Hoppa yfir valmynd
28. júní 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 144/2012.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 28. júní 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 144/2012.

 

1.
Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda, A, með bréfi, dags. 19. janúar 2012, að stofnunin hefði á fundi sínum 18. janúar 2012 tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt kæranda frá og með 18. janúar 2012 í þrjá mánuði, sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðun Vinnumálastofnunar var tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þessari ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru, dags. 15. ágúst 2012, móttekinni 23. ágúst 2012. Kærandi krefst endurskoðunar á ákvörðuninni. Vinnumálastofnun telur að þriggja mánaða kærufrestur hafi verið liðinn og að vísa beri málinu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

Fram kemur af hálfu Vinnumálastofnunar í bréfi til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 29. ágúst 2012, að ákvörðun stofnunarinnar hafi verið tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 19. janúar 2012. Í ljósi þess að kæra til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða sé dagsett 15. ágúst 2012 telji Vinnumálastofnun að þriggja mánaða kærufrestur sé liðinn og að vísa beri málinu frá úrskurðarnefndinni, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 3. september 2012, sent afrit af bréfi Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 17. september 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

 

2.
Niðurstaða

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæra kæranda, dags. 15. ágúst 2012, barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 23. ágúst 2012. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar var tekin 18. janúar 2012 og tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 19. janúar 2012. Kæran barst því að liðnum kærufresti.

Ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.


 

 

Úrskurðarorð

Kæru A til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða er vísað frá.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                                 Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum