Hoppa yfir valmynd
14. maí 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 106/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 14. maí 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 106/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 13. júlí 2011, var kæranda, A, tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 13. júlí 2011 tekið þá ákvörðun að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi var stödd erlendis á tímabilinu 29. apríl til 27. maí 2011 og uppfyllti því ekki skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili, sbr. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar segir að almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna sé að vera búsettur og staddur hér á landi. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hún var stödd erlendis. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 9. ágúst 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 28. febrúar 2009.

Þann 24. maí 2011 barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá landinu X. Í kjölfarið var kæranda sent bréf þann 16. júní 2011 frá eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hennar erlendis. Þann 22. júní 2011 sendi kærandi tölvupóst á eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar með skýringum á dvöl sinni erlendis. Þar kom fram að kærandi hefði dvalið í landinu X á framangreindu tímabili. Kærandi sendi einnig afrit af flugfarseðlum, brottfarar- og heimkomudegi til staðfestingar. Í skýringarbréfi sínu bar kærandi því við að hún hefði ekki vitað að hún ætti að tilkynna Vinnumálastofnun um fyrirhugaðar ferðir sínar erlendis og að tilgangur ferðarinnar hafi meðal annars verið sá að fara með son hennar til læknis. Á fundi Vinnumálastofnunar þann 13. júlí 2011 voru skýringar kæranda á dvöl hennar erlendis metnar og sú ákvörðun tekin að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda var tilkynnt þessi ákvörðun í bréfi samdægurs. Í bréfi þessu var kæranda einnig tilkynnt að hún hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar tímabilið 29. apríl til 27. maí 2011 er hún var stödd í landinu X. Einnig kemur þar fram að þar sem kærandi uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar á umræddu tímabili eigi hún ekki rétt á greiðslum fyrir þá daga er hún var erlendis.

Í kæru sinni, dags. 9. ágúst 2011, kveðst kærandi ekki minnast þess að hafa verið upplýst um að henni bæri að tilkynna til Vinnumálastofnunar ef hún færi til útlanda, en þar sem tungumálakunnátta hennar sé fremur takmörkuð og mikið um misskilning varðandi íslensku þá geti verið að þetta hafi verið nefnt en farið framhjá henni.

Þá skýringu veitir kærandi um ástæðu utanlandsferðar sinnar að hún hafi lengi haft hug á að fara með drenginn sinn til landsins X, sem sé heimaland hennar, til að fá álit fleiri lækna, en hún hafi verið ósátt við greiningu sem hún hafi fengið á Íslandi. Þannig hafi viljað til að maðurinn hennar hafi komist frá vinnu með stuttum fyrirvara og þau séð fram á að komast bæði með drenginn til læknis.

Í ljósi þess að fyrirvarinn hafi verið skammur hafi orka kæranda farið í að finna lækni, flugmiða og annað sem hafi þurft til að þetta gæti gengið, þannig hafi hugurinn ekki verið mikið við atvinnuleit fyrr en komið hafi verið til landsins X en þar hafi hún haldið áfram að fylgjast með hugsanlegum störfum sem hún ætti möguleika á þegar heim kæmi.

Kærandi skilji vel að bæturnar hafi verið felldar niður þann tíma sem hún hafi verið stödd erlendis og því ekki í aðstöðu til að stökkva í vinnu án fyrirvara, en þar sem kærandi hafi ekki haft upplýsingar um þetta skilyrði að hún þyrfti að tilkynna um þessa ferð, auk þess sem hún hafi verið í læknisfræðilegum tilgangi og hafi sent öll gögn til Vinnumálastofnunar eins og óskað hafi verið eftir, þá þyki henni það frekar grimmileg ákvörðun að taka ekkert tillit þeirra gagna heldur eingöngu styðjast við reglugerðir sem kæranda hafi ekki verið kunnugt um að væru til.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 18. ágúst 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum.

Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, segi meðal annars að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Vinnumálastofnun bendir á að þessar upplýsingar komi einnig fram á vef Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is, undir liðnum „réttindi og skyldur“ þar sem segir: „Fari þeir sem fá greiddar atvinnuleysisbætur til útlanda, falla greiðslur atvinnuleysisbóta niður fyrir þann tíma sem dvalið er erlendis.

Þá vísar Vinnumálastofnun einnig til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda um greiðslur atvinnuleysistrygginga, að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið stödd erlendis á sama tíma og hún hafi verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt flugfarseðli frá Icelandair hafi kærandi verið stödd í landinu X tímabilið 29. apríl til 27. maí 2011.

Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um þessa ferð sína til útlanda, eins og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til skýringarbréfs kæranda þar sem hún kveðst ekki hafa vitað af framangreindum skilyrðum laganna. Vinnumálastofnun tekur fram að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysistrygginga séu óheimilar. Einu undanþágur frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Vinnumálastofnun segir að sérstök athygli sé vakin á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim, sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit, sé bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag.

Vinnumálastofnun tekur fram að hún veki einnig athygli atvinnuleitanda á því að í þeim tilvikum er Vinnumálastofnun sé tilkynnt fyrirfram um slíkar ferðir til útlanda, sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að ef ekki liggi fyrir E-303 vottorð hjá stofnuninni, fái hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dveljist erlendis.

Það er því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga.

Niðurstaða stofnunarinnar var því að kærandi skyldi sæta biðtíma eftir atvinnuleysistryggingum í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, 13. júlí 2011, sbr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það var enn fremur niðurstaða stofnunarinnar að kærandi fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem hún dvaldi erlendis og að kæranda beri að endurgreiða hinar ofgreiddu atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. september 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 19. september 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar [skv. 14. gr.] eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest að hún var stödd erlendis frá 29. apríl til 27. maí 2011, en hún tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að henni hafi ekki verið kunnugt um að atvinnuleitendum beri skylda til að tilkynna Vinnumálastofnun utanlandsferðir fyrirfram. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þessa fullyrðingu. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verður talið að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún þáði á meðan hún var stödd erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysistrygginga, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 13. júlí 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 29. apríl til 27. maí 2011 er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum