Hoppa yfir valmynd
22. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 164/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 22. desember 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 164/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 29. júní 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 29. júní 2010 fjallað um ónóga mætingu kæranda á námskeiði á vegum Vinnumálastofnunar. Vegna fjarveru kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá og með degi ákvörðunar sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 31. ágúst 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. febrúar 2009. Hann skráði sig á námskeið þann 25. janúar 2010 en námsskeiðið var haldið frá 1. mars til 28. apríl 2010. Kærandi uppfyllti ekki mætingarskyldu á námskeiðinu. Vinnumálastofnun tók málið fyrir á fundi sínum þann 6. maí 2010 en frestaði afgreiðslu þess þar sem afstaða kæranda lá ekki fyrir og óskaði jafnframt eftir skýringum frá kæranda. Þar sem ekki höfðu borist skýringar ákvað Vinnumálastofnun þann 4. júní 2010 að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Skýringarbréf kæranda barst loks þann 7. júní 2010 og þar kom fram að hann sé búsettur í Hafnarfirði og hafi ekki afnot af bíl. Hann kveður það hvorki auðvelt né ódýrt að komast til Reykjavíkur með strætisvagni þrisvar í viku og daglega til Mosfellsbæjar. Skýringarnar voru ekki metnar gildar og með bréfi, dags. 29. júlí 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að fyrri ákvörðun í málinu væri staðfest og að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans skyldu stöðvaðar í tvo mánuði.

Í erindi kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða kemur fram að hann eigi að vera í virkri atvinnuleit frá kl. 8.00–16.00. Hann sé bíllaus og eigi erfitt með að binda sig frá kl. 17.00–20.00 vegna persónulegra anna. Hann hafi ekki háar tekjur þannig að tíðar ferðir með strætisvagni séu honum erfiðar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 29. nóvember 2010, kemur fram að í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Segi þar að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fram kemur að kærandi hafi skráð sig á námskeiðið „aftur í nám“ þann 25. febrúar 2010. Fram komi á skráningareyðublaði að það geti valdið missi bótaréttar ef atvinnuleitandi hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Segi jafnframt að mikilvægt sé að kærandi uppfylli mætingaskyldu á námskeiðið og að tilkynna beri öll forföll með fyrirvara. Þá segi að með undirskrift sinni skuldbindi atvinnuleitandi sig til að mæta á námskeið stofnunarinnar. Fram kemur að ekki sé að sjá að kærandi hafi gert tilraun til að tilkynna um fjarveru. Vinnumálastofnun vísar til 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem fram kemur að atvinnuleitandi skuli tilkynna stofnuninni um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar. Vinnumálastofnun telur að þær ástæður sem kærandi hafi fært fyrir fjarveru sinni hafi verið honum kunnar er hann skráði sig á námskeið hjá stofnuninni. Hafi hann ekki talið sig færan til að mæta á boðað vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun sökum anna, kostnaðar vegna samgangna eða annarra ástæðna, hefði hann átt að gera grein fyrir því strax.

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýring sú er kærandi taki fram í bréfi sínu til stofnunarinnar og í kæru sinni til úrskurðarnefndar geti ekki réttlætt fjarveru kæranda á framangreindri vinnumarkaðsaðgerð og að með fjarveru sinni hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. desember 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 16. desember 2010. Andmælabréf kæranda er dagsett 16. desember 2010.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar og sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Atvinnuleitanda ber að tilkynna Vinnumálastofnun ef hann telur sig
ekki geta sótt námskeið sem hann er boðaður til og verður slík
tilkynning að berast stofnuninni án ástæðulausrar tafar.
Kærandi skráði sig á
námskeið hjá Vinnumálastofnun en uppfyllti ekki mætingarskyldu á námskeiðinu og
boðaði ekki forföll. Kærandi gaf þær skýringar á fjarveru sinni að hann hafi átt erfitt með að sækja námskeiðið vegna kostnaðar við samgöngur og persónulegra anna.

Í ljósi þess sem að framan er ritað og með vísan til rökstuðnings Vinnumálastofnunar að öðru leyti verður ekki talið að skýring kæranda fyrir fjarveru hans á boðuðu námskeiði réttlætti fjarveru hans á námskeiðinu. Því ber að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um tímabundna niðurfellingu á rétti hans til atvinnuleysisbóta.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 29. júní 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum