Hoppa yfir valmynd
5. desember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 164/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 5. desember 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 164/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að kærandi, A, sótti um atvinnuleysisbætur hinn 9. febrúar 2011. Vinnumálastofnun taldi viðmiðunartímabil við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda vera frá júní 2010 til og með nóvember 2010. Kæranda voru ekki greiddar tekjutengdar atvinnuleysisbætur þar sem þær greiðslur voru samkvæmt viðmiðunartímabilinu lægri en grunnatvinnuleysisbætur sem kærandi átti rétt á skv. 32. gr. laga um atvinnuleysisbætur, nr. 54/2006. Kærandi telur útreikning viðmiðunartímabils ekki réttan þar sem hann var hluta af því tímabili frá vinnu vegna vinnuslyss og kærði ákvörðunina til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi mótteknu 25. nóvember 2011. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur var samþykkt 29. mars 2011 en með vísan til starfsloka hans hjá B var honum gert að sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Eftir að Vinnumálastofnun bárust frekari gögn í máli hans var biðtími vegna starfsloka felldur niður á fundi stofnunarinnar 19. apríl 2011.

 

 

 

2.

Niðurstaða

 

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 9. febrúar 2011 og var umsóknin samþykkt 29. mars 2011. Honum var gert að sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en sú ákvörðun var felld niður 19. apríl 2011. Kæra kæranda barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 25. nóvember 2011. Ekkert í gögnum máls þessa gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 


Úrskurðarorð

 

Kæru í máli A er vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

           

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum