Hoppa yfir valmynd
5. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 12/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 5. október 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 12/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 8. janúar 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 28. desember 2009 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 2. desember 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hans til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi dagsettu 20. janúar 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Í erindi kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða kemur fram að hann hafi sagt upp störfum hjá X sf. þann 14. september 2009. Hann hafi í framhaldinu farið í bakpokaferðalag erlendis í 15 daga, fengið vinnu erlendis og starfað þar í tvo mánuði frá 1. október 2009. Fram kemur að eftir að kærandi hafi hafið störf hafi honum verið tilkynnt að aðstæður hafi breyst og hann geti aðeins unnið í tvo mánuði og þess vegna hafi hann komið heim 1. desember 2009. Ekki kemur fram í hvaða landi kærandi starfaði eða hjá hverjum. Þá liggur ekki fyrir hvort störf hans erlendis hafi veitt honum rétt samkvæmt lögum viðkomandi ríkis um atvinnuleysistryggingar skv. 47. gr. laga um atvinnuleysistryggingar enda fylgdu tilskilin vottorð um áunnið starfstímabil og tryggingatímabil ekki með umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Kærandi kveðst hafa skráð sig atvinnulausan 2. desember 2009. Hann hafi síðan ákveðið að hefja nám við Háskólann í Reykjavík og farið af bótum þann 14. janúar 2010. Í bréfi kæranda til Vinnumálastofnunar sem barst þann 7. desember 2009 gefur kærandi aðrar skýringar á dvöl sinni erlendis. Þar segir að hann hafi hætt störfum vegna þess að hann hafi farið til útlanda í bakpokaferðalag og hafi hann verið úti í rúma tvo mánuði, en hann sé kominn til baka og sé að leita sér að vinnu.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 7. júní 2010, er vísað til 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. með frumvarpinu segi að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan sé matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem séu tryggðir og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir.

Fram kemur að það sé ljóst að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu. Ágreiningur snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn teljist gildar í skilningi 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi gefi aðrar ástæður fyrir ákvörðun sinni um að segja starfi sínu lausu fyrir úrskurðarnefndinni en Vinnumálastofnun. Hann hafi hvorki sýnt fram á að hann hafi starfað erlendis, til dæmis með því að leggja fram launaseðla, né upplýst Vinnumálastofnun um vinnustað í útlöndum. Vinnumálastofnun telji að kæranda hafi mátt vera ljóst að með því að segja starfi sínu lausu á þeim tímum sem nú eru gæti verið erfiðleikum bundið fyrir hann að komast í annað starf og sé það mat Vinnumálastofnunar að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. júní 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. júní 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 6. ágúst 2010, var kæranda sent svohljóðandi bréf:

Í gögnum ofangreinds máls hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða kemur fram að staðhæfingum yðar um það hvernig þér vörðuð tíma yðar þegar þér voruð erlendis haustið 2009 ber ekki saman. Í ódagsettu bréfi, merktu skjal nr. 4,8, segir að þér hafið hætt í vinnu vegna ferðar til útlanda í bakpokaferðalag. Hafið þér verið úti í rúma tvo mánuði. Í bréfi dags. 14. janúar 2010, sem barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kærunni, kemur hins vegar fram að þér hafið sagt upp störfum hjá X sf. þann 14. september 2009 og farið í 15 daga bakpokaferðalag, en þá þegar verið búinn að fá vinnu erlendis sem rafvirki og átt að hefja störf 1. október 2009. Af bréfinu má síðan ráða að þér hafið starfað erlendis frá 1. október 2009 í tvo mánuði. Óskað er upplýsinga og eða gagna sem varpa ljósi á þá óvissuþætti sem að ofan greinir. Veittur er frestur til þess að svara bréfi þessu til 3. september nk.“

Ekki barst svar frá kæranda og hann svaraði ekki ítrekuðum tilraunum starfsmanns úrskurðarnefndarinnar til þess að ná tali af honum í þeim símanúmerum sem eru uppgefin í kærunni.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi gaf í fyrstu þær skýringar fyrir uppsögn sinni að hann hafi farið í bakpokaferðalag erlendis. Hann greindi jafnframt frá því að hann hafi í þeirri ferð fengið vinnu erlendis sem hann gegndi í tvo mánuði. Síðar kom fram sú skýring af hálfu kæranda að hann hafi sagt starfi sínu lausu þar sem hann hafi þegar fengið vinnu erlendis, en þeirri vinnu hafi hann hins vegar ekki haldið eins lengi og hann hafi reiknað með. Engin gögn voru lögð fram af hálfu kæranda er studdu hina síðari skýringu. Af hálfu nefndarinnar var því sérstaklega beint til kæranda að hann útskýrði misræmi í þeim skýringum er hann gaf fyrir uppsögn sinni og styddi síðari skýringuna frekari gögnum. Engar frekari skýringar bárust frá kæranda.

Kærandi sagði sjálfur starfi sínu lausu hjá X sf. Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist ekki gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 28. desember 2009 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum