Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 81/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 4. apríl 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 81/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 16. febrúar 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hann hafi verið við vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en kærandi hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 18. maí 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að ný ákvörðun verði tekin í máli hans. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 17. nóvember 2009 og fékk greiddar bætur í samræmi við rétt sinn. Með bréfi, dags. 16. febrúar 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að stofnunin hafi ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans, þar sem hann hafi starfað í 100% starfi í október 2010 hjá X hf. samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Í vottorði vinnuveitenda, X hf., dags. 20. apríl 2011, kemur fram að kærandi hafi starfað hjá fyrirtækinu frá 21. september til 25. október 2010. Honum hafi síðan verið sagt upp störfum.

Í kærunni segir kærandi að hann hafi verið ráðinn til reynslu og verið sagt upp störfum að mánuði liðnum. Kærandi kveðst ítrekað hafa nefnt við vinnuveitanda sinn hvort hann ætti ekki að koma með skattkort til hans en vinnuveitandinn hafi sagt að ekkert lægi á því og hafi kærandi ekki talið sig vera að brjóta nein lög eða reglur. Kærandi fari því fram á að vera aftur skráður á atvinnuleysisskrá enda sé hann í virkri atvinnuleit. Fram kemur að kærandi sé að sönnu íslenskur ríkisborgari en hann sé upprunninn í landinu Y og þekki ekki íslenskt lagaumhverfi. Hann hafi alfarið treyst á vinnuveitanda sinn, þ.e. X, varðandi það að rétt væri að honum bæri ekki að sækja skattkortið sitt strax. Kærandi hafi að öllu leyti staðið sig vel eftir að hann hafi flutt til Íslands, hann skuldi enga skatta eða opinber gjöld. Það sé honum afskaplega erfitt að hafa nú verið settur á bið hjá Atvinnuleysistryggingasjóði um eins árs skeið, hann hafi fyrir fjölskyldu að sjá og vonist að sjálfsögðu til að fá vinnu, en verði ekki af því í bráð hafi fjölskyldan í raun ekkert sér til viðurværis og hafi reyndar þegar þurft að leita aðstoðar félagsmálayfirvalda sem sé kæranda mjög þungbært.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 29. júní 2011, kemur fram að við samkeyrslu á gagnagrunnum stofnunarinnar og ríkisskattstjóra, sem fram hafi farið í janúar 2011, hafi komið upp tekjur á kæranda í október 2010 að upphæð 320.490 kr. frá X hf. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu eða hlutastarfs í október 2010. Vinnumálastofnun hafi með bréfi, dags. 7. janúar 2011, óskað eftir því að kærandi gerði grein fyrir þeim tekjum er hann hafi haft á sama tíma og hann hafi þegið atvinnuleysisbætur. Þann 14. janúar 2011 hafi kærandi skilað inn launaseðli frá X hf. ásamt eyðublaðinu Tilkynning um tekjur þar sem tilkynnt hafi verið um tekjur í október 2010.

Vinnumálastofnun bendir á að mál þetta varði viðurlög vegna brota á 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kærandi hafi verið í starfi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysistryggingar án þess að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit væri hætt skv. 35. gr. a eða 10. gr. laganna. Mál kæranda varði einnig innheimtu ofgreiddra atvinnuleysistrygginga skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun vísar til laga nr. 134/2009, um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Verknaðarlýsing ákvæðisins geri grein fyrir því hvaða atvik geta leitt til þess að viðurlögum á grundvelli ákvæðisins er beitt. Í athugasemdum með 23. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 134/2009, segi að Vinnumálastofnun skuli beita viðurlögum ef atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fái greiddar atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna stofnuninni um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða 35. gr. a laganna.

Fram kemur að í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Það sé ljóst að einstaklingur sem sinni fullu starfi geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Vísað er í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og bent á að af gögnum málsins megi sjá að kærandi hafi verið í starfi hjá X hf. á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysistryggingar frá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi ekki tilkynnt um þessar breytingar á högum sínum til stofnunarinnar en rík skylda hvíli á þeim sem njóti greiðslna atvinnuleysistrygginga að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar sem geti ákvarðað bótarétt viðkomandi. Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur, sbr. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum.

Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar frá 1. október til 31. október 2010 og hafi að auki ekki tilkynnt til stofnunarinnar að virkri atvinnuleit væri hætt. Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um leiðréttingu á ofgreiddum bótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laganna beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Beri kæranda því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið frá 1. október til 31. október 2010 að upphæð 100.724 kr. með 15% álagi.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 30. júní 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 14. júlí 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þessu ákvæði var bætt við lög um atvinnuleysistryggingar, með 23. gr. laga nr. 134/2009, en með þeim lögum voru gerðar ýmsar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar í því skyni að gera strangari kröfur um trúnaðarskyldur atvinnuleitenda gagnvart Vinnumálastofnun. Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi því sem varð að lögum nr. 134/2009 segir að beita eigi ákvæði 60. gr. í þrenns konar tilvikum. Í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum og hefur ekki tilkynnt Vinnumálastofnun að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. 35. gr. a.

Helsti tilgangur 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er að tryggja að atvinnuleitendur veiti réttar upplýsingar um hagi sína í atvinnumálum og upplýsi um breytingar sem á þeim kunna að verða. Með þessu á meðal annars að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

Kærandi starfaði hjá X hf. frá 21. september til 25. október 2010 og fékk á þeim tíma greitt samkvæmt launaseðli samtals 320.490 kr. á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur.

Í þessu máli verður ekki fallist á að kærandi hafi verið að sinna tilfallandi vinnu í skilningi 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, en telja verður tilfallandi vinnu þá atvinnustarfsemi sem fellur til með óreglubundnum hætti og standi að jafnaði stutt yfir hverju sinni en ekki í heilan mánuð samfellt eins og á við í þessu máli. Af þessum sökum kemur eingöngu til greina að beita 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á þeim grundvelli að kærandi hafi starfað á vinnumarkaði á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit væri hætt.

Þegar 60. gr. laganna er beitt á þessum grundvelli þarf að skýra orðin að „starfa á vinnumarkaði“ með hliðsjón af a- og b-lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt a-lið ákvæðisins er launamaður hver sá sem vinnur launuð störf í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði og greitt er tryggingagjald vegna starfsins samkvæmt lögum um tryggingagjald. Í b-lið ákvæðisins er sjálfstætt starfandi einstaklingur hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum fjármálaráðherra, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi vegna starfs síns.

Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um tekjur í október 2010 á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi var á þessu tímabili launamaður í skilningi a-liðar 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og starfaði á innlendum vinnumarkaði í skilningi 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af framansögðu er ljóst að kærandi var starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur. Hann upplýsti Vinnumálastofnun ekki um að atvinnuleit hans hafi verið hætt. Eðli málsins samkvæmt er það hann sem atvinnuleitandi sem ber ábyrgð á að koma þessum upplýsingum á framfæri við Vinnumálastofnun en ekki vinnuveitandi hans. Skýringum kæranda, um að vinnuveitandi hans hafi talið óþarft að hann kæmi skattkorti sínu til sín, er þegar af þessum ástæðum hafnað. Þessu til viðbótar skal á það bent að kærandi hafði á þessum tíma fengið greiddar atvinnuleysisbætur í tæpt ár. Honum gat vart dulist að honum væri óheimilt að starfa á innlendum vinnumarkaði og á sama tíma þiggja greiðslur atvinnuleysisbóta án þess að tilkynna að hann hafi fengið viðkomandi starf.

Það er niðurstaða úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að með framangreindri háttsemi hafi kærandi brotið gegn 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og því beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Á tímabilinu október 2010 fékk kærandi greiddar 87.586 kr. í atvinnuleysisbætur, sbr. færslu í samskiptasögu Vinnumálastofnunar og kæranda, dags. 9. febrúar 2011. Vinnumálastofnun krefst þess að fá þá upphæð endurgreidda að viðbættu 15% álagi, sbr. 3. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 1. málsl. 2. mgr. 39. gr. sömu laga. Krafa Vinnumálastofnunar er því í heild sinni 100.724 kr. Fallast verður á að kæranda beri að endurgreiða upphæðina eins og kveðið var á um í hinni kærðu ákvörðun.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 16. febrúar 2011 í máli A þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og um stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga til kæranda er staðfest.

Kærandi skal endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að upphæð 100.724 kr.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum