Hoppa yfir valmynd
14. maí 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 134/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 14. maí 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 134/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 22. júlí 2011, var kæranda, A, tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 22. júlí 2011 tekið þá ákvörðun að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi var staddur erlendis á tímabilinu 11. júní til 21. júní 2011 og uppfyllti því ekki skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili, sbr. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar segir að almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna sé að vera búsettur og staddur hér á landi. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hann var staddur erlendis. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 7. ágúst 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 11. ágúst 2008.

Þann 20. júní 2011 barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá landinu X. Í kjölfarið var kæranda sent bréf þann 8. júlí 2011 frá eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hans erlendis. Þann 12. júlí 2011 sendi kærandi tölvupóst á eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar með skýringum á dvöl sinni erlendis. Þar kom fram að kærandi hefði dvalið í landinu X tímabilið 11. júní til 21. júní 2011. Kærandi sendi einnig afrit af flugfarseðlum, brottfarar- og heimkomudegi til staðfestingar. Í skýringarbréfi sínu bar kærandi því við að hann hefði ekki vitað að honum bæri skylda til að tilkynna Vinnumálastofnun um fyrirhugaðar ferðir sínar erlendis. Á fundi Vinnumálastofnunar þann 13. júlí 2011 voru skýringar kæranda metnar og sú ákvörðun tekin að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda var tilkynnt þessi ákvörðun í bréfi samdægurs. Í bréfi þessu var kæranda einnig tilkynnt að hann hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar tímabilið 11. júní til 19. júní 2011 er hann var staddur erlendis.

Í kæru sinni, dags. 7. ágúst 2011, kveðst kærandi ekki hafa heyrt að ekki væri leyfilegt að taka sér sumarfrí. Hann bendir á að alltaf hafi verið hægt að ná í hann, þar sem hann hafi bæði verið með tölvu og farsíma. Kærandi telur rétt að draga frá honum þá 5 virku daga sem hann var í útlöndum, sérstaklega þar sem honum hafi aldrei verið tilkynnt að ekki væri leyfilegt að taka sér sumarfrí.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. október 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum.

Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, segi meðal annars að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Vinnumálastofnun bendir á að þessar upplýsingar komi einnig fram á vef Vinnumálastofnunar. Þá vísar Vinnumálastofnun einnig til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda um greiðslur atvinnuleysistrygginga, að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið staddur erlendis á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt flugfarseðli hafi kærandi verið staddur í landinu X á tímabilinu 11. júní til 21. júní 2011.

Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um þessa ferð sína til útlanda, eins og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til skýringarbréfs kæranda þar sem hann kveðst ekki hafa vitað af framangreindum skilyrðum laganna. Vinnumálastofnun tekur fram að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysistrygginga séu óheimilar. Einu undanþágur frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Vinnumálastofnun segir að sérstök athygli sé vakin á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim, sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit, sé bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag. Vinnumálastofnun tekur fram að hún veki einnig athygli atvinnuleitanda á því að í þeim tilvikum er Vinnumálastofnun sé tilkynnt fyrirfram um slíkar ferðir til útlanda, sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að ef ekki liggi fyrir E-303 vottorð hjá stofnuninni, fái hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dveljist erlendis.

Það er því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta.

Niðurstaða stofnunarinnar var því að kærandi skyldi sæta biðtíma eftir atvinnuleysistryggingum í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það var enn fremur niðurstaða stofnunarinnar að kærandi fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem hann dvaldi erlendis og að honum beri að endurgreiða hinar ofgreiddu atvinnuleysisbætur.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 7. nóvember 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 21. nóvember 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar [skv. 14. gr.] eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest að hann var staddur erlendis frá 11. júní til 21. júní 2011, en hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að honum hafi ekki verið kunnugt um að atvinnuleitendum beri skylda til að tilkynna Vinnumálastofnun utanlandsferðir fyrirfram auk þess sem alltaf hafi verið hægt að ná í hann í utanlandsferðinni. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þá fullyrðingu að kæranda hafi verið ókunnugt um framangreinda skyldu sína. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verður talið að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann þáði á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysistrygginga, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 22. júlí 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði er staðfest.

Enn fremur er staðfest sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að kærandi endurgreiði atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 11. júní til 19. júní 2011.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum