Hoppa yfir valmynd
1. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 70/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 1. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 70/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 29. september 2010, var A, tilkynnt að þar sem hann hafi verið staddur í útlöndum frá 6. ágúst til 3. september 2010 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili skv. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, yrðu honum ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrir þá daga. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða dagsetta 3. maí 2011 og var hún móttekin 4. maí 2011.

Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu Vinnumálastofnunar til málsins með bréfi, dags. 9. maí 2011. Svarbréf stofnunarinnar er dagsett 22. júní 2011. Þar kemur fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda sé ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli hans frá 29. september 2010. Hafi kæranda með bréfi, dags. 29. september 2010, verið leiðbeint um kærufrest sinn til úrskurðarnefndar. Í ljósi þess að kæra til úrskurðarnefndarinnar sé dagsett þann 3. maí 2011 telji Vinnumálastofnun að þriggja mánaða kærufrestur sé liðinn og að vísa beri málinu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Vinnumálastofnun telji því að ekki sé nauðsynleg frekari aðkoma úrskurðarnefndarinnar að máli þessu.

 

2.

Niðurstaða

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Hin kærða ákvörðun í máli þessu var tekin á fundi Vinnumálastofnunar þann 27. september 2010 og tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 29. september 2010. Í bréfinu var kæranda tilkynnt um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og um kærufrest til nefndarinnar. Kæra kæranda barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 4. maí 2011. Ekkert í gögnum máls þessa gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

Úrskurðarorð

Kæru í máli A er vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum