Hoppa yfir valmynd
22. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 87/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 22. desember 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 87/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 8. febrúar 2010, vakti Vinnumálastofnun athygli kæranda, A, á því að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI með lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, myndu falla niður frá og með 1. mars 2010. Kærandi kærði þessa ákvörðun til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, dags. 28. maí 2010, og krefst þess að ákvörðuninni verði hrundið. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti fyrst um greiðslur atvinnuleysistrygginga 30. janúar 2009, fyrir gildistöku laga nr. 37/2009 um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafði starfað við eigin rekstur á eigin kennitölu og í samræmi við 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar var honum reiknaður bótaréttur í samræmi við reglur varðandi sjálfstætt starfandi einstaklinga, sbr. 18. og 19. gr. laganna.

Af hálfu kæranda kemur fram að hann krefjist þess að standa jafnfætis launamönnum er varði hlutaatvinnuleysisbætur, þ.e. að fá greiddar hlutabætur vegna samdráttar án þess að stöðva reksturinn. Ef hann stöðvi reksturinn sitji hann uppi með illseljanlegt vinnutæki en verði að greiða af því áfram. Kærandi kveðst greiða fullt tryggingagjald sem sjálfstætt starfandi einstaklingur en njóti ekki sömu réttinda og aðrir þjóðfélagsþegnar og telji hann það vera brot á 65. gr. stjórnarskrárinnar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2010, er vitnað í bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar og bent á að kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðisins á árinu 2009. Með lögum nr. 134/2009 hafi verið samþykkt breyting á bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar og ágreiningur í máli þessu snúi að því hvort 4. mgr. ákvæðisins eigi við í máli kæranda. Sú regla sem komi fram í 4. mgr. bráðabirgðaákvæðis VI eigi við um þá sem kunni að eiga rétt til greiðslu eða hafa fengið greitt á grundvelli 1. mgr. og 2. mgr. ákvæðisins. Kærandi hafi þegið greiðslur á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI með lögum um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun veki athygli á því að hvorki sjálfstætt starfandi einstaklingur né launamaður í skilningi 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar uppfylli skilyrði laganna, hefji hann rekstur eða haldi áfram rekstri samhliða töku atvinnuleysisbóta. Markmið bráðabirgðaákvæðisins er að veita sjálfstætt starfandi einstaklingum frest til að bregðast við tímabundnum rekstrarvanda sökum breyttra aðstæðna á vinnumarkaði. Með tilkomu 4. mgr. bráðabirgðaákvæðis VI hafi löggjafinn ákvarðað að þrír mánuðir sé hæfilegur tími fyrir sjálfstæða atvinnurekendur á atvinnuleysisbótum í minnkuðu starfshlutfalli til að meta hvort rekstrarforsendur fyrirtækis séu brostnar. Þeir sem þegar hafi fengið greitt á grundvelli ákvæðisins eigi rétt á að fá greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðisins í tvo mánuði frá gildistöku laganna. Með vísan til framangreindra sjónarmiða telji stofnunin að kærandi falli undir bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar og þar af leiðandi 4. mgr. sama ákvæðis. Í ljósi þess að kærandi hafi fengið greiddar bætur á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI telji stofnunin að kærandi hafi átt rétt á að fá greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðisins til 1. mars 2010.

Þegar heimild samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar sleppi, taki við almenn skilyrði laganna. Samkvæmt f- og g-lið 18. gr. laganna sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga að þeir hafi stöðvað rekstur og leggi fram staðfestingu um stöðvun reksturs, sbr. 21. gr. laganna. Í samræmi við 21. gr. laganna telji Vinnumálastofnun nægilegt að umsækjendur skili staðfestingu á lokun launagreiðendaskrár frá ríkisskattstjóra. Samkvæmt þeim gögnum sem fyrir liggi hjá Vinnumálastofnun hafi kærandi ekki stöðvað rekstur og beri því að synja honum um atvinnuleysisbætur.

Kæranda var send greinargerð Vinnumálastofnunar með bréfi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 15. október 2010, og var honum veittur frestur til 29. október 2010 til að koma frekari athugasemdum á framfæri í máli þessu. Kærandi hefur ekki nýtt sér það.

 

2.

Niðurstaða

Hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. febrúar 2010. Kæran barst úrskurðarnefndinni 31. maí 2010 eða eftir að hinn þriggja mánaða kærufrestur var liðinn, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi heldur því fram að hann hafi ekki fengið ákvörðunarbréf Vinnumálastofnunar og það hafi ekki verið fyrr en í byrjun maí 2010 sem honum barst bréfið í tölvupósti. Vinnumálastofnun hefur ekki gert athugasemdir við þessar skýringar kæranda. Af gögnum málsins verður ráðið að á fundi Vinnumálastofnunar 12. apríl 2010 hafi verið tekin ákvörðun um að synja kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta á þeim grundvelli að hann væri enn sjálfstætt starfandi einstaklingur.

Með vísan til þessara aðstæðna verður litið svo á að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Sú meginregla hefur gilt að sjálfstætt starfandi einstaklingur þurfi meðal annars að hafa stöðvað rekstur og lagt fram vottorð um stöðvun slíks rekstrar til að geta fengið greiddar atvinnuleysisbætur, sbr. nú f- og g-liði 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Frá þessum skilyrðum voru gerðar tilteknar tímabundnar undantekningar, sbr. b-lið 1. gr. laga nr. 131/2008 sem varð að upphaflegu bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar. Þessar undantekningar þýddu meðal annars að sjálfstætt starfandi einstaklingum var gefinn kostur á að halda áfram sinni starfsemi, en að þeir fengju eigi að síður greiddar atvinnuleysisbætur að hluta. Gildistími bráðabirgðaákvæðis VI með lögum um atvinnuleysistryggingar var til 1. maí 2009 en var svo framlengdur til ársloka 2009, sbr. b-lið 26. gr. laga nr. 37/2009. Strangari skilyrði voru sett fyrir veitingu atvinnuleysisbóta á þessum grundvelli þegar ákvæðinu var breytt með 26. gr. laga nr. 134/2009.

Kæranda voru veittar atvinnuleysisbætur á grundvelli framangreinds bráðabirgðaákvæðis VI með lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem sýnt þótti að umsókn hans frá 30. janúar 2009 uppfyllti þau skilyrði sem komu fram í ákvæðinu. Hann var því skilgreindur sem sjálfstætt starfandi einstaklingur í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og þeirri skilgreiningu á stöðu hans var ekki haggað þótt breytingar hafi orðið á hugtakinu sjálfstætt starfandi einstaklingi með lögum nr. 37/2009.

Þegar lög nr. 37/2009 gengu í gildi gat kærandi vænst þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar til ársloka 2009. Frekari væntingar gat hann ekki haft nema að því tilskildu að hann myndi stöðva rekstur sinn og skila vottorði þar að lútandi. Með a-lið 26. gr. laga nr. 134/2009 var sérstaklega tekið á stöðu þeirra sem voru í sambærilegri stöðu og kærandi, sbr. gildandi 2. málsl. 4. mgr. bráðabirgðaákvæðis VI laga um atvinnuleysistryggingar:

Þeir sem þegar hafa fengið greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðis þessa á tímabilinu frá 21. nóvember 2008 til 31. desember 2009 eiga rétt á að fá greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðisins í allt að tvo mánuði að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum.

Hin kærða ákvörðun var tekin í samræmi við skýrt orðalag þessa ákvæðis.

Kærandi heldur því meðal annars fram að í máli hans hafi verið brotið á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Á þetta verður ekki fallist, en löggjafinn hefur valið að gera tiltekinn greinarmun á réttarstöðu launamanna annars vegar og sjálfstætt starfandi einstaklinga hins vegar. Fyrir því eru ýmsar ástæður, meðal annars þær að nokkur eðlismunur er talinn vera á starfsaðstæðum þessara hópa. Því er kveðið á um það í lögum um atvinnuleysistryggingar að launamenn eigi almennan rétt til að fá greiddar hlutfallslegar atvinnubætur, sbr. 17. og 22. gr. laganna, en ekki sjálfstætt starfandi einstaklingar.

Að teknu tilliti til alls framanritaðs og röksemda þeirra sem Vinnumálastofnun hefur fært fram í málinu verður hin kærða ákvörðun staðfest.

 

 

Úrskurðarorð

Sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta til A falli niður frá og með 1. mars 2010 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, for­maður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum