Hoppa yfir valmynd
6. október 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 222/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 6. október 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 222/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 21. nóvember 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 20. október 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 25. ágúst 2010. Vinnumálastofnun samþykkti umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, en með vísan til námsloka við Tækniskólann var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, með vísan til 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 27. nóvember 2010. Kærandi krefst þess að honum verði greiddar atvinnuleysisbætur án biðtíma frá skráningardegi, 25. ágúst 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 25. ágúst 2010. Með bréfi, dags. 4. október 2010, óskaði Vinnumálastofnun eftir frekari upplýsingum um ástæður þess að hann hafi hætt námi við Tækniskólann. Á eyðublaði um staðfestingu vegna náms til Vinnumálastofnunar, dags. 25. ágúst 2010, tilgreinir kærandi að hann hafi ekki lokið námi við Tækniskólann og sé ekki skráður í nám við skólann á næstu önn.

Þann 5. október 2010 sendi kærandi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar skýringar á námslokum sínum í tölvupósti þar sem hann segist hafa hætt námi vegna fjárhagsaðstæðna. Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. nóvember 2010, segir kærandi að hann hafi ekki hætt námi sjálfviljugur. Hið rétta í málinu sé að honum hafi verið synjað um áframhaldandi skólagöngu í Tækniskólanum á haustönn 2010, en að honum hafi staðið til boða að hefja nám í skólanum eftir áramótin.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða bendir stofnunin á að í X. kafla laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði er mæli fyrir um biðtíma er hinn tryggði skuli sæta, segi hann starfi upp án gildra ástæðna eða hætti námi án gildra ástæðna. Einnig vísar Vinnumálastofnun til þess að í greinargerð við frumvarp það er síðar varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé í umfjöllun um 1. mgr. 55. gr. frumvarpsins vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins um hvaða ástæður geti talist gildar. Í fyrrnefndri greinargerð við 1. mgr. 54. gr. segir að erfitt geti reynst að telja upp endanlega þau tilvik, þ.e. hvaða aðstæður teljist gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laganna, og lagareglan sé því matskennd. Í dæmaskyni um gildar ástæður í skilningi laganna séu til dæmis nefnd þau tilvik þegar fjölskylda umsækjanda flytur búferlum vegna starfa maka eða vegna heilsufarsástæðna atvinnuleitanda.

Bendir Vinnumálastofnun á að stofnuninni sé falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi, falli að umræddri reglu. Skuli stofnunin líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða og hafa í huga að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Jafnframt beri að líta til þess að orðalagið „gildar ástæður“ beri að túlka þröngt í þessu samhengi og þar af leiðandi færri tilvik en ella sem falli þar undir. Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem misst hafi starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Gera verði þá kröfu til þeirra sem segi upp starfi sínu eða hætti námi að þeir hafi til þess gildar ástæður.

Vinnumálastofnun vísar til þess að samkvæmt upplýsingum frá Tækniskólanum hafi kærandi verið við nám hjá skólanum á vorönn 2010, jafnframt vísar stofnunin í eyðublað um staðfestingu vegna náms sem kærandi hafi fyllt út ásamt umsókn um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 25. ágúst 2010. Jafnframt vísar Vinnumálastofnun í skýringarbréf kæranda til stofnunarinnar, dags. 5. október 2010, þar sem hann segist hafa hætt námi af því að hann „átti ekki peninga til þess að fara aftur“. Vinnumálastofnun áréttar að ákvörðun stofnunarinnar hafi meðal annars verið byggð á þeim upplýsingum frá kæranda. Vinnumálastofnun vísar til þess að í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. nóvember 2010, segi kærandi að honum hafi verið synjað um áframhaldandi skólavist í Tækniskólanum á haustönn 2010, en ekki komi fram frekari skýringar á ástæðum að baki þeirri synjun.

Vinnumálastofnun bendir á að skýringar þær sem kærandi færi fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í kæru sinni, dags. 27. nóvember 2010, séu í engu samræmi við skýringarbréf hans til Vinnumálastofnunar , dags. 5. október 2010, þar sem kærandi tjái stofnuninni að hann hafi skráð sig úr námi vegna fjárhagsstöðu. Vinnumálastofnun metur það svo að skýringar þær er kærandi hafi fært fyrir brottfalli sínu úr námi, bæði í skýringarbréfi til stofnunarinnar og í kæru sinni til úrskurðarnefndar, geti ekki talist gildar ástæður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar er sú að kærandi eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar hans um atvinnuleysisbætur.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. maí 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Málið lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. a-lið 18. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur hættir námi, sbr. c-lið 3. gr. laganna, og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum við 55. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar segir að þeir sem hætta námi án þess að hafa til þess gildar ástæður þurfi að sæta sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Vísað er til umfjöllunar um 54. gr. frumvarpsins í því sambandi. Þar kemur fram að erfiðleikum sé bundið að skilgreina nákvæmlega gildar ástæður í lögum og reglugerðum og því þurfi að meta hvert tilvik fyrir sig. Orðalagið „gildar ástæður“ hefur verið skýrt þröngt sem þýðir að fá tilvik falla þar undir.

Af framangreindu er ljóst að ef ekki liggja fyrir veigamiklar ástæður fyrir því að námi er hætt, þarf umsækjandi um atvinnuleysisbætur að sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Fjárhagsástæður hafa almennt ekki talist gildar ástæður í þessu sambandi. Kærandi hafði ekki lokið námi við Tækniskólann er hann sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 25. ágúst 2010, en hann var ekki skráður í nám við skólann á haustönn 2010.

Málið snýst um ákvörðun Vinnumálastofnunar um tímabundna niðurfellingu atvinnuleysisbóta til kæranda vegna námsloka hans, en Vinnumálastofnun telur ástæður kæranda ekki vera gildar ástæður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi færði fyrst fram þær skýringar á námslokum sínum að hann hefði neyðst til að hætta námi vegna fjárhagslegra örðugleika sem hafi gert honum ókleift að stunda nám sitt áfram. Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. nóvember 2010, segir kærandi hins vegar að hann hafi ekki hætt námi sjálfviljugur. Hið rétta í málinu sé að honum hafi verið synjað um áframhaldandi skólagöngu í Tækniskólanum á haustönn 2010. Í námsferilsáætlun nemanda kemur fram að kærandi hafi fallið á önn og hafi skólavist verið hafnað.

Verður ekki fallist á að fjárhagsástæður eða óviðunandi námsárangur nemenda geti almennt talist til gildra ástæðna í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það er því mat úrskurðarnefndarinnar að þær ástæður sem kærandi hefur fært fram séu ekki gildar og ber því að láta hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 21. nóvember 2010 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum