Hoppa yfir valmynd
26. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 68/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 26. október 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 68/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að á fundi Vinnumálastofnunar þann 26. mars 2010 var tekin ákvörðun um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda, A, í tvo mánuði frá ákvörðunardegi þar sem hann hafði hafnað þátttöku í boðaðri vinnumarkaðsaðgerð stofnunarinnar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 3. maí 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 2. mars 2009. Vinnumálastofnun boðaði hann á tölvunámskeið með bréfi, dags. 8. febrúar 2010, og átti námskeiðið að hefjast 15. febrúar 2010 og standa yfir í alls níu skipti. Kærandi mætti ekki á námskeiðið og tilkynnti ekki forföll. Þann 12. mars 2010 var honum sent bréf þar sem óskað var skýringa á fjarveru hans á námskeiðinu. Skýringar kæranda bárust þann 18. mars 2010 og voru þær þess efnis að honum hafi ekki borist boðun á námskeiðið fyrr en eftir að það var byrjað, hann hafi verið bíllaus að hluta til og auk þessa væri bensín mjög dýrt nú til dags og hann þyrfti að fara um langan veg. Hin kærða ákvörðun var tekin 26. mars 2010, en ákvörðunarbréfið er glatað hjá Vinnumálastofnun og var ákvörðunin ekki tilkynnt kæranda fyrr en 5. maí 2010 og þá munnlega.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 4. október 2010, segir að í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. nánar skýrt. Segi þar að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Boðunarbréf vegna umrædds námskeiðs hafi verið sent kæranda þann 8. febrúar 2010. Ekki sé að sjá að kærandi hafi gert tilraun til að tilkynna um fjarveru sína vegna þessa. Vinnumálastofnun hafi ekki borist skýringar frá kæranda fyrr en 17. mars, þ.e. eftir að stofnunin hafði leitað skýringa á fjarverunni. Þar segist kærandi ekki hafa fengið boðunarbréf fyrr en eftir að námskeiðið hafi verið hafið, hann hafi verið bíllaus og auk þessa væri bensín mjög dýrt nú til dags. Ef stofnuninni berist upplýsingar um að boðun á námskeið hafi komið eftir að námskeið er hafið, sé að sjálfsögðu tekið tillit til þess þegar mæting á vinnumarkaðsúrræði séu metin. Vinnumálastofnun hafi ekki verið kunnugt um að bréfið hefði borist seint til kæranda fyrr en óskað hafi verið eftir skýringum hans á fjarverunni. Verði að telja nauðsynlegt að atvinnuleitandi tilkynni stofnuninni ef hann hyggist ekki sækja námskeið sem hann hafi verið boðaður til, jafnvel þó boðun hafi borist honum seint. Þar sem kærandi hafi ekki tilkynnt um fjarveru í þau níu skipti sem námskeiðið fór fram verði einnig að horfa til annarra skýringa kæranda.

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýring sú er kærandi taki fram í bréfi sínu til stofnunarinnar geti ekki réttlætt fjarveru hans á boðaðri vinnumarkaðsaðgerð á vegum stofnunarinnar og að með fjarveru sinni hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 6. október 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 20. október 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist þeir þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Kærandi var, með bréfi dags. 8. febrúar 2010, boðaður á tölvunámskeið sem átti að hefjast 15. febrúar og vera kennt í alls níu skipti. Kærandi mætti ekki á námskeiðið og bar því við, í bréfi dags. 17. mars 2010, að honum hafi borist boðunin eftir að námskeiðið var byrjað, hann hafi verið bíllaus að hluta og bensínkostnaður væri hár en hann þyrfti að aka um langan veg.

Ekki verður talið að skýringar kæranda réttlæti fjarveru hans á boðuðu námskeiði Vinnumálastofnunar. Því ber að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 daga.

Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun var ekki tilkynnt kæranda fyrr en 5. maí 2010 skal niðurfellingin eiga sér stað frá og með þeim degi, sbr. niðurlag 1. mgr. 58. gr. laganna.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. mars 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest. Niðurfellingin skal taka gildi við birtingu ákvörðunar þann 5. maí 2010.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum