Hoppa yfir valmynd
3. júní 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 8/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 3. júní 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 8/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 8. desember 2009, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 8. desember 2009 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 29. október 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hennar til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi dagsettu 14. janúar 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og hún fái greiddar atvinnuleysisbætur í umrædda 40 daga. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi starfaði hjá X hf. í B-bæ sem vörustjóri sérvöru frá 13. júlí 2009 til 16. október 2009 samkvæmt vottorði vinnuveitanda. Hún sagði sjálf upp störfum. Kærandi kveður ástæður sínar fyrir uppsögninni aðallega vera af heilsufarsástæðum, vegna bakverkja, þreytu, vanlíðan og ótta um að illa færi við akstur frá vinnustað sem verið hafi í B-bæ.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 10. maí 2010, er bent á að ákvörðunin um niðurfellingu bótaréttar hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan sé matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Það sé ljóst að kærandi hafi sagt upp starfi sínu hjá vinnuveitanda. Ágreiningurinn snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir.

Af hálfu Vinnumálastofnunar kemur fram að í skýringum kæranda til stofnunarinnar og í kæru sinni til úrskurðarnefndar segi kærandi meðal annars að vegalengd milli heimilis og starfsstöðvar hafi átt þátt í þeirri ákvörðun hennar að hætta störfum. Vegna þess tíma sem það hafi tekið kæranda að aka til og frá vinnu hafi ekki gefist tími til að stunda líkamsrækt. Kærandi hafði óskað eftir því að vinnutíma yrði hliðrað til en ekki hafi verið orðið við þeirri beiðni. Þá segi kærandi að langur akstur milli B-bæjar og heimilis hafi gefi henni ástæðu til að óttast um líf sitt.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að ágreiningur milli launamanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma og aðstæður á vinnustað flokkist almennt ekki sem gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi d-liðar 1. mgr. 14. gr. laganna þar sem segi að atvinnuleitandi skuli vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á landinu og þá almennu tilhögun að starfsmenn sæki vinnu sína til annarra sveitarfélaga telji stofnunin skýringar er varði vegalengd til vinnustaðar ekki falla undir „gildar ástæður“ í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar enda sé landið allt eitt atvinnusvæði. Vinnumálastofnun telji því að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni ekki teljast gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 12. maí 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 26. maí 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi sagði sjálf starfi sínu lausu hjá X hf. í B-bæ. Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ekki hafi verið í ljós leitt að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 8. desember 2009 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum