Hoppa yfir valmynd
5. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 53/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 5. október 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 53/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 26. mars 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 22. mars 2010 fjallað um fjarveru kæranda á boðuðu námskeiði á vegum Vinnumálastofnunar. Vegna fjarveru kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í 60 daga frá og með 22. mars 2010 sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 31. mars 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 10. ágúst 2009. Þann 28. september 2009 var kæranda tilkynnt um þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans í 40 daga frá og með umsóknardegi, þann 10. ágúst 2009, þar sem hann hafi sagt upp fyrra starfi sínu án gildra ástæðna. Honum bauðst að fara á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var kallað „Söfnum kröftum – breytum erfiðleikum í verkefni“. Hann skráði sig á námskeiðið og staðfesti skráninguna með undirskrift sinni á boðunarbréfið, dags. 6. janúar 2010, þar sem allar nauðsynlegar upplýsingar um námskeiðið komu fram, þ.e. dagsetning námskeiðsins, nánari tímasetning þess og staðsetning. Kærandi mætti ekki á námskeiðið samkvæmt upplýsingum frá námskeiðshaldara, Lífi og sál sálfræðiþjónustu.

Vinnumálastofnun sendi kæranda bréf, dags. 1. mars 2010, þar sem óskað var skýringa á fjarveru hans á námskeiðinu. Hann gerði grein fyrir ástæðum fjarveru sinnar í bréfi, dags. 9. mars 2010. Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 31. mars 2010, mótmælir kærandi því að hann hafi hafnað þátttöku í námskeiði Vinnumálastofnunar. Hann hafi skráð sig á námskeiðið og hafi honum verið tjáð að hann yrði látinn vita símleiðis eða með tölvupósti um hvort námskeiðið yrði haldið og hvenær. Honum hafi verið tjáð að fólki væri safnað á námskeiðin og þau haldin þegar þátttakan væri næg. Kærandi kveðst ekki vilja bera ábyrgð á þeim mistökum að hann hafi ekki verið látinn vita hvenær námskeiðið átti að hefjast.

Þar sem kærandi hafði áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistrygginga, eins og rakið hefur verið, var hann látinn sæta ítrekunaráhrifum vegna þess ætlaða brots sem hér um ræðir, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 10. september 2010, segir að í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgt hafi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Segi þar að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsúrræða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýring sú er kærandi taki fram í bréfi sínu til stofnunarinnar geti ekki réttlætt fjarveru kæranda á boðaðri vinnumarkaðsaðgerð á vegum stofnunarinnar sem kærandi leitaðist eftir að fá að sækja og að með fjarveru sinni hafi hann brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun fellst ekki á þær fullyrðingar kæranda að honum hafi ekki verið tjáð hvenær umrætt námskeið yrði haldið. Í fyrirliggjandi gögnum máls þessa sé að finna bókun á umrætt námskeið, staðfest af kæranda. Með undirskrift þann 6. janúar 2010 hafi hann staðfest að hann hefði verð boðaður á námskeið frá 19. janúar til 11. febrúar 2010. Einnig komi fram hvenær og hvar námskeiðið skyldi haldið. Þá segi í bréfinu að mikilvægt sé að uppfylla kröfur um mætingarskyldu.

Fram kemur að kærandi hafi áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistrygginga skv. 61. gr. laganna þar sem kveðið er á um ítrekunaráhrif við viðurlagabrotum. Kærandi hafi sætt viðurlögum við brotum á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar frá umsóknardegi, þann 10. ágúst 2009, þegar hann hafi sagt upp starfi sínu án gildra ástæðna. Sæti hann því ítrekunaráhrifum vegna þess brots.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 14. september 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 28. september 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist þeir þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Samkvæmt upplýsingum í kæru kæranda var ástæða þess að hann mætti ekki á námskeiðið sú að honum hafi verið tjáð að hann yrði látinn vita símleiðis eða með tölvupósti hvort umrædd námskeið yrðu haldin, en hann hafi ekki verið látinn vita hvenær námskeiðið hafi átt að hefjast. Í gögnum málsins er fyrirliggjandi bókun kæranda á umrætt námskeið, staðfest af kæranda. Með undirskrift sinni á boðunarbréf þann 6. janúar 2010 staðfesti kærandi að hann hafi verið boðaður á námskeið frá 19. janúar til 11. febrúar 2010. Í boðunarbréfinu kom einnig fram hvenær og hvar námskeiðið skyldi haldið og að mikilvægt sé að uppfylla kröfur um mætingarskyldu.

Skýringar kæranda fyrir fjarveru sinni á boðuðu námskeiði á vegum Vinnumálastofnunar eru ekki taldar réttlæta fjarveru hans á námskeiðinu og því ber að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um að tímabundna niðurfellingu á rétti hans til atvinnuleysisbóta. Þar sem kærandi hafði áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar sætir hann ítrekunaráhrifum, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og er réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í 60 daga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 22. mars 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í 60 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum