Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 71/2012.

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 30. apríl 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 71/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 19. mars 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 15. mars 2012 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysisbóta. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka hjá C var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknarinnar. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 30. mars 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 7. janúar 2012.

 

Samkvæmt vottorði vinnuveitenda, dags. 18. janúar 2012, starfaði kærandi hjá C frá 1. júlí til 31. desember 2011 í 50% starfi. Kærandi sagði sjálf starfi sínu lausu hjá C. Hún greinir frá því í bréfi sínu, dags. 27. apríl 2012, að ástæða uppsagnar hennar hafi verið búferlaflutningar frá Vestmannaeyjum til Selfoss. Flutningurinn hafi verið ákveðinn vegna þess að eldri börn hennar og barnabörn væru búsett á höfuðborgarsvæðinu og mikill tími og peningar hafi farið í ferðir á milli lands og eyja, til þess að verja tíma með fjölskyldunni. Samgöngur með Herjólfi hafi ekki verið mjög áreiðanlegar undanfarið ár og ekki þægilegur ferðamáti yfir vetrartímann. Því hafi verið ákveðið að flytja nær börnum og barnabörnum. Ekki sé eins og kærandi hafi sagt starfi sínu lausu til þess að sitja heima og gera ekkert á atvinnuleysisbótum. Flutningurinn hafi verið ástæðan. Kærandi kveðst vera komin með sumarstarf á B og hefji störf þar í byrjum maí en tíminn verði að leiða í ljós hvort um áframhaldandi starf verði að ræða.

 

Kæranda var með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 29. febrúar 2012, gefinn kostur á að koma afstöðu sinni, varðandi ástæður uppsagnarinnar, skriflega á fram færi við stofnunina. Í bréfi kæranda til Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2012, kemur fram að ástæða uppsagnar hennar hjá C sé flutningur frá Vestmannaeyjum til Selfoss.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinumarkaðsaðgerða, dags. 6. júní 2012, er vísað til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Bent er á að í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar sé vísað til þágildandi reglugerðar nr. 545/1997, um greiðslu atvinnuleysisbóta, þar sem talin séu upp tvenns konar tilvik er heyri til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annað þessara tilvika sé þegar maki hins tryggða hefur hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hefur af þeim sökum þurft að flytjast búferlum. Enn fremur segi í greinargerðinni að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Það sé ljóst að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu. Ágreiningurinn snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir.

 

Það sé mat Vinnumálastofnunar að búferlaflutningar einir og sér geti ekki talist gild ástæða í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar fyrir uppsögn á starfi og að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laganna.

 

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. júní 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 25. júní 2012. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

 


 

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

 

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Kærandi sagði sjálf upp starfi sínu hjá C. Af hálfu kæranda kemur fram að ástæða uppsagnarinnar hafi verið búferlaflutningar til Selfoss þar sem börn hennar og barnabörn búi á höfuðborgarsvæðinu og samgöngur milli lands og eyja séu bæði dýrar og óáreiðanlegar. Hún vilji eiga auðveldara með að verja tíma með fjölskyldunni.

 

Kærandi sagði upp starfi sínu án þess að hafa tryggt sér annað starf. Ekki er unnt að fallast á þau sjónarmið kæranda að uppsögn hennar hjá C hafi verið af gildum ástæðum. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að aðstæður hennar hafi ekki verið með þeim hætti að þær réttlættu uppsögn í starfi þar sem annað starf var ekki í boði. Hin kærða ákvörðun var rétt og í samræmi við fyrirmæli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.


Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. mars 2012 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

 

 

            Hulda Rós Rúríksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum