Hoppa yfir valmynd
9. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 5/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 5/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 16. desember 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hann verið staddur erlendis frá 1. október til 8. október 2010 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili, sbr. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, en þar segir að almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna sé að vera búsettur og staddur hér á landi. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hann hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 4. janúar 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 16. október 2008.

Þann 18. október 2010 kom kærandi á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og spurðist fyrir um störf í Noregi og Sviss. Í samtali við fulltrúa Vinnumálastofnunar minntist kærandi óljóst á að hann hafi dvalist í B-landi. Þegar fulltrúi Vinnumálastofnunar spurði nánar út í þá dvöl, neitaði hann að veita nánari upplýsingar um ferð sína og sagði fulltrúa Vinnumálastofnunar að hún skyldi gleyma ummælum hans um ferðina til B-lands. Í kjölfarið var mál kæranda sent til skoðunar hjá eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar og með bréfi, dags. 22. október 2010, óskaði stofnunin eftir afritum af flugfarseðlum og skýringum kæranda á dvöl hans erlendis. Kærandi skilaði afritum af flugfarseðlum til Vinnumálastofnunar þann 28. október 2010. Vinnumálastofnun barst tölvupóstur frá kæranda þann 1. nóvember 2010, þar sem fram komu skýringar hans á dvölinni í B-landi.

Greiðslustofa Vinnumálastofnunar tók mál kæranda fyrir á fundi þann 3. desember 2010 og tók þá ákvörðun á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að fella niður greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Með bréfi, dags. 16. desember 2010, var kæranda tilkynnt um þá ákvörðun stofnunarinnar. Í tölvupósti sínum til Vinnumálastofnunar, dags. 1. nóvember 2010, segir kærandi að hann hafi verið í B-landi í atvinnuleit í eina viku en ekki hafi verið um frí að ræða.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 18. maí 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, segi meðal annars að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

Vinnumálastofnun telur ljóst að kærandi hafi verið staddur í B-landi á tímabilinu 1. október til 8. október 2010. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda um greiðslur atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram um þessa utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í viðtali við þjónustufulltrúa Vinnumálastofnunar hafi kærandi minnst á það að hann hefði farið til B-lands. Síðan hafi hann gert tilraun til að leyna þeim upplýsingum er fulltrúi stofnunarinnar hafi reynt að grennslast nánar fyrir um þessi ummæli kæranda. Hafi viðtali kæranda við fulltrúa Vinnumálastofnunar lokið með því að kærandi hafi tjáð þjónustufulltrúanum að hún ætti að gleyma þessum ummælum hans. Vinnumálastofnun bendir á að umrætt viðtal hafi átt sér stað eftir dvöl kæranda í B-landi.

Það er mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar ásamt því að gera tilraun til þess að leyna upplýsingum um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, 16. desember 2010, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Niðurstaða Vinnumálastofnunar er því að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 20. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 3. júní 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar [skv. 14. gr.] eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma ea viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest að hann hafi verið staddur erlendis frá 1. október til 8. október 2010, en hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að hann hafi ekki verið í fríi í B-landi, heldur í atvinnuleit.

Hafi atvinnuleitandi hug á að leita sér að vinnu í öðru landi en á Íslandi getur hann á meðan ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Frá þessari meginreglu má víkja ef atvinnuleitandi uppfyllir tiltekin skilyrði og sækir um vinnu í aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, sbr. ákvæði VIII. kafla laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi sótti ekki um svokallað E-303 vottorð áður en hann hélt af landi brott í leit að vinnu í B-landi, sbr. 4. mgr. 42. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Tilgangur dvalar kæranda í B-landi skiptir því ekki máli, þ.e. um hverja aðra utanlandsferð var að ræða í skilningi ákvæða laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann þáði á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysistrygginga, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 16.desember 2010 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum