Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 106/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 17. febrúar 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 106/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 7. júní 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 4. júní 2010 fjallað um fjarveru kæranda á námskeiði á vegum Vinnumálastofnunar. Vegna fjarveru kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá og með degi ákvörðunar sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 16. júní 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. mars 2010. Hann var boðaður í vinnumarkaðsúrræði, tölvunámskeiðið „Excel“, sem átti að hefjast 10. maí 2010 og standa í alls átta skipti. Kærandi skrifaði undir staðfestingu á námskeiðið þann 7. maí 2010. Í staðfestingunni er vakin athygli á því að tilkynna þyrfti forföll með fyrirvara til skrifstofu Vinnumálastofnunar og að það gæti valdið niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði ef sá sem teldist tryggður samkvæmt ákvæðum laganna tæki ekki þátt eða hafnaði úrræðum Vinnumálastofnunar. Kærandi mætti fjórum sinnum í umrætt námskeið en það stóð í átta skipti. Ekki bárust tilkynningar frá kæranda um forföll. Þann 25. maí 2010 bárust Vinnumálastofnun skýringar frá kæranda þar sem hann gerir grein fyrir ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á umrætt námskeið Vinnumálastofnunar.

Í erindi kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða kemur fram að hann hafi ekki mætt í fyrsta tímann vegna eigin mistaka, í annað skiptið hafi hann ekki mætt vegna þess að hann hafi verið veikur og í síðustu tvö skiptin hafi hann ekki mætt vegna persónulegra aðstæðna sem hann reifar í kæru sinni. Kærandi kveðst munu lenda í miklum fjárhagskröggum vegna þeirrar ákvörðunar Vinnumálastofnunar að taka hann af bótum í tvo mánuði.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 22. desember 2010, kemur fram að mál þetta lúti að 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Segi þar að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fram kemur að kærandi hafi ekki tilkynnt um fjarveru á meðan námskeiðið fór fram. Vinnumálastofnun hafi borist tölvupóstur frá kæranda eftir að stofnunin hefði leitað skýringa á fjarveru hans. Þar segi kærandi meðal annars að hann hafi ekki mætt á námskeið stofnunarinnar þar sem hann hafi ekki vaknað í tæka tíð fyrir tímann. Þá hafi atvik sem átt hafi sér stað og varði persónulega hagi kæranda komið í veg fyrir að hann mætti í tvö skipti. Í kæru sinni til úrskurðarnefndar segist kærandi enn fremur hafa verið lasinn á meðan námskeið stofnunarinnar fór fram. Hafi Vinnumálastofnun ekki verið kunnugt um að kærandi hafi verið veikur á tímabilinu þegar ákvörðun í máli hans hafi verið tekin enda hafi kærandi ekki haldið því áður fram. Þá segi kærandi í kæru að hann hafi ekki mætt í fyrsta tímann vegna eigin mistaka. Í kærunni sé síðan nánar skýrt frá ástæðum þess að hann mætti ekki í síðustu tvö skipti á námskeið hjá stofnuninni. Ástæður kæranda fyrir fjarveru á fund hjá stofnuninni séu því margs konar og jafnvel þótt hluti þeirra ástæðna teldust gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar sé ljóst að kærandi uppfyllti ekki skilyrði um lágmarksmætingu. Þegar horft sé til allra atvika í máli kæranda telji Vinnumálastofnun, í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, að skýringar þær er kærandi hafi fært fram geti ekki réttlætt alla þá fjarveru á boðaðri vinnumarkaðsaðgerð á vegum stofnunarinnar. Með fjarveru sinni hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 30. desember 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 14. janúar 2011. Kærandi nýtti sér það ekki.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar og sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem
standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir
undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til
slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Atvinnuleitanda ber að tilkynna Vinnumálastofnun ef hann telur sig ekki geta sótt námskeið sem hann er boðaður til og verður slík tilkynning að berast stofnuninni án ástæðulausrar tafar. Kærandi skráði sig á tölvunámskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Hann mætti ekki í fjögur skipti af átta á námskeiðið og boðaði ekki forföll. Kærandi hefur gefið misvísandi skýringar á fjarveru sinni í námskeiðinu bæði í tilefni af því að Vinnumálastofnun leitaði skýringa hjá honum og enn fremur í kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

Í ljósi þess sem að framan er ritað og með vísan til rökstuðnings Vinnumálastofnunar að öðru leyti verður ekki talið að skýringar kæranda fyrir fjarveru hans í fjögur skipti á boðuðu námskeiði réttlætti þá fjarveru. Því ber að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um tímabundna niðurfellingu á rétti hans til atvinnuleysisbóta.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 4. júní 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum