Hoppa yfir valmynd
9. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 214/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 214/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 29. september 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hann verið staddur erlendis frá 17. ágúst til 24. ágúst 2010 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hann hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 12. nóvember 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 10. september 2009 og fékk greiddar bætur í samræmi við bótarétt sinn.

Vinnumálastofnun barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá B-landi, þann 21. ágúst 2010. Í kjölfarið sendi Vinnumálastofnun kæranda bréf þann 7. september 2010, frá eftirlitsdeild stofnunarinnar, þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hans erlendis. Þann 21. september 2010 barst Vinnumálastofnun tölvupóstur frá kæranda þar sem fram komu skýringar á dvöl kæranda erlendis sem og farseðlar sem staðfestu brottfarar- og heimkomudag hans úr þeirri ferð sem um ræðir.

Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda með bréfi, dags. 29. september 2010, að stofnunin hefði á fundi sínum þann 27. september 2010 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysistrygginga. Vinnumálastofnun tók þá ákvörðun að fella niður greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Einnig tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda um fyrirhugaða skuldajöfnun á ofgreiddum atvinnuleysistryggingum sem þegar höfðu verið greiddar fyrir tímabilið er hann var staddur erlendis, samtals þrír virkir dagar, á móti síðar tilkomnum atvinnuleysistryggingum, samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í skýringarbréfi sínu til Vinnumálastofnunar, dags. 21. september 2010, segir kærandi að hann hafi verið í atvinnuleit í þeirri ferð sem um ræðir í ágústmánuði 2010. Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 12. nóvember 2010, segir kærandi að á þeim tíma er hann fór í umrædda ferð til B-lands hafi ekki verið að finna upplýsingar á vef Vinnumálastofnunar um að sérstök leyfi þurfi til þess að fara til útlanda í atvinnuleit. Einnig bendir kærandi á að slíkar upplýsingar komi ekki fram á þeirri slóð vefsins þar sem hann hafi staðfest atvinnuleit. Kærandi segir að hann hefði getað beðið með að staðfesta atvinnuleit sína þangað til að hann sneri aftur úr ferðinni eða beðið einhvern að staðfesta fyrir sína hönd í tölvu á Íslandi. Kærandi segir að honum finnist hann hafa verið samviskusamur og að þetta séu hörð viðurlög.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 4. maí 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, segi meðal annars að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

Vinnumálastofnun telur ljóst að kærandi hafi verið staddur í B-landi frá 17. ágúst til 24. ágúst 2010. Bendir Vinnumálastofnun á að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda um greiðslur atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit, jafnframt sé það gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Vinnumálastofnun bendir á að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram um þessa utanlandsferð sína, líkt og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til ummæla kæranda í kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða dags. 12. nóvember 2010, um að ekki hefði verið að finna á vef Vinnumálastofnunar „að það þyrfti sérstök leyfi til að fara til útlanda í atvinnuleit“. Vinnumálastofnun áréttar því að stofnunin hafi margsinnis vakið athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi. Einu undanþágur frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Vinnumálastofnun segir að sérstaklega sé vakin athygli á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim sem huga að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit hjá stofnuninni, bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag.

Vinnumálastofnun vísar til heimasíðu stofnunarinnar þar sem einnig sé vakin athygli á framangreindum atriðum. Vinnumálastofnun bendir einnig á að með frétt þann 20. maí 2010 á heimasíðu Vinnumálastofnunar hafi verið sérstaklega áréttað að þeir sem hefðu huga á því að dveljast erlendis á sama tíma og þeir væru skráðir í atvinnuleit hjá stofnuninni þyrftu að hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun vekur jafnframt athygli á því að í þeim tilvikum er Vinnumálastofnun er tilkynnt um slíkar ferðir fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dvelji erlendis nema fyrir liggi E-303 vottorð hjá stofnuninni.

Vinnumálastofnun segir það eindregna afstöðu stofnunarinnar að eftirlitsaðgerðum stofnunarinnar verði ekki jafnað við tilkynningu frá atvinnuleitanda og telji stofnunin að í ljósi 9. gr. og 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verði að gera greinarmun á þeim sem láti sjálfir vita um ferðir sínar og þeim sem ekki láti sjálfir vita um ferðir sínar, en stofnuninni berast þær upplýsingar með öðrum leiðum.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, þann 29. september 2010, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé því að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá skuli kærandi einnig endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem hann uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysisbætur.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. maí 2011. Kærandi sendi tölvupóst til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 23. maí 2011 þar sem kærandi segir að mögulega hafi þessi upplýsingaskylda varðandi ferðalög erlendis verið kynnt á fyrsta fundi Vinnumálastofnunar, en ekki hafi verið sagt frá því aftur og engar upplýsingar þess efnis hafi verið að finna á þeim tíma, á eldri vef Vinnumálastofnunar.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar [skv. 14. gr.] eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma ea viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest að hann var staddur erlendis frá 17. ágúst til 24. ágúst 2010, en hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þær skýringar að honum hafi ekki verið kunnugt um að atvinnuleitendum beri skylda til að tilkynna fyrir fram til Vinnumálastofnunar um utanlandsferðir. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þessa fullyrðingu. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Um brottfarir atvinnuleitenda til útlanda var sérstaklega fjallað í frétt á heimasíðu Vinnumálastofnunar 20. maí 2010. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verður talið að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann þáði á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysistrygginga, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 29. september 2010 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 17. ágúst til 24. ágúst 2010 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum