Hoppa yfir valmynd
3. júní 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 199/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 3. júní 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 199/2010.


1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 2. september 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 1. september 2010 fjallað um fjarveru hans á boðað námskeið á vegum stofnunarinnar. Vegna fjarveru kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá og með degi ákvörðunar sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi mótteknu 21. október 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 10. október 2008. Hann skráði sig á tölvunámskeið þann 14. júní 2010. Námskeiðið var haldið frá 25. júní til 16. júlí 2010 frá kl. 8.30 til 12.30 alla virka daga nema þriðjudaga kl. 13.00–17.00. Kærandi uppfyllti 20% af mætingarskyldu á námskeiðinu. Vinnumálastofnun tók málið fyrir á fundi sínum þann 3. ágúst 2010 en frestaði afgreiðslu þess þar sem afstaða kæranda lá ekki fyrir og óskaði jafnframt eftir skýringum frá kæranda. Ekki bárust skýringar frá kæranda og í kjölfarið var hin kærða ákvörðun tekin 1. september 2010 um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi.

Í erindi kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða kemur fram að hann hafi ekki ráðið við að mæta vegna óvæntra fjölskylduaðstæðna. Nær hefði verið að bjóða honum aðra tímasetningu ef það hefði verið mögulegt. Hann hafi ekki ráðið við það sem kom upp á. Kærandi kveðst vera nýskilinn og eiga sex ára tvíbura. Faðir hans hafi gætt barnanna þegar kærandi hafi verið upptekinn en hann hafi ekki getað verið með þær á þessum tíma þar sem hann hafi skömmu áður farið í skurðaðgerð vegna hjartaáfalls. Stúlkurnar hafi verið í skólanum fyrri hluta dags en komið heim um hádegi og hafi sá tími stangast á við námskeiðið. Hann hafi talið að hann hefði pössun fyrir börnin þegar hann skráði sig á námskeiðið og hafi ekki getað útvegið pössun með svo skömmum fyrirvara. Kærandi kveðst hafa látið vita af þessu með símtali við atvinnumiðlun en það hafi einhverra hluta vegna ekki verið tekið til greina.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 17. mars 2011, kemur fram að í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnu­markaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Segi þar að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Samkvæmt g-lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standa til boða. Þá komi fram í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 skylda þess sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun býður upp á.

Fram kemur að kærandi hafi skráð sig á tölvunámskeið hjá stofnuninni þann 14. júní 2010. Fram komi á skráningareyðublaði að það geti valdið missi bótaréttar ef atvinnuleitandi hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi mætt í 20% af kennslustundum námskeiðsins. Jafnframt kemur fram að ekki sé að sjá að kærandi hafi gert tilraun til að tilkynna um fjarveru. Þá hafi ekki borist athugasemdir frá kæranda þrátt fyrir að Vinnumálastofnun hafi með bréfi, dags. 3. ágúst 2010, óskað eftir skriflegri afstöðu hans í málinu. Vinnumálastofnun vísar til 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem fram kemur að atvinnuleitandi skuli tilkynna stofnuninni um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar. Vinnumálastofnun telur nauðsynlegt að atvinnuleitandi tilkynni stofnuninni ef hann hyggst ekki sækja námskeið sem hann hefur skráð sig á.

Vinnumálastofnun greinir frá því að henni sé ekki kunnugt um að kærandi hafi komið með athugasemdir vegna málsins, þ.e. látið vita af aðstöðu sinni, eins og kærandi haldi fram í kæru en ítrekar að innt hafi verið eftir athugasemdum frá kæranda með bréfi stofnunarinnar, dags. 3. ágúst 2010. Ekki hafi borist neinar athugasemdir frá kæranda. Það sé eindregin afstaða Vinnumálastofnunar að atvinnuleitendum beri að tilkynna, án ástæðulausrar tafar, ef þeir telja sig ekki geta sótt námskeið hjá stofnuninni. Samkvæmt bókunarblaði á tölvunámskeiði, dags. 14. júní 2010, skráði kærandi sig á námskeið frá 25. júní til 16. júlí 2010. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýring sú er kærandi gefi í kæru sinni til úrskurðarnefndar geti ekki réttlætt fjarveru kæranda á framangreindu námskeiði og að með fjarveru sinni hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 24. mars 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 7. apríl 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 21. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar og sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Atvinnuleitanda ber að tilkynna Vinnumálastofnun ef hann telur sig ekki geta sótt námskeið sem hann er boðaður til og verður slík tilkynning að berast stofnuninni án ástæðulausrar tafar. Kærandi skráði sig á námskeið hjá Vinnumálastofnun en uppfyllti ekki mætingarskyldu á námskeiðinu og boðaði ekki forföll. Kærandi gaf þær skýringar á fjarveru sinni að hann hafi átt erfitt með að sækja námskeiðið vegna veikinda í fjölskyldu sinni og að hann hafi ekki fengið barnagæslu á þeim tíma sem námskeiðið var haldið. Ekki eru í gögnum málsins neinar upplýsingar um að kærandi hafi látið vita af breyttum aðstæðum sínum.

Í ljósi þess sem að framan er ritað og með vísan til rökstuðnings Vinnumálastofnunar að öðru leyti verður ekki talið að skýring kæranda fyrir fjarveru hans á boðuðu námskeiði réttlætti fjarveru hans á námskeiðinu. Því ber að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um tímabundna niðurfellingu á rétti hans til atvinnuleysisbóta.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 1. september 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum