Hoppa yfir valmynd
14. maí 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 88/2012.

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 14. maí 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 88/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi dags., 8. maí 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að þar sem hann hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr., sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi stofnunin tekið ákvörðun á fundi sínum 4. maí 2012 um að fella niður bótarétt hans frá þeim degi þar til hann hefur starfað í a.m.k. tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 22. maí 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun hafi verið rétt.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 31. maí 2010.

 

Kærandi var 14. febrúar 2012 boðaður í viðtal til ráðgjafa Vinnumálastofnunar 16. febrúar 2012. Kærandi mætti ekki í viðtalið og var í kjölfarið sent bréf, dags. 16. febrúar 2012, þar sem honum var gefinn frestur til að skila inn skýringum á fjarveru sinni. Í bréfinu var tekið fram að ef skýringar kæranda yrðu ekki metnar gildar gæti það leitt til viðurlaga eftir lögum um atvinnuleysistryggingar.

 

Skýringar bárust frá kæranda 19. mars 2012 þar sem hann tók fram að hann hefði verið erlendis vegna námskeiðs og skilaði hann flugseðlum til stofnunarinnar. Tók hann fram að námskeiðið hefði verið varðandi „Dynamic position“ stjórntæki í brú í olíuskipum.

 

Kæranda var tilkynnt með bréfi, dags. 3. apríl 2012 að Vinnumálastofnun hafi ákveðið 29. mars 2012 að afgreiðsla máls hans hefði verið frestað þar sem hann hefði ekki tilkynnt um dvöl sína erlendis og var kæranda gefið tækifæri á að skila inn skýringum vegna þess. Skýringar bárust frá kæranda 11. apríl 2012 en þar tók hann aftur fram að hann hefði verið á umræddu námskeiði og það ætti að auðvelda honum að fá vinnu við „Offshore“ skip erlendis. Kærandi tók jafnframt fram að hann hefði farið í atvinnuviðtöl í B í kjölfarið af námskeiðinu en það hefði ekki enn borið árangur.

 

Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar 4. maí 2012 og sú ákvörðun tekin að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Tekið var fram að þar sem um væri að ræða þriðja sinn sem kærandi sætti viðurlögum þá ættu ítrekunaráhrif 3. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar við í máli hans.

 

Af hálfu kæranda kemur fram að hann hafi einnig verið í dreifinámi sem hann hafi útskrifast úr 19. maí 2012. Svonefnt „Dynamic position“ námskeið sé ekki kennt á Íslandi og því hafi hann tekið það erlendis þar sem vinnan sem hann sé að sækjast eftir geri þær kröfur að hann hafi lokið þessu námskeiði. Kærandi greinir frá því að atvinnumöguleikar hans aukist við þetta og hann hafi gleymt að tilkynna Vinnumálastofnun um ferðina en hann hefði einnig verið að skila verkefnum.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 14. júní 2012, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

 

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

 

Það sé ljóst að kærandi hafi verið staddur erlendis tímabilið 7. febrúar til 15. mars 2012 og í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína líkt og honum bar skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun greinir frá því að hún hafi margsinnis vakið athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hérlendis og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum á heimasíðu stofnunarinnar og lög um atvinnuleysistryggingar séu þar einnig aðgengileg. Þá vekur stofnunin athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni er tilkynnt fyrirfram um slíkar ferðir þá sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann er erlendis frá stofnuninni nema fyrir liggi E-303 vottorð.

 

Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Þá ítrekar stofnunin að þar sem um væri að ræða niðurfellingu bótaréttar kæranda í þriðja sinn þá eigi hann ekki rétt til bóta fyrr en hann hefur unnið í a.m.k. tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar dags. 19. júní 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 3. júlí 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009 og 3. gr. laga nr. 153/2010, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi.

 

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi staddur erlendis á tímabilinu frá 7. febrúar til 15. mars 2012, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Hefur kærandi greint frá því að hann hafi farið að utan vegna DP námskeiðs sem ekki sé kennt hérlendis og gleymt að láta Vinnumálastofnun vita af för sinni.

 

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram.

 

Háttsemi kæranda fellur undir 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Á hinn bóginn verður með vísan til viðurlagaákvarðana Vinnumálastofnun í eldri málum kæranda fallist á að 3. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verði beitt í máli þessu. Þetta leiðir til þess að kærandi á ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað í að minnsta kosti tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði.

 

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 4. maí 2012 í máli A þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað í að minnsta kosti tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum