Hoppa yfir valmynd
3. júní 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 163/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 3. júní 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 163/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 17. ágúst 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 12. ágúst 2010 fjallað um höfnun hennar á atvinnutilboði fyrir milligöngu stofnunarinnar. Vegna höfnunarinnar var bótaréttur kæranda felldur niður frá og með degi ákvörðunar þann 12. ágúst 2010 í 40 daga sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi mótteknu 31. ágúst 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 12. nóvember 2008. Hún fór í atvinnuviðtal hjá X ehf. 16. júlí 2010, en hafnaði starfinu sem henni var boðið. Kærandi skilaði inn skriflegum skýringum til Vinnumálastofnunar þar sem fram kemur að hún geti ekki þegið starfið þar sem hún treysti sér ekki til þess vegna reynsluleysis, vinnan sé í stuttan tíma og vaktarplanið henti henni ekki. Þetta myndi reynast henni líkamlega of erfitt. Þann 17. ágúst 2010 var kæranda send hin kærða ákvörðun.

Af hálfu kæranda kemur fram að um hafi verið að ræða mjög krefjandi starf líkamlega og andlega. Unnið sé á tólf tíma vöktum sjö daga í röð og svo sé frí í sjö daga. Hún hafi neitað starfinu vegna reynsluleysis. Kærandi kveðst áður hafa unnið á tólf tíma vöktum og hún hafi þurft að hætta í þeirri vinnu vegna bakverkja eftir tvo daga. Kærandi greinir jafnframt frá því að tilgreindur starfsmaður Vinnumálastofnunar hafi sagt henni að hún myndi ekki missa rétt sinn til bóta vegna eðlis vinnunnar og því hafi ákvörðun stofnunarinnar komið henni á óvart.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 5. apríl 2011, segir að mál þetta varði 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 séu tilgreindar ástæður sem geti komið til greina sem gildar skýringar við höfnun á starfi. Í athugasemdum við 57. gr. komi fram að gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu. Enn fremur sé heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði er starf fjarri heimili hans sem gerir kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum. Vinnumálastofnun greinir jafnframt frá því að eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið nánar á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Kemur fram að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir óháð því hvort um sé að ræða fullt starf eða hlutastarf, vaktavinnu, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Vinnumálastofnun greinir frá því að kærandi hafi hafnað starfstilboði sem henni bauðst í júlí 2010. Samkvæmt atvinnutilboði frá X ehf. hafi kæranda boðist starf frá 16. júní til 15. ágúst 2010. Um hafi verið að ræða vaktavinnu og starfsmanni hafi staðið til boða frítt fæði og húsnæði á starfstíma.

Vinnumálastofnun fellst ekki á að skýringar kæranda teljist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telur því að kærandi eigi að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta í samræmi við 1 mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. apríl 2011, gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 26. sama mánaðar. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Í 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um það þegar starfi eða atvinnuviðtali er hafnað. Í 1. mgr. greinarinnar segir að sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.

Í 4. mgr. sömu lagagreinar kemur eftirfarandi fram:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í athugasemdum við tilvitnaða 4. mgr. 57. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að gert sé ráð fyrir því að heimilt sé að taka tillit til þess þegar hinn tryggði geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni. Gera megi ráð fyrir að sjaldan reyni á þessa undanþágu þar sem ekki gert ráð fyrir að hinum tryggða verði boðin störf sem hann er ekki fær um að sinna enda hafi hann tekið það fram þegar í upphafi atvinnuleitar.

Umsókn atvinnuleitanda og síðari upplýsingar sem hann veitir Vinnumálastofnun leggja grundvöllinn að aðgerðum stofnunarinnar til að útvega honum starf. Að jafnaði er gert ráð fyrir því að atvinnuleitandi sé fær til flestra almennra starfa, en að öðrum kosti telst hann ekki í virkri atvinnuleit í skilningi a-liðar 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Sú skilyrðislausa skylda hvílir á atvinnuleitanda að tilkynna Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar um breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006. Vinnumálastofnun er heimilt að taka tillit til aðstæðna atvinnuleitanda sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt mati sérfræðilæknis, sbr. lokamálslið 4. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í máli þessu gátu starfsmenn Vinnumálastofnunar ekki ályktað annað en að kærandi væri fær til flestra almennra starfa þegar henni var boðið í atvinnuviðtal hjá X ehf. 16. júlí 2010, en kærandi hefur ekki skilað inn vottorði sérfræðilæknis um starfsgetu sína.

Kærandi greinir frá því að tilgreindur starfsmaður hafi sagt henni að hún myndi ekki missa bótarétt þó að hún hafnaði atvinnutilboðinu vegna eðlis starfsins. Úrskurðarnefndin hefur rætt við þann starfsmann Vinnumálastofnunar sem átti samskipti við kæranda umrætt sinn vegna atvinnutilboðsins. Starfsmaðurinn kannast ekki við að hafa fullyrt við kæranda að hún myndi ekki missa bótarétt sinn ef hún hafnaði atvinnutilboðinu enda færi slík yfirlýsing í bága við starfsreglur stofnunarinnar þar sem ákvarðanataka lægi ekki hjá umræddum starfsmanni um það hvernig afgreiðslu bóta væri háttað.

Samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, skal aðili eiga þess kost að tjá sig um efni máls áður en stjórnvald tekur ákvörðun í því, enda liggi ekki fyrir í gögnum málsins hver afstaða hans var. Í tilviki kæranda gaf hún skýringar sínar á því hvers vegna hún hafnaði atvinnutilboðinu og voru skýringar hennar gefnar þann sama dag og hún hafnaði umræddu atvinnutilboði. Það er því mat úrskurðarnefndarinnar að sjónarmið kæranda vegna höfnunarinnar hafi legið fyrir á því tímamarki þegar hin kærða ákvörðun var tekin og að uppfylltar hafi verið reglur stjórnsýslulaga um andmælarétt kæranda. Hver og einn umsækjandi um atvinnuleysisbætur fær kynningu hjá Vinnumálastofnun á því hvernig réttur hans er á því tímabili þegar hann fær greiddar atvinnuleysisbætur. Þá er rækilega greint frá því á vef Vinnumálastofnunar hverjar afleiðingar eru af því ef umsækjandi um greiðslu atvinnuleysisbóta hafnar atvinnutilboði. Það verður því ekki hjá því komist að líta svo á að kæranda hafi mátt vera kunnugt um það hverjar afleiðingar gætu verið af höfnun atvinnutilboðs.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 12. ágúst 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum