Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 121/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 24. apríl 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 121/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 19. ágúst 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis frá 19. júlí til 29. júlí 2011 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt, að þar sem hún hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði sem ella hefði verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Ákvörðunin væri tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 61. gr. s.l. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 12. september 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 31. mars 2010. Hún hafði þá sagt upp hlutastarfi sínu í X. Á fundi sínum þann 8. júní 2011 felldi Vinnumálastofnun niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem ástæður starfsloka töldust ekki gildar. Í kæru sinni, dags. 12. september 2011, fjallar kærandi um þennan þátt málsins, en þar sem frestur til þess að kæra umrædda ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 8. júní 2011 var liðinn, sbr. ákvæði 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður sú ákvörðun ekki tekin til meðferðar og úrlausnar í þessum úrskurði.

Vinnumálastofnun barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá erlendu upprunalandi, þann 27. júlí 2011. Í kjölfarið sendi Vinnumálastofnun kæranda bréf þann 8. ágúst 2011, þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hennar erlendis. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar þann 28. júní 2010. Þann 9. ágúst 2011 sendi kærandi tölvupóst til Vinnumálastofnunar með skýringum á dvöl sinni erlendis. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda með bréfi, dags. 19. ágúst 2011, um þá ákvörðun stofnunarinnar að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar. Henni var einnig tilkynnt að hún ætti ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þá daga er hún var erlendis.

Í kæru kæranda kemur meðal annars fram að ástæða þess að hún hafi ekki látið vita af för sinni til útlanda síðastliðið sumar hafi verið sú að hún hafi gleymt því og hafi hún látið vita í bréfi eftir á og sent afrit af flugfarseðlinum. Henni hafi verið boðið út með aðeins tveggja daga fyrirvara. Kærandi tekur fram að henni finnist ekki sanngjarnt að fella hana út af bótum á þessum forsendum.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 21. september 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun þessar upplýsingar komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Auk þess sé þessar upplýsingar að finna í bæklingi sem afhentur sé öllum umsækjendum um greiðslur atvinnuleysistrygginga er þeir komi á kynningarfund hjá stofnuninni. Skyldumæting sé á fundinn. Þessar upplýsingar komi einnig fram á vef Vinnumálastofnunar undir liðnum „réttindi og skyldur“.

Vinnumálastofnun bendir á að í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit. Það sé jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Það sé óumdeilt að kærandi hafi verið stödd erlendis á sama tíma og hún var skráð atvinnulaus hjá stofnuninni, en hún hafi verið í landinu B tímabilið 19. júlí til 29. júlí 2011.

Kærandi hafi ekki tilkynnt um utanlandsferð sína eins og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi beri því við að hún hafi gleymt að tilkynna um för sína. Vinnumálastofnun bendir á að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysisbóta.

Kæranda var ákveðinn missir bótaréttar í þrjá mánuði. Fram kemur í greinargerð Vinnumálastofnunar að ítrekunaráhrifin vegna tveggja mánaða biðar eftir greiðslum atvinnuleysisbóta er kærandi hafi hlotið þann 8. júní 2011 vegna starfsloka hjá X. Kærandi víki í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar að fyrri ákvörðun stofnunarinnar um biðtíma vegna starfsloka hennar. Í ljósi þess að kæra sé dagsett 12. september 2011 og fyrri ákvörðun Vinnumálastofnunar um biðtíma frá 8. júní 2011 telji stofnunin að þriggja mánaða kærufrestur vegna þeirrar ákvörðunar sé liðinn, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeim sökum telji Vinnumálastofnun ekki vera ástæðu til sérstakrar umfjöllunar um ákvörðun stofnunarinnar frá 8. júní 2011 í greinargerð sinni.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 26. september 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 10. október 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest meðal annars með framlagningu gagna að hún var stödd erlendis frá 19. júlí til 29. júlí 2011, en hún tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að henni hafi boðist að fara í utanlandsferðina með afar stuttum fyrirvara og að hún hafi gleymt að tilkynna Vinnumálastofnun um utanlandsferðina fyrir fram. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar, meðal annars með afhendingu bæklinga með upplýsingum um þetta. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

Þar sem kærandi hafði áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar sætir hún ítrekunaráhrifum, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og er réttur hennar til atvinnuleysisbóta felldur niður í þrjá mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 17. ágúst 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í þrjá mánuði er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum