Hoppa yfir valmynd
15. september 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 63/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 15. september 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 63/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 12. mars 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 4. mars 2010 fjallað um höfnun hennar á atvinnutilboði hjá X. Vegna höfnunarinnar var bótaréttur kæranda felldur niður frá og með degi ákvörðunar þann 1. mars 2010 í 40 daga sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dagsettu 15. mars 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 12. október 2009. Hún fór í atvinnuviðtal hjá X þann 8. janúar 2010, en taldi sig ekki geta þegið starfið þar sem það væri of kalt á vinnustaðnum. Málið var tekið fyrir á fund Vinnumálastofnunar þann 15. febrúar 2010 og var kæranda með bréfi, dags. 15. febrúar 2010, gefinn kostur á að koma afstöðu sinni til höfnunarinnar á framfæri. Í bréfi kæranda til Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2010, kemur fram að hún hafi komist að því að hugsanlega væri of kalt á vinnustaðnum fyrir hana þar sem hún þoli illa kulda og trekk, sé kvefsækin og gjörn á að fá blöðrubólgu. Hún treysti sér því ekki til þess að vinna þessa vinnu. Læknisvottorð frá C, lækni á D-Heilsugæslunni, barst þann 29. mars þar sem það er vottað að kærandi geti ekki unnið í miklum kulda, hún sé með vöðvabólgur í öxlum sem versni í kulda. Einnig sé hún gjörn á að fá blöðrubólgu.

Mál kæranda var tekið fyrir að nýju þann 7. apríl 2010 í kjölfar þess að læknisvottorðið barst. Þann 24. apríl 2010 var kæranda sent annað ákvörðunarbréf þar sem fyrri ákvörðun stofnunarinnar um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði vegna höfnunar á atvinnutilboði var staðfest þar sem skýringar hennar á höfnuninni teldust ekki gildar í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 2. júlí 2010, segir að mál þetta varði 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi ekki lagt fram læknisvottorð um skerta vinnufærni við ákveðnar aðstæður í upphafi umsóknar um atvinnuleysisbætur. Þvert á móti merki hún við í umsókn sinni að hún sé almennt vinnufær. Vinnumálastofnun hafi tekið mið af þeim upplýsingum enda sé skýrt kveðið á um það í h-lið 1. mgr. 14. gr., sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, að umsækjanda beri að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur hans á því að fá starf við hæfi sem og að tilkynna stofnuninni um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans, án ástæðulausrar tafar. Komi upplýsingar um skerta vinnufærni upp þegar starf er í boði kunni að koma til viðurlaga skv. 59. gr. laganna þar sem hinn tryggði hefði þegar átt að hafa gefið upp allar nauðsynlegar upplýsingar um vinnufærni sína. Það sé þýðingarmikið að upplýsingar liggi fyrir þegar í upphafi um að umsækjendur geti ekki sinnt tilteknum störfum til þess að auðveldara sé að aðstoða hinn tryggða við að finna starf við hæfi. Kærandi hafi ekki lagt fram læknisvottorð um skerta vinnufærni fyrr en eftir að henni hafi verið boðið starf hjá X sem henni hafi ekki hugnast.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 4. ágúst 2010, gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 18. ágúst 2010. Kærandi sendi tölvupóst, dags. 12. ágúst 2010, þar sem hún ítrekaði sjónarmið sín.

 

2.

Niðurstaða

Í 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um það þegar starfi eða atvinnuviðtali er hafnað. Í 1. mgr. lagagreinarinnar segir að sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.

Í 4. mgr. sömu lagagreinar kemur eftirfarandi fram:

Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.

Í athugasemdum við tilvitnaða 4. mgr. 57. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að gert sé ráð fyrir því að heimilt sé að taka tillit til þess þegar hinn tryggði geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni. Gera megi ráð fyrir að sjaldan reyni á þessa undanþágu þar sem ekki gert ráð fyrir að hinum tryggða verði boðin störf sem hann er ekki fær um að sinna enda hafi hann tekið það fram þegar í upphafi atvinnuleitar.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að sá sem veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn eða lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar svo unnt sé að aðstoða hann við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama eigi við þegar hinn tryggði hefur vísvitandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem hafi orðið á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti á tímabili skv. 29. gr. laganna. Í athugasemdum við 59. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysis­tryggingar kemur fram að ákvæði þetta sé nýmæli, en mikilvægt skilyrði þess að unnt sé að aðstoða hinn tryggða við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum sé að nauðsynlegar upplýsingar um hann liggi fyrir. Nokkuð sé um það að atvinnuleitendur komi með læknisvottorð um skerta starfshæfni þegar þeim séu boðin störf. Það geti hins vegar reynst þýðingarmikið að upplýsingar liggi fyrir þegar í upphafi um að þeir geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna heilsufarsástæðna. Skorti nauðsynlegar upplýsingar um vinnufærni umsækjanda geti það því haft neikvæð áhrif á árangur þeirra úrræða sem viðkomandi standi til boða enda hafi þarfamatið verið byggt á ófullnægjandi upplýsingum. Þá sé ekki átt við upplýsingar um atvik eða aðstæður sem ekki voru komin fram þegar umsækjandi sótti fyrst um atvinnuleysisbætur en gert sé ráð fyrir að hinn tryggði gefi nauðsynlegar upplýsingar um leið og breytingar verða.

Það er ljóst að gera verður ríkar kröfur til atvinnuleitenda um að veita viðeigandi upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur eða um leið og breytingar gefa tilefni til þess og án ástæðulausrar tafar. Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur í október 2009 og henni var boðið í atvinnuviðtal þann 8. janúar 2010. Staðhæfingar hennar þess efnis að hún gæti ekki tekið vinnunni vegna heilsufarsvandamála bárust fyrst í kjölfar atvinnutilboðsins. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest.

 

Úr­skurðar­orð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 4. mars 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum