Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 215/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. ágúst 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 215/2010.

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. ágúst 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 215/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 2. september 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 31. ágúst 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 6. ágúst 2010. Vinnumálastofnun samþykkti umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur en með vísan til starfsloka hjá X var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í 40 daga sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 6. ágúst 2010, með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Þess ber að geta að í kæru kæranda mótmælti hún einnig ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 20. október um niðurfellingu bóta í 60 daga vegna starfsloka hennar hjá Þjóðskrá. Vinnumálastofnun lýsti því yfir við meðferð málsins að ranglega hafi verið staðið að seinni ákvörðuninni og var hún felld niður. Ágreiningur málsins stendur því aðeins um hina fyrri ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 2. september 2010.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 6. ágúst 2010. Í vottorði vinnuveitanda útgefnu 6. ágúst 2010 af X, kemur fram að kærandi hafi starfað hjá X í hlutastarfi í 50% starfshlutfalli frá 28. september 2009 til 16. júní 2010. Í vottorði er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Með vísan til starfsloka hjá X var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði. Kærandi færði fram skriflegar athugasemdir á uppsögn sinni til Vinnumálastofnunar dags. 6. ágúst 2010.

Kærandi tilgreinir í skýringarbréfi sínu til Vinnumálastofnunar, dags. 6. ágúst 2010, ástæðu uppsagnar sinnar sem skort á frekari atvinnu fyrir hana á Akureyri og því að hún telji sig ekki getað lifað af launum fyrir hlutastarf með 50% starfshlutfalli hjá X. Af þeim ástæðum telur kærandi sig knúna til að flytja aftur á höfuðborgarsvæðið. Í kæru bendir kærandi á hún hafi margoft beðið um hærra vinnuhlutfall hjá vinnuveitanda sínum, X, en hún hafi fengið þau svör að það stæði ekki til boða. Kærandi segist hafa komist að því að starfsfólk vantaði á vinnustaðinn og að fleiri hafi verið ráðnir til vinnu, án þess að henni hafi verið boðin meiri vinna. Sá kærandi sér því ekki annað fært en að leita annað. Þar sem það hafi ekki tekist sem skyldi að finna annað starf á sama svæði hafi hún tekið þá ákvörðun að flytjast aftur á höfuðborgarsvæðið þar sem meira framboð væri af atvinnu. Bendir kærandi jafnframt á að hún hafi með þeim flutningum verið að yfirgefa landsvæði þar sem mikið atvinnuleysi sé og að tekið hafi verið undir þau sjónarmið hennar hjá Vinnumiðlun Norðurlands.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 18. maí 2011, áréttar stofnunin að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og ber að gera ríkar kröfur til þeirra sem segja upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda á almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Vinnumálastofnun bendir á að ágreiningur sé um hvort kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá X af gildum ástæðum í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Hefur orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafa fá tilvik verið talin falla þar undir. Jafnframt segir Vinnumálastofnun að í athugasemdum við 1. mgr. 1. gr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum sem séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því var lagt til að lagareglan sé matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Það sé mat Vinnumálastofnunar að ástæður fyrir uppsögn séu gildar í tilvikum þar sem atvinnuleitandi segir starfi sínu lausu til að hefja störf á öðrum stað, telur Vinnumálastofnun að atvinnuleitandi þurfi að hafa tryggt sér annað starf áður en hann segir upp. Það að atvinnuleitandi hafi hug á því að leita starfa í öðrum landshluta telur stofnunin ekki vera gildar ástæður fyrir því að atvinnuleitandi segi starfi sínu lausu. Telur Vinnumálastofnun að kæranda hafi mátt vera það ljóst að með því að segja starfi sínu lausu, gæti verið erfiðleikum bundið fyrir hana að komast í aðra vinnu. Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að nægilega sé komið fram að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá X án gildra ástæðna.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 20. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 3. júní 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir. Þessi túlkun á ákvæðinu er í samræmi við markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks, þ.e. með þessu á að girða fyrir að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi sagði sjálf upp störfum sínum hjá X en þar var hún í 50% vinnu. Hún gaf þá skýringu að hún hafi ákveðið að flytja á höfuðborgarsvæðið í þeirri von að fá þar meiri vinnu. Hún hafi ítrekað en árangurslaust óskað eftir meiri vinnu hjá X þar sem hún telji sig ekki getað lifað af launum fyrir hlutastarf með 50% starfshlutfalli. Hún hafði hins vegar ekki tryggt sér vinnu á höfuðborgarsvæðinu áður en hún sagði starfi sínu lausu fyrir norðan.

Það er alvarlegt mál að segja starfi sínu lausu og verða án atvinnutekna án þess að vera með annað starf í hendi. Því gera lög um atvinnuleysistryggingar ráð fyrir því að ekki sé afsakanlegt að segja starfi upp sínu og þiggja í framhaldinu atvinnuleysisbætur nema fyrir uppsögn séu gildar ástæður. Í samræmi við það verður að gera þá kröfu að launamenn sem telja sig ekki geta gegnt starfi sínu áfram fullreyni úrræði til úrbóta áður en þeir grípa til þess að segja starfi sínu lausu og sækja í kjölfarið um atvinnuleysisbætur.

Gera verður þá kröfu að þeir sem segja starfi sínu lausu til að komast í annað starf hafi tryggt sé slíkt starf áður en þeir segja hinu fyrra starfi lausu. Ekki verður fallist á að ástæður kæranda í máli þessu réttlæti uppsögn hennar áður en hún tryggði sér nýtt starf.

Með vísan til framanritaðs og röksemda sem færðar hafa verið fram fyrir hinni kærðu ákvörðun af hálfu Vinnumálastofnunar, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 31. ágúst 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum