Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 230/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. ágúst 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 230/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 26. nóvember 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 24. nóvember 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 4. október 2010. Vinnumálastofnun samþykkti umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur en með vísan til starfsloka hjá X, var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 4. október 2010, með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 13. desember 2010. Kærandi krefst þess að henni verði greiddar atvinnuleysisbætur án biðtíma frá skráningardegi, 4. október 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 4. október 2010. Í fyrirliggjandi vottorði vinnuveitanda, X, dags. 12. október 2010, er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Með bréfi, dags. 25. október 2010, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum uppsagnar hennar hjá X. Vinnumálastofnun bárust skýringar frá kæranda í tölvupósti, dags. 10. nóvember 2010, þar sem hún tekur fram að langt hafi verið fyrir hana að aka til vinnu sem hafi verið í öðru sveitarfélagi og að starfstími hafi verið óhentugur.

Í kæru segir kærandi að nokkrar ástæður séu fyrir starfslokum hennar hjá X. Sonur kæranda hafi hafið skólagöngu á þessu tímabili, hann hafi átt í námsörðugleikum og telur kærandi að henni hafi borið skylda til þess að aðstoða hann í þeim erfiðleikum. Kærandi segir að vinnutími hennar hjá X hafi verið óheppilegur, hún hafi komið seint heim eftir vinnu, eða eftir kl. 18:00, sem hafi gert henni erfitt um vik að veita syni sínum þá aðstoð sem hann þurfti við nám sitt. Segir kærandi að enginn leið hafi verið til þess að breyta vinnutíma hennar hjá X.

Kærandi segir að hún hafi átt von um starf í frystihúsi, en ekki hafi orðið úr því. Á því tímabili er hún sagði starfi sínu lausu, hafi aðilar í sveitarfélaginu C verið að falast eftir fólki og hún hafi ekki haft möguleika á því að draga uppsögn sína til baka eftir að ákvörðun um lokun útibús hafi verið tekin.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 5. maí 2011, vísar stofnunin til þess að í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Segir Vinnumálastofnun að í athugasemdum við 1. mgr. 1. gr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum sem séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segja upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Vinnumálastofnun telur ljóst að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá X. Ágreiningur snúist því um hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir. Vinnumálastofnun vísar til skýringarbréfs kæranda, dags. 10. nóvember 2010, þar sem hún segist hafa hætt í starfi sínu vegna þess að langt hafi verið að aka í vinnu og vinnutími hafi ekki hentað. Einnig vísar Vinnumálastofnun til kæru þar sem kemur fram að erfitt hafi verið fyrir kæranda að aðstoða son sinn við námið er vinnudegi var lokið og að ekki hafi verið möguleiki á því að hliðra til vinnutíma.

Vinnumálastofnun telur að svo fáar ástæður fyrir uppsögn séu taldar gildar í þeim tilvikum er atvinnuleitandi segi starfi sínu lausu til að hefja störf á öðrum stað, telji Vinnumálastofnun að atvinnuleitandi þurfi að hafa tryggt sér annað starf áður en hann segir upp. Vinnumálastofnun bendir á að ekki liggi fyrir atvinnutilboð í gögnum máls. Í ljósi d- og e-liðar 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar felist Vinnumálastofnun ekki á að vinnutími og lengd frá vinnustað kæranda hafi verið nægjanleg ástæða fyrir uppsögn í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Telur Vinnumálastofnun að kæranda hafi mátt vera ljóst að með því að segja starfi sínu lausu á þeim tímum sem nú eru, gæti verið erfiðleikum bundið fyrir hana að komast í annað starf. Vinnumálastofnun telji því að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni, teljist ekki gildar ástæður sbr. 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. maí 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

,Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir. Þessi túlkun á ákvæðinu er í samræmi við markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks, þ.e. með þessu á að girða fyrir að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi sagði sjálf upp störfum sínum hjá X, án þess að vera með annað starf í hendi. Af hálfu kæranda kemur fram að hún þurfi að aðstoða son sinn við nám. Hún hafi verið í 69% starfi og engin leið hafi verið til að fá vinnutímanum breytt. Þá hafi hún átt von á því að geta fengið vinnu í frystihúsi en það hefði ekki gengið upp. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar kemur jafnframt fram að vinnan hafi verið í öðru sveitarfélagi og langt hafi verið til vinnu. Samkvæmt upplýsingum kæranda var vinna hennar í X um 20 km í burtu frá heimili hennar og hún hafi þurft að aka yfir Y-veginn.

Það er alvarlegt mál að segja starfi sínu lausu og verða án atvinnutekna án þess að vera með annað starf í hendi. Því gera lög um atvinnuleysistryggingar ráð fyrir því að ekki sé afsakanlegt að segja starfi upp sínu og þiggja í framhaldinu atvinnuleysisbætur nema fyrir uppsögn séu gildar ástæður. Í samræmi við það verður að gera þá kröfu að launamenn sem telja sig ekki geta gegnt starfi sínu áfram fullreyni úrræði til úrbóta áður en þeir grípa til þess að segja starfi sínu lausu og sækja í kjölfarið um atvinnuleysisbætur.

Í máli þessu verður ekki fallist á að vinnutími og lengd frá vinnustað kæranda hafi verið nægjanleg ástæða fyrir uppsögn í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framanritaðs og röksemda Vinnumálastofnunar að öðru leyti, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 24. nóvember 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum