Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 74/2012.

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 9. apríl 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 74/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 18. apríl 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hann verið staddur erlendis á tímabilinu 15.–27. mars 2012 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili, sbr. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hann hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði sem ella hefði verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Jafnframt var kærandi krafinn um ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 15.–19. mars 2012, sbr. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í samskiptasögu Vinnumálastofnunar 16. apríl 2012 kemur fram að ofgreiðsla til kæranda nemur 11.519 kr. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, mótteknu 23. apríl 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2009.

 

Eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar barst ábending þess efnis að kærandi væri staddur erlendis í mars 2012. Í kjölfarið var kæranda sent bréf, dags. 27. mars 2012, frá eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar þar sem óskað var eftir skýringum kæranda. Kærandi greindi í kjölfarið ráðgjafa Vinnumálastofnunar frá því 3. apríl 2012 að hann hafi þurft að fara skyndilega til Portúgals sökum þess að dóttir hans sem þar býr hafi verið með heiftarlega bakverki sem leita hafi þurft skýringa á. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar 12. apríl 2012 og sú ákvörðun tekin að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið greint frá því að hann hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 15.–19. mars 2012 sem innheimt yrði í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda var tilkynnt þessi ákvörðun með bréfi, dags. 18. apríl 2012.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 11. júní 2012, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

                         

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

 

Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið staddur erlendis á sama tíma og hann var skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum stofnunarinnar hafi hann verið staddur erlendis 15.–27. mars 2012.

 

Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram um þessa ferð sína til útlanda, eins og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun tekur fram að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hérlendis og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum á heimasíðu stofnunarinnar og lög um atvinnuleysistryggingar séu þar einnig aðgengileg. Þá vekur stofnunin athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni er tilkynnt fyrirfram um slíkar ferðir þá sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann er erlendis frá stofnuninni nema fyrir liggi E-303 vottorð.

 

Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi uppfyllti ekki skilyrði atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 15.–27. mars 2012. Þá bendir stofnunin á að fjárhæð ofgreiddra atvinnuleysisbóta verði skuldajafnað á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. júní 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 27. júní 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009 og 3. gr. laga nr. 153/2010, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi.

 

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi staddur erlendis á tímabilinu frá 15.–27. mars 2012, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Samkvæmt samskiptaskrá Vinnumálstofnunar þurfti hann að fara til útlanda þar sem dóttir hans, sem þar býr, veiktist skyndilega í baki og hann lagði fram afrit af skýringum frá lækni og flugfarseðlum. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

 

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009 , verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann þáði á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

 

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 12. apríl 2012 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hans í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 15. til 19. mars 2012 að fjárhæð 11.519 kr. er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum