur störf. Eigi það jafnt við um störf sem eru tilfallandi, hlutastörf og þegar viðkomandi hefur hætt atvinnuleit að öllu leyti. Í tilfelli kæranda hafi honum því borið að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín, deginum áður en hann hóf störf, sbr. 35. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna um tilfallandi vinnu til stofnunarinnar, sbr. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. júní 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 3. júlí 2012. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.


 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.

 

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

 

Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009 kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.

 

Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi fyrsta málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:

 

 

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að fyrsti málsliður ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.

 

Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í fyrsta málslið ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir meðal annars á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.

 

Hvort sem háttsemi fellur undir fyrsta eða annan málslið 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.

 

Þá segir í 35. gr. a:

 

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vera.

 

Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu. Þá er þeim sem telst tryggður skv. 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar gert að tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar þegar hann hættir virkri atvinnuleit.

 

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi starfaði við leigubílaakstur á tímabilunum 25.–26. júní 2011, 27. júní–1. júlí 2011, 2.–3. júlí 2011, 4. júlí–3. ágúst 2011, 4.–31. ágúst 2011 og 3.–4. september 2011, án þess að tilkynna það til Vinnumálstofnunar en á sama tíma þáði hann atvinnuleysisbætur frá stofnuninni. Kærandi hefur greint frá því að þær greiðslur sem hann hafi þegið fyrir störf sín hafi ávallt verið undir frítekjumörkum laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Í 36. gr. laga um atvinnuleysisbætur er fjallað um frádrátt vegna tekna bótaþega, meðal annars vegna tilfallandi vinnu. Í 4. mgr. ákvæðisins segir að frítekjumark tekna sé 59.047 kr. á mánuði, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1219/2008 um breytingu á reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga, nr. 548/2006. Reglur þessar hafa engin áhrif á þær reglur er gilda um tilfallandi vinnu, sbr. einkum þá reglu að tilkynna skuli um slíka vinnu í síðasta lagi samdægurs. Ekki er því unnt að túlka reglur um frítekjumark á þann veg að ekki þurfi að tilkynna um tilfallandi vinnu nema laun fyrir hana fara upp fyrir áðurnefnt frítekjumark.

 

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda, sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hann starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða að atvinnuleit hafi verið hætt. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Kæranda ber einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 491.004 kr. en í þeirri fjárhæð er 15% álag.


Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 11. maí 2012 í máli A þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og hann skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 491.004 kr. er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum