Hoppa yfir valmynd
21. desember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 194/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 21. desember 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 194/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2010, var A, tilkynnt að ákveðið hafi verið að fella niður bótarétt hennar frá og með 23. júní 2010 í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða dagsetta 13. október 2010 og var hún móttekin 14. október 2010.

Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu Vinnumálastofnunar til málsins með bréfi, dags. 15. október 2010. Greinargerð stofnunarinnar er dagsett 12. apríl 2011 og ásamt henni bárust frekari gögn málsins. Í áðurnefndri greinargerðinni eru málavextir og málsmeðferð reifuð og gerð grein fyrir afstöðu stofnunarinnar til málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar og meðfylgjandi gögn voru send kæranda með bréfi, dags. 14. apríl 2011, og henni gefinn kostur á að koma athugasemdum sínum á framfæri fyrir 28. apríl 2011. Kærandi nýtti sér það ekki.  

 

2.

Niðurstaða

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. ml. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. ml. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Hin kærða ákvörðun í máli þessu var tekin á fundi Vinnumálastofnunar þann 16. júní 2010 og tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 23. júní 2010. Í bréfinu var kæranda tilkynnt um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og um kærufrest til nefndarinnar. Kæra kæranda barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 14. október 2010. Ekkert í gögnum máls þessa gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

Úrskurðarorð

Kæru í máli A er vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum