Hoppa yfir valmynd
9. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 19/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 19/2011.

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 19/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 24. janúar 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis frá 5. október til 20. október 2010 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hún hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði sem ella hefði verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hún var stödd erlendis skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 25. janúar 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 15. júní 2010 og fékk greitt í samræmi við rétt sinn.

Í nóvembermánuði 2010 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar þess efnis að kærandi hafi verið stödd erlendis í októbermánuði sama árs. Starfsmaður Vinnumálastofnunar hafði samband við kæranda símleiðis og óskaði eftir staðfestingu hennar á dvöl erlendis ásamt afritum af flugfarseðlum. Þann 26. nóvember 2010 barst Vinnumálastofnun tölvupóstur frá kæranda með afritum af flugfarseðlum hennar og skýringum á dvöl hennar erlendis. Kærandi segist hafa keypt miðann í maímánuði, það er áður en hún varð atvinnulaus. Kærandi segist einnig hafa verið í virkri atvinnuleit á meðan hún var stödd erlendis, hún hafi sótt um störf og átt í viðræðum við fyrirtæki um mögulegt samstarf.

Með bréfi, dags. 24. janúar 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að þar sem hún hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði sem ella hefði verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hún var stödd erlendis, sem yrðu innheimtar á grundvelli 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með skuldajöfnun á móti síðari tilkomnum atvinnuleysisbótum hennar.

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 25. janúar 2011, segir kærandi hún hafi kært ákvörðun Vinnumálastofnunar þar sem henni finnist ákvörðunin of harkaleg miðað við þá yfirsjón hennar að hafa látið hjá líða að tilkynna fyrirfram um dvöl sína erlendis. Telur kærandi að ef ákvörðunin verði staðfest muni það auka á vanda hennar og fjölskyldu hennar.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 31. maí 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, segi meðal annars að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig er mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun telur ljóst að kærandi hafi verið stödd erlendis á tímabilinu 5. október til 20. október 2010, en í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram um þessa utanlandsferð sína, líkt og henni bar skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun vísar til ummæla kæranda í kæru til úrskurðarnefndar, dags. 25. janúar 2011, þar sem hún segi ákvörðun Vinnumálastofnunar vera of harkalega. Vinnumálastofnun bendir á að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi. Hafi stofnunin meðal annars vakið athygli á framangreindum skilyrðum í formi almennra upplýsinga og frétta á heimasíðu sinni. Einu undanþágur frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VII. kafla laganna. Vinnumálastofnun segir að sérstök athygli sé vakin á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit, sé bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag. Vinnumálastofnun vekur einnig athygli atvinnuleitanda á því að í þeim tilvikum þegar Vinnumálastofnun er tilkynnt fyrirfram um slíkar ferðir erlendis, sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að ef ekki liggi fyrir E-303 vottorð hjá stofnuninni, fái hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dveljist erlendis.

Með vísan til ofangreindra atriða og niðurstöðu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í málum nr. 111/2010, 95/2010 og 84/2010, telji Vinnumálastofnun að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Telji Vinnumálastofnun að kærandi eigi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysistygginga í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, 24. janúar 2011, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé því sú að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það hafi enn fremur verið niðurstaða stofnunarinnar að kærandi skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem kærandi uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 39. gr. sömu laga.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar dags. 6. júní 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 22. júní 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar [skv. 14. gr.] eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest að hún var stödd erlendis frá 5. október til 20. október 2010, en hún tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að henni hafi ekki verið kunnugt um að atvinnuleitendum beri skylda til að tilkynna Vinnumálastofnun utanlandsferðir fyrirfram. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þessa fullyrðingu. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður talið að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún þáði á meðan hún var stödd erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysistrygginga, sbr. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 24. janúar 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 5. október til 20. maí 2010 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum