Hoppa yfir valmynd
22. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 128/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 22. desember 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 128/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 2. júlí 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 1. júlí 2010 fjallað um fjarveru kæranda á námskeiði á vegum Vinnumálastofnunar. Vegna fjarveru kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá og með degi ákvörðunar sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 22. júlí 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. september 2009. Hann skráði sig á tölvunámskeið þann 10. maí 2010 en námskeiðið var kennt frá 31. maí til 21. júní 2010. Honum var í framhaldinu send stundaskrá og frekari upplýsingar um námskeiðið. Kærandi mætti ekki á námskeiðið þann 31. maí 2010. Sama dag voru honum send skilaboð þess efnis að það gæti valdi niðurfellingu bótaréttar ef hann tæki ekki þátt í eða hafnaði vinnumarkaðsúrræðum, án tilkynningar um forföll til Vinnumálastofnunar. Kærandi mætti ekki á námskeiðið og boðaði ekki forföll. Fulltrúi stofnunarinnar hringdi í hann þann 7. júní 2010 og afskráði hann sig þá af tölvunámskeiðinu. Óskað var skriflegra skýringa á fjarveru á námskeiðinu og bárust skýringar kæranda þann 10. júní 2010. Þar kemur meðal annars fram að hann hafi fengið loforð um íhlaupavinnu.

Í erindi kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða kemur fram að hann hafi verið settur á tveggja mánaða greiðslufrest vegna fjarveru hans á námskeiði. Hann óskar eftir því að tekið verði tillit til launaseðils sem sýni að hann hafi verið í vinnu á sama tímabili og námskeiðið var haldið, ákvörðun Vinnumálastofnunar um tveggja mánaða bið verði dregin til baka og að hann fái greitt fyrir umrætt tímabil. Kærandi kveðst hvorki hafa fengið senda stundaskrá né skilaboð frá námskeiðshaldara.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 14. október 2010, kemur fram að í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Segi þar að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fram kemur að ekki sé að sjá að kærandi hafi gert tilraun til að tilkynna um fjarveru. Kærandi hafi afskráð sig af námskeiði stofnunarinnar eftir að hann hafði ekki mætt fyrstu fjögur skiptin. Í kæru sinni segist kærandi hafa verið við vinnu á sama tíma og námskeiðið var haldið. Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli atvinnuleitandi tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að vera á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar. Verði að telja nauðsynlegt að atvinnuleitandi tilkynni stofnuninni ef hann hyggist ekki sækja námskeið sem hann hafi verið boðaður til. Ef stofnuninni berist upplýsingar um réttmætar ástæður fyrir fjarveru á námskeið, til dæmis ef atvinnuleitanda gefst tímabundið starf eða tilfallandi verkefni á námstíma, sé að sjálfsögðu tekið tillit til þess þegar mæting á vinnumarkaðsúrræði sé metin. Vinnumálastofnun hafi ekki verið kunnugt um að kærandi hefði boðist tilfallandi vinna á sama tíma og námskeið stofnunarinnar hafi farið fram. Þá hafi kærandi ekki sýnt fram á það að hann hafi verið við vinnu í þau skipti sem nám hafi staðið yfir. Samkvæmt upplýsingum frá kæranda hafi hann verið við vinnu þann 3. júní og 8. júní 2010 en í hvorugt skiptið skarist vinnutími við námskeiðahald.

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að hvorki skýring sú er kærandi taki fram í bréfi sínu til stofnunarinnar né í kæru sinni til úrskurðarnefndar geti réttlætt fjarveru hans á framangreindri vinnumarkaðsaðgerð og að með fjarveru sinni hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. október 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 2. nóvember 2010. Bréf kæranda barst 2. nóvember 2010 þar sem hann ítrekar kröfur sínar.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar og sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem
standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir
undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til
slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Atvinnuleitanda ber að tilkynna Vinnumálastofnun ef hann telur sig ekki geta sótt námskeið sem hann er boðaður til og verður slík tilkynning að berast stofnuninni án ástæðulausrar tafar. Kærandi skráði sig á tölvunámskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Hann mætti ekki á námskeiðið og boðaði ekki forföll. Þegar haft var samband við hann frá Vinnumálastofnun afskráði hann sig af tölvunámskeiðinu. Aðspurður gaf kærandi þær skýringar á fjarveru sinni að hann hafi fengið íhlaupavinnu.

Í ljósi þess sem að framan er ritað og með vísan til rökstuðnings Vinnumálastofnunar að öðru leyti verður ekki talið að skýring kæranda fyrir fjarveru hans á boðuðu námskeiði réttlætti fjarveru hans á námskeiðinu. Því ber að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um tímabundna niðurfellingu á rétti hennar til atvinnuleysisbóta.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 1. júlí 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum