Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 122/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 24. apríl 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 122/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að kærandi, A, sótti um atvinnuleysisbætur þann 16. mars 2009. Þann 25. ágúst 2009 óskaði kærandi eftir að vera afskráð af atvinnuleysisskrá þar sem hún var komin með vinnu frá 1. september 2009. Þann 3. ágúst 2011 sótti kærandi að nýju um atvinnuleysisbætur og kom þá inn á sama bótatímabil skv. 3. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Þar sem hún hafði klárað rétt sinn til tekjutengdra atvinnuleysisbóta á því bótatímabili fékk hún greiddar grunnatvinnuleysisbætur. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 13. september 2011. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að útreikningi atvinnuleysisbóta í máli kæranda.

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá 16. mars 2009. Hún fékk greiddar tekjutengdar atvinnuleysisbætur í samræmi við 6. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysisbætur. Þann 29. júní 2009 var réttur kæranda til tekjutengdra atvinnuleysisbóta fullnýttur skv. 1. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt samskiptasögu kæranda var hún afskráð þann 25. ágúst 2009 vegna vinnu sem hún hafði fengið frá 1. september 2009. Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur þann 11. ágúst 2011 og kom inn á sama bótatímabil skv. 3. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem hún hafði þegar klárað rétt sinn til tekjutengdra atvinnuleysistrygginga er hún var síðast skráð atvinnulaus fékk hún greiddar grunnatvinnuleysisbætur, sbr. 8. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í kæru sinni segir kærandi að hún hafi orðið atvinnulaus árið 2009 og hafi verið á atvinnuleysisbótum allt þar til hún hafi fengið vinnu sem lausráðinn kennari í framhaldsskólanum X 1. ágúst 2009. Síðasta greiðslan frá Vinnumálastofnun hafi verið fyrir tímabilið 20. júlí til 31. júlí 2009. Hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur að nýju þann 3. ágúst 2011 þannig að sannarlega hafi liðið tvö ár á milli.

Samkvæmt launaseðli frá framhaldsskólanum X, dags. 1. september 2009, sem kærandi lagði fram, fékk hún í tekjur frá skólanum fyrir tímabilið 1. ágúst til 31. ágúst 2009 172.392 kr., en hún var þar í 50% kennslu. Samkvæmt meðfylgjandi útprentun af greiðsluseðli atvinnuleysistrygginga  fékk kærandi greiddar í atvinnuleysisbætur í ágúst 2009 samtals 24. 262 kr.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 26. september 2011, kemur fram að skv. 1. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar öðlist atvinnuleitandi sem skráður er atvinnulaus rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í allt að þrjá mánuði frá þeim tíma er grunnatvinnuleysisbætur skv. 33. gr. hafi verið greiddar í samtals tíu virka daga nema annað leiði af lögunum. Fram kemur að skv. 3. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar haldi tímabil skv. 1. mgr. 29. gr. áfram að líða þegar sá tryggði sæki aftur um atvinnuleysisbætur eftir að hafa starfað skemur en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Skilyrði 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar fyrir því að nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist áður en fyrra tímabili ljúki að fullu sé að hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þannig sé gert ráð fyrir að umsækjandi um atvinnuleysisbætur sem fari aftur inn í kerfið eftir skemmri tíma en 24 mánuði á vinnumarkaði eigi ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum heldur grunnatvinnuleysisbótum, hafi hann fullnýtt rétt sinn skv. 1. mgr. 32. gr. laganna. Kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur til 25. ágúst 2009. Hún hafi sótt að nýju um atvinnuleysisbætur þann 3. ágúst 2011, sem sé skemmri tími en 24 mánuðir frá því að hún hafi síðast verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun.

Í kæru til úrskurðarnefndarinnar segi kærandi að síðasta greiðsla til hennar á árinu 2009 hafi verið fyrir tímabilið 20. júlí til 31. júlí. Færi hún fram greiðsluseðil atvinnuleysisbóta frá september 2011. Samkvæmt greiðslusögu kæranda hjá Vinnumálastofnun og greiðsluseðlum hafi síðasti dagur sem kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysistryggingar verið 25. ágúst 2009. Kærandi hafi sjálf afskráð sig hjá stofnuninni þann dag.

Samkvæmt greiðslusögu kæranda hjá stofnuninni hafi verið 23 mánuðir frá því að kærandi hafi síðast þegið atvinnuleysisbætur er hún hafi sótt aftur um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 3. ágúst 2011. Því sé ómögulegt fyrir kæranda að hafa starfað á innlendum vinnumarkaði í nægan tíma til að eiga rétt á nýju bótatímabili skv. 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skilyrði 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar fyrir því að nýtt tekjutengt tímabil skv. 29. gr. hefjist áður en fyrra tímabili ljúki að fullu sé því ekki uppfyllt.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. september 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 11. október 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að ágreiningi um tekjutengdar atvinnuleysisbætur. Í 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segir að sé sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tekjutengdar atvinnuleysisbætur. Í 8. mgr. lagagreinarinnar kemur fram að þegar tímabil skv. 29. gr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur eigi hann ekki rétt á atvinnuleysisbótum samkvæmt ákvæði þessu enda hafi hann áður fullnýtt rétt sinn skv. 1. mgr. 32. gr. laganna.

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá 16. mars til 25. ágúst 2009. Hún sótti að nýju um atvinnuleysisbætur þann 3. ágúst 2011 eða rúmum 23 mánuðum síðar. Í athugasemdum við 32. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar segir að eingöngu sé gert ráð fyrir að umsækjandi öðlist rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í upphafi hvers tímabils skv. 29. gr. frumvarpsins. Þannig sé gert ráð fyrir að hinn tryggði sem fer aftur inn í kerfið eftir skemmri tíma en 24 mánuði á vinnumarkaði eigi ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum heldur grunnatvinnuleysisbótum í samræmi við hlutfallslegan rétt hans til atvinnuleysistrygginga.

Með vísan til þess sem hér hefur komið fram og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að réttur A til tekjutengdra atvinnuleysisbóta sé fullnýttur er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum