Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 221/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. ágúst 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 221/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dagsettu 18. nóvember 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 16. nóvember 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka hjá fyrirtækinu X ehf. var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 18. október 2010. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 25. nóvember 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 18. október 2010. Í vottorði vinnuveitanda, X ehf., dags. 15. október 2010, er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Sökum þess hvernig starfslokum kæranda var háttað, var kærandi beðinn um að færa fram skýringar á uppsögn sinni. Með tölvupósti, dags. 20.október 2010, bárust Vinnumálastofnunar skýringar frá kæranda. Þar kemur fram að starf kæranda hjá fyrirtækinu X ehf. hafi falið í sér að þrífa síldarvélar í sveitarfélaginu B. Hluti af starfskjörum hans hafi verið fólginn í því að búa í íbúð sem fyrirtækið leigði fyrir kæranda og tvo aðra starfsmenn. Kærandi segir sambúðina við starfsfélaga sína hafa verið erfiða og að þeim hafi fylgt mikið ónæði, vegna skapgerðarbresta þeirra og misnotkunar á áfengi. Segist kærandi hafa rætt þessa örðugleika í sambúð og samskiptum við starfsfélaga sína við verkstjórann, sem hafi rætt við starfsfélaga kæranda en hafi lítið annað getað aðhafst. Kærandi segir að honum hafi liðið illa á þessu tímabili og þegar hann hafi þurft að ganga á milli starfsfélaga sinna vegna handalögmála þeirra á milli, hafi honum verið nóg boðið og sagt upp starfi sínu í kjölfarið. Í kæru ítrekar kærandi að ástæða starfsloka hans hafi verið hin erfiða sambúð við starfsfélagana. Segir kærandi að ef aðstæður hefðu verið aðrar, væri hann enn í því starfi og finnist honum eins og Vinnumálastofnun sé að refsa honum með hinni kærðu ákvörðun fyrir þær sakir einar að hafa ráðið sig í vinnu á landsbyggðinni.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 5. maí 2011, vísar stofnunin til þess að í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Segir Vinnumálastofnun að í athugasemdum við 1. mgr. 1. gr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum sem séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segja upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Vinnumálastofnun telur ljóst að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá X ehf. Ágreiningur snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir. Vinnumálastofnun vísar til skýringa kæranda til Vinnumálastofnunar og í kæru þar sem kærandi segir að samskipti hans við samstarfsmenn hafi verið slæm, hann hafi ekki talið sér fært að deila íbúð með þessum mönnum og því hafi hann sagt starfi sínu lausu. Það sé mat Vinnumálastofnunar að ágreiningur milli launamanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma og aðstæður á vinnustað flokkist almennt ekki sem gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Telur Vinnumálastofnun að ekki verði ekki séð að óánægja með meðleigjendur geti talist til gildra ástæðna í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. maí 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir. Þessi túlkun á ákvæðinu er í samræmi við markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks, þ.e. með þessu á að girða fyrir að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi réði sig til starfa hjá X ehf. við þrif á síldarvélum í sveitarfélaginu B. Hluti starfskjara hans var að vinnuveitandi leigði íbúð á staðnum fyrir kæranda og tvo aðra starfsmenn. Málflutningur kæranda verður ekki skilinn öðruvísi en að hann hafi greitt 28.000 kr. á mánuði til vinnuveitanda fyrir húsnæðið. Sambúð kæranda við starfsfélaga hans gekk illa og af þeim sökum sagði kærandi upp starfi sínu, án þess að vera með annað starf í hendi. Áður en til uppsagnar kæranda kom, kvartaði hann við yfirmann vegna hegðunar sambýlinga sinna til yfirmanns sem talaði við þá án árangurs. Ekkert kemur fram um að annað hafi verið aðhafst vegna kvörtunar og óánægju kæranda. Ekkert kemur fram um að kærandi hafi reynt að finna sér annað húsnæði eða að annað hafi verið reynt til að leysa málið.

Það er alvarlegt mál að segja starfi sínu lausu og verða án atvinnutekna án þess að vera með annað starf í hendi. Því gera lög um atvinnuleysistryggingar ráð fyrir því að ekki sé afsakanlegt að segja starfi upp sínu og þiggja í framhaldinu atvinnuleysisbætur nema fyrir uppsögn séu gildar ástæður. Í samræmi við það verður að gera þá kröfu að launamenn sem telja sig ekki geta gegnt starfi sínu áfram fullreyni úrræði til úrbóta áður en þeir grípa til þess að segja starfi sínu lausu og sækja í kjölfarið um atvinnuleysisbætur.

Í máli þessu verður ekki fallist á að óánægja kæranda með meðleigjendur geti talist til gildra ástæðna í skilningi laganna. 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framanritaðs og röksemda Vinnumálastofnunar að öðru leyti, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 16. nóvember 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum