Hoppa yfir valmynd
3. júní 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 15/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 3. júní 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 15/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 9. desember 2009, vakti Vinnumálastofnun athygli kæranda, A, á því að samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, ljúki bótatímabili hans hjá Atvinnuleysistryggingasjóði þann 31. desember 2009. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, mótteknu 25. janúar 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 10. maí 2010, kemur fram að kærandi hafi verið skráður atvinnulaus hjá stofnuninni á árunum 2002, 2003, 2004 og 2005. Hann hafi hafið störf í apríl 2005 og verið afskráður. Kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni 30. nóvember 2005 í tíð laga nr. 12/1997 og þegið greiðslur atvinnuleysisbóta 1. júlí 2006 er lög um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 hafi tekið gildi. Kærandi hafi hafið störf í mars 2006, en skráð sig aftur atvinnulausan hjá Vinnumálastofnun þann 20. desember 2007. Samkvæmt upplýsingum frá vinnuveitanda og fyrirliggjandi gögnum frá ríkisskattstjóra, hafi kærandi starfað hjá X ehf. frá 1. maí til 31. ágúst 2007. Þá hafi hann starfað hjá Y í þrjá mánuði árið 2008.

Þá kemur fram að Vinnumálastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 9. desember 2009, að bótatímabili hans myndi ljúka þann 31. desember 2009 samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, geti þeir sem hafi verið skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun fyrir 15. nóvember 2005 að hámarki átt rétt til grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til 31. desember 2009 en þó ekki lengur en í fimm ár frá því að þeir fyrst skráðu sig atvinnulausa hjá stofnuninni. Ákvæðið eigi við um þá sem hafi verið samfellt án atvinnu frá 15. nóvember 2005 eða starfað í skemmri tíma en sex mánuði á innlendum vinnumarkaði.

Í ákvæði til bráðabirgða III með lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að ákvæði laganna eigi að öllu leyti við um þá sem skráðir höfðu verið atvinnulausir fyrir gildistöku laganna, hafi þeir starfað samfellt í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en sótt er um atvinnuleysisbætur í fyrsta sinn eftir lagabreytingu. Hafi sá tryggði starfað í meira en sex mánuði áður en hann sótti aftur um atvinnuleysisbætur skuli ekki litið til fyrra bótatímabils samkvæmt eldri lögum nr. 12/1997 um atvinnuleysistryggingar og ekki gert að skilyrði að eldra tímabili ljúki áður en tímabil skv. 29. gr. gildandi laga um atvinnuleysistryggingar hefjist.

Samkvæmt greiðslusögu kæranda og fyrirliggjandi gögnum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi ekki starfað í sex mánuði á umræddu tímabili. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hjá Vinnumálastofnun hafi kærandi því ekki áunnið sér rétt á nýju bótatímabili, hvorki á grundvelli 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar né bráðabirgðaákvæðis III sömu laga. Það sé því niðurstaða Vinnumálastofnunar að bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar eigi við í máli kæranda og geti hann því ekki notið greiðslu atvinnuleysistrygginga eftir 31. desember 2009 nema að öðrum ákvæðum laganna uppfylltum.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 12. maí 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 26. maí 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, öðluðust gildi 1. júlí 2006 og leystu þá af hólmi lög sama efnis nr. 12/1997. Með hinum nýju lögum voru gerðar ýmsar breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu, meðal annars var boðið upp á að atvinnuleysisbætur yrðu tekjutengdar í allt að þrjá mánuði frá tilteknu tímamarki, sbr. 32. gr. laganna, og að lengd tímabils sem atvinnuleysisbætur væru greiddar fyrir takmarkaðist við ákveðið hámark, sbr. 29. gr. laganna. Þar sem meginreglur hinna nýju laga gátu annað hvort aukið réttindi þeirra sem voru þá á atvinnuleysisbótum eða dregið úr þeim, var með ákvæðum I–III til bráðabirgða tekin afstaða til réttarstöðu þeirra atvinnuleitanda sem nutu greiðslu atvinnuleysisbóta áður en hin nýju lög komu til framkvæmda. Kærandi var einn þeirra sem tilheyrði þessum hópi atvinnuleitanda.

Fallist verður á það með Vinnumálastofnun að bráðabirgðaákvæði II hafi átt við um kæranda þegar hin kærða ákvörðun var tekin en lagaákvæðið er svohljóðandi:

Sá sem var skráður atvinnulaus fyrir 15. nóvember 2005 og hefur verið án atvinnu samfellt síðan eða hefur starfað í skemmri tíma en sex mánuði á innlendum vinnumarkaði getur að hámarki átt rétt á grunnatvinnuleysisbótum samkvæmt lögum þessum til 31. desember 2009 en þó ekki í lengri tíma en fimm ár frá skráningu hjá svæðisvinnumiðlun að teknu tilliti til starfstímabila hans. Að öðru leyti gilda ákvæði laga þessara um réttindi hans og skyldur innan atvinnuleysistryggingakerfisins.

Í ljósi þess að ákvæði þetta mælir fyrir um stöðvun greiðslu atvinnuleysisbóta frá og með 1. janúar 2010 að telja þá verður hin kærða ákvörðun staðfest með vísan til þess rökstuðnings sem Vinnumálastofnun hefur fært fyrir henni.

 

Úr­skurðar­orð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli A frá 9. desember 2009 um það að hann eigi ekki rétt til atvinnuleysisbóta frá og með 1. janúar 2010 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum