Hoppa yfir valmynd
26. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 35/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 26. október 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 35/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að kærandi, A, sótti um atvinnuleysisbætur þann 26. nóvember 2009, en hann missti vinnu sína samkvæmt vinnuveitendavottorði þann 30. nóvember 2009. Umsóknin var samþykkt með 100% bótarétti á fundi hjá Vinnumálastofnun þann 30. desember 2009. Kæranda voru greiddar grunnatvinnuleysisbætur skv. 33. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, en Vinnumálastofnun hafnaði kröfu hans um tekjutengdar atvinnuleysisbætur. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 25. febrúar 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi starfaði hjá X ehf. frá 1. maí 2006 til 30. nóvember 2009 er honum var sagt upp störfum vegna samdráttar. Hann óskar eftir endurskoðun á útreikningi atvinnuleysisbóta og bendir á að í útreikningi á bótareikningi hafi ekki verið tekið tillit til þess tíma sem hann hafi verið í orlofi, þ.e. frá 30. mars til 13. maí 2009.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2010, kemur fram að skv. 1. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar öðlist atvinnuleitandi sem skráður sé atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði eftir að grunnatvinnuleysisbætur skv. 33. gr. hafi verið greiddar í tíu daga. Við útreikning á tekjutengdum atvinnuleysisbótum sé byggt á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur umsækjanda úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldskrá skattayfirvalda.

Fram kemur að kærandi bendi á að ekki hafi verið tekið tillit til orlofstímabils sem hafi verið frá 30. mars til 13. maí 2009. Í samræmi við 2. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli Vinnumálastofnun, við útreikning á tekjutengdum atvinnuleysisbótum, miða við sex mánaða tímabil sem hefjist tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus. Kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur 26. nóvember 2009, en af vottorði vinnuveitanda sé ljóst að atvinnuleysi hans hafi hafist frá og með 1. desember 2009. Vinnumálastofnun hafi endurreiknað réttindi kæranda í samræmi við umrætt tímabil en það hafi ekki áhrif á bótarétt hans. Telji stofnunin að ekki séu rök eða heimildir fyrir því að líta til annars viðmiðunartímabils en lögfest sé í skýru ákvæði 32. gr. laganna við útreikning á tekjutengdum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé viðmiðunartímabil við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda því frá apríl til og með september 2009. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um laun kæranda á því sex mánaða viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 32. gr. laganna, hafi heildarlaun kæranda verið 1.213.143 kr. frá apríl til og með september 2009. Þar sem 70% af meðaltali heildarlauna á viðmiðunartímabilinu sé undir grunnatvinnuleysisbótum eigi kærandi ekki rétt til greiðslu á grundvelli 32. gr. laganna, sbr. 7. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 24. júní 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 8. júlí 2010. Kærandi hefur ekki nýtt sér það.

 

2.

Niðurstaða

Í 1. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segir að sá sem telst tryggður skv. III. eða IV. kafla laganna öðlist rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í allt að þrjá mánuði frá þeim tíma er grunnatvinnuleysisbætur skv. 33. gr. hafi verið greiddar í samtals tíu virka daga nema annað leiði af lögunum. Í 1. málsl. 2. mgr. 32. gr. laganna segir að tekjutengdar atvinnuleysisbætur launamanna skv. 1. mgr. skuli nema 70% af meðaltali heildarlauna og skuli miða við sex mánaða tímabil sem hefjist tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus. Í 4. mgr. 32. gr. laganna segir að útreikningur á tekjutengdum atvinnuleysisbótum skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur umsækjanda úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda.

Af skýru orðalagi 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er ljóst hvaða tímabil og upplýsingar ákvarða tekjutengdar atvinnuleysisbætur. Engin heimild er veitt til að taka tillit til launagreiðslna sem samkvæmt upplýsingum frá skattyfirvöldum voru greiddar utan áðurnefnds viðmiðunartímabils. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um útreikning vegna tekjutengdra atvinnuleysisbóta kæranda er því staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli A varðandi viðmiðunartímabil við útreikning á meðaltali heildarlauna vegna tekjutengdra atvinnuleysisbóta kæranda er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum