Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 37/2012.

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 16. apríl 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 37/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 27. janúar 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 26. janúar 2012 fjallað um mál hans hjá stofnuninni. Tekin hefði verið sú ákvörðun að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda frá og með 26. janúar 2012 í tvo mánuði, sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem kærandi lét hjá líða að tilkynna um tekjur frá B. Kærandi vildi ekki una ákvörðuninni en af kæru hans til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 29. febrúar 2012, má ráða að hann telur að ákvörðun Vinnumálastofnunar lúti að uppsögn hans hjá B., en uppsögnin var ekki tekin fyrir af hálfu stofnunarinnar. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 9. júní 2009.

 

Við samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra komu fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur kæranda vegna vinnu hjá B. og var kæranda tilkynnt um það með bréfi, dags. 6. desember 2011. Í bréfinu var óskað eftir skriflegum skýringum á hinum ótilkynntu tekjum. Þann 17. janúar 2011 bárust Vinnumálastofnun skýringar kæranda, en þar kemur meðal annars fram að bréf til kæranda frá Vinnumálastofnun hafi verið send á rangt heimilisfang.

 

Af kæru kæranda má ráða, eins og fram hefur komið, að hann telur sig vera að kæra ákvörðun varðandi uppsögn sína hjá B., en sú uppsögn var ekki tekin til meðferðar hjá Vinnumálastofnun. Mál þetta varðar ótilkynntar tekjur kæranda.

 

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 21. maí 2012, vísar Vinnumálastofnun til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu þeirra sem tryggðir eru samkvæmt þeim lögum.

 

Vinnumálastofnun vísar til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans, eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun bendir á að einnig sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar komi fram að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

 

Vinnumálastofnun vísar til 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um þá skyldu atvinnuleitanda að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu atvinnuleitanda á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur.

 

Í kjölfar samkeyrslu Vinnumálastofnunar við gagnagrunn ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur hjá kæranda frá B., fyrir september, október og nóvember 2011. Kærandi hafi skilað tilkynningu um tekjur vegna hlutastarfs hjá B. vegna október, nóvember og desember þann 30. desember 2011. Af samskiptasögu kæranda megi sjá að kærandi tilkynnti ekki um fyrirhugaða vinnu hjá B. líkt og lög um atvinnuleysistryggingar geri ráð fyrir.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. maí 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 6. júní 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 9. júní 2009. Með bréfi, dags. 6. desember 2011, var kæranda gerð grein fyrir því að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur á kæranda vegna vinnu hjá B. Óskað var skriflegra upplýsinga um ótilkynntar tekjur. Stofnuninni bárust skýringar kæranda 17. janúar 2011. Á grundvelli þessara upplýsinga var sú ákvörðun tekin að stöðvar greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda um tveggja mánaða skeið, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Þegar atvinnuleitandi sinnir tilfallandi vinnu, samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysisbóta, ber honum að upplýsa um slíkt fyrir fram, sbr. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Brjóti atvinnuleitandi á þessu ákvæði kann hann að sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. til dæmis úrskurð úrskurðarnefndarinnar frá 7. desember 2010 í máli nr. 80/2010. Sinni atvinnuleitandi hlutastarfi, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur, kann hann einnig að sæta viðurlögum skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Viðurlög á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru mun meira íþyngjandi en þau sem getið er í 59. gr. laganna.

 

Í ljósi þess að kærandi var í starfi, eftir að hann hóf töku atvinnuleysisbóta, og án þess að hann upplýsti fyrir fram um eðli þess starfs, verður að leggja til grundvallar að 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi fremur við í máli hans en 59. gr. laganna.

 

Leggja verður til grundvallar að hin kærða ákvörðun hafi verið reist á röngum lagagrundvelli, þ.e. beita átti fremur 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í málinu í stað 59. gr. laganna. Þar sem viðurlög skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru afar íþyngjandi í garð atvinnuleitenda verður að veita þeim kost á að leita endurskoðunar á ákvörðun sem reist er á ákvæðinu. Af þessari ástæðu getur úrskurðarnefndin ekki afgreitt málið á þeim lagagrundvelli. Því verður hin kærða ákvörðun ómerkt og Vinnumálastofnun falið að taka málið til löglegrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð

 

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. janúar 2012 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hans í tvo mánuði er ómerkt og málinu vísað aftur til Vinnumálastofnunar til löglegrar meðferðar.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

            Hulda Rós Rúríksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum